Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.04.2014, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.04.2014, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6.4. 2014 E rna Indriðadóttir starf- aði í rúm tuttugu ár á Ríkisútvarpinu, meðal annars sem fréttamað- ur og dagskrárgerð- armaður. Þegar þeim störfum lauk gerðist hún upplýsingafulltrúi hjá Alcoa-Fjarðaáli og vann þar í átta ár en lét af því starfi um áramótin. Nú vinnur hún að því að stofna nýtt vefrit. „Eftir nokkrar vikur vonast ég til að geta sett í loftið vefrit sem hefur hlotið heitið Lifðu núna og er ætlað fyrir fólk fimmtíu og fimm ára og eldra,“ segir Erna. „Þessi hugmynd hefur verið að þróast með mér í nokkur ár. Það er lítil umfjöllun um eldri kynslóðirnar í landinu í fjölmiðlum, en margt brennur á þessum hópi sem vill leita sér upplýsinga um ýmis mál sem varða hag hans og lesa efni sem varða líf hans og áhugamál. Mér finnst ástæða til að fjalla um þennan aldurshóp sem mér finnst vera frekar ósýnilegur á opinber- um vettvangi. Fólkið sem nú er að eldast er vant því að vera á netinu og er virkt þar og mun ekki sitja aðgerðalaust á félagsheimilum aldr- aðra í framtíðinni. Það fjölgar gríð- arlega í þessum hópi og nú eru 78.000 Íslendingar 55 ára og eldri og mun fara stigfjölgandi á næstu árum og áratugum. Ég finn og heyri að það eru for- dómar í samfélaginu gagnvart eldra fólki. Fólki er beinlínis mis- munað vegna aldurs. Ég talaði ný- lega við rúmlega sextuga mann- eskju sem sótti um starf og var langhæfasti umsækjandinn en fékk ekki starfið. Ég hef talað við eldra fólk sem finnst talað niður til sín og verður fyrir dónaskap í versl- unum, þar á meðal var maður sem fór í fatabúð í Kringlunni og þar var því hreytt í hann að þarna væru ekki seld föt á gamalt fólk. Ég held að fordómarnir séu miklu meiri en fólk gerir sér grein fyrir. Sem stendur er ég eini fasti starfsmaður vefritsins en hef mik- inn áhuga á að vera í samstarfi við alla þá sem hafa áhuga á þessum málum. Ég hef hugsað mér að vera með ráðgjafanefnd í vefritinu þar sem fólki verður boðið að taka þátt og Landssamband eldri borgara mun til dæmis eiga þar fulltrúa.“ Í óvinaherbúðum Síðasta starf þitt var sem upplýs- ingafulltrúi hjá Alcoa. Af hverju fórstu í það starf á sínum tíma? „Ég hef haft fyrir sið að skipta reglulega um starf og gerði það lengi vel innan Ríkisútvarpsins. Þegar ég var búin að vinna í fjöl- miðlum í tuttugu ár fannst mér vera komið nóg. Ég fór í nám í Bandaríkjunum og tók meistara- próf í stjórnsýslufræðum. Nokkr- um árum síðar fékk ég starf hjá Alcoa hér á landi. Sennilega hefði mér ekki dottið í hug að ráða mig í vinnu hjá bandarísku stórfyrirtæki nema vegna þess að ég hafði búið í Bandaríkjunum.“ Fannstu fyrir því að einhverjir hefðu neikvætt viðhorf gagnvart starfi þínu fyrir Alcoa, til dæmis vegna Kárahnjúkavirkjunar? „Já, það fór ekkert á milli mála að einhverjum fannst ég vera kom- in yfir í „óvinaherbúðirnar“. Það kom mér að vissu leyti á óvart hversu hatrammar deilurnar um Kárahnjúkavirkjun voru, vegna þess að þegar ég hóf störf var búið að samþykkja virkjun og álver á Alþingi með miklum meirihluta og ég taldi málinu þannig lokið. Ég hitti fólk sem talaði fyrir fram- kvæmdunum fyrir austan og hafði fengið líflátshótanir frá andstæð- ingum framkvæmdanna og svo náttúruverndarfólk sem taldi sig hafa verið beitt þöggun. Yfirgnæfandi meirihluti Austfirð- inga var fylgjandi þessum fram- kvæmdum. Reglulega voru einnig gerðar skoðanakannanir fyrir Alcoa á vegum Capacent um afstöðu landsmanna allra til byggingar ál- versins og þeir sem voru jákvæðir í garð hennar voru 50-60 prósent en þeir sem voru á móti voru 25-30 prósent, um helmingi færri. Samt heyrðist miklu meira í þeim sem voru neikvæðir. Mér fannst líka merkilegt að fylgjast með fréttum fjölmiðla af áliðnaðinum en þeir voru mjög gagnrýnir sem var gott. Ég heyrði til dæmis mjög fína um- fjöllun á Rás 2 um áliðnaðinn þar sem viðkomandi þáttagerðarmaður hafði lagt mikla vinnu í þáttinn og tók Rannveigu Rist í viðtal sem var eins og þriðju gráðu yfir- heyrsla. Ég hef hins vegar aldrei heyrt í fjölmiðlum þriðju gráðu yfirheyrslu yfir þeim sem voru andvígir þessum framkvæmdum, hvað þá að verið sé að skoða nátt- úruverndarsamtökin í landinu á gagnrýninn hátt, hvernig þau eru fjármögnuð, hverjir það eru sem stjórna þeim og svo framvegis“ Heldurðu að Kárahnjúkavirkjun hafi verið til góðs? „Já, við erum með áliðnað í land- inu og mér finnst ekki að hann þurfi allur að vera á suðvestur- horninu. Ég man eftir því þegar ég var á Reyðarfirði og horfði á sjón- varpsfrétt um opnun Hellisheiðar- virkjunar og sagt var frá því að straumi hefði verið hleypt á stækk- að álver á Grundartanga. Þetta virtist alveg hafa farið framhjá mönnum. Það voru ekki mótmæli gegn þessu á meðan menn voru mjög uppteknir við að mótmæla virkjun austur á landi. Álverið á Reyðarfirði skapar varlega áætlað milli eitt og tvö þúsund störf og veitir miklum gjaldeyristekjum inn í landið sem veitir ekki af. Mér finnst líka merkilegt þegar fræðimenn koma fram og kenna jafnvel Kárahnjúkavirkjun og framkvæmdunum fyrir austan um hrunið. Á þeim tíma sem þar voru framkvæmdir komu um 78 millj- arðar króna inn í íslenska hag- kerfið meðan fjárfestingar í at- vinnulífinu voru 1.500 milljarðar, þannig að þarna voru um fimm prósent af fjárfestingunum sem voru í gangi fyrir hrun. Mér er hulin ráðgáta hvernig menn geta fundið út að þessi virkjun hafi ver- ið einn helsti orsakavaldur að hruninu.“ Vil sjá Ingibjörgu Sólrúnu sem forseta Víkjum að pólitík, þú varst á lista Samfylkingarinnar í Norðaustur- kjördæmi fyrir síðustu alþingis- kosningar en komst ekki á þing. Hefurðu brennandi áhuga á stjórn- málum? „Ég hef alltaf talið mig frjáls- lyndan jafnaðarmann. Á árum áður höfðaði vinstri pólitíkin ekki til mín vegna þess að mikill klofningur var meðal vinstrimanna sem náðu aldr- ei árangri af því þeir voru í of mörgum fylkingum. Áhugi minn vaknaði svo af alvöru með tilkomu R-listans og Samfylkingarinnar og ég var mikill aðdáandi Ingibjargar Sólrúnar, fannst hún frábær stjórnmálamaður og myndi helst vilja sjá hana sem næsta forseta. Eftir hrunið ákvað ég að ganga í Samfylkinguna. Ég var svo farin að hugsa mér til hreyfings fyrir aust- an, það voru að koma kosningar og þar sem ég hef mikinn áhuga á landsbyggðarpólitíkinni ákvað ég að fara í framboð. Mér gekk vel í prófkjörinu en í kosningunum beið flokkurinn eitt versta afhroð í sög- unni þannig að mér varð ekki káp- an úr því klæðinu að komast á þing. Núna finnst mér helsta vanda- Úr álinu yfir í net- heima ERNA INDRIÐADÓTTIR ER AÐ STOFNA NÝTT VEFRIT SEM ÆTLAÐ ER FÓLKI SEM ER 55 ÁRA OG ELDRA. HÚN SEGIR FORDÓMA RÍKJA Í SAMFÉLAGINU GAGNVART ELDRA FÓLKI. ERNA RÆÐIR UM NÝJA VERKEFNIÐ OG SÖMULEIÐIS UM STARF SITT HJÁ ALCOA OG MÓTMÆLIN GEGN KÁRA- HNJÚKAVIRKJUN OG ÁRIN Á RÍKISÚTVARPINU. Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@mbl.is * Ég talaði nýlega við rúmlega sextugamanneskju sem sótti um starf og varlanghæfasti umsækjandinn en fékk ekki starfið. Ég hef talað við eldra fólk sem finnst talað niður til sín og verður fyrir dónaskap í verslunum, þar á meðal var maður sem fór í fatabúð í Kringlunni og þar var því hreytt í hann að þarna væru ekki seld föt á gamalt fólk. Svipmynd
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.