Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.04.2014, Síða 20

Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.04.2014, Síða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6.4. 2014 Ferðalög og flakk Hjólaferðir njóta aukinna vinsælda, enda margt ferðafólk sem vill geta sameinað hreyfingu og skoðunarferðir. Hjá þýsku ferðaskrifstofunni Rotalis (www.rotalis.de) er hægt að skrá sig í lengri og styttri hjólaferðir en fyrirtækið hefur boðið upp á hjólaferðir um Evrópu í fjóra ára- tugi. Alls er boðið upp á 37 hjólaleiðir um Þýskaland, Austurríki, Sviss, Holland, Spán, Portúgal, Frakkland, Ítalíu, Pólland, Eystrasalts- löndin og Norðurlönd auk þess sem hægt er að fara í hjólaferð um Suður-Afríku, Tyrkland og Víetnam á vegum fyrirtækisins. Ferðirnar eru frá sjö upp í 17 daga og eru aldrei fleiri en 20 manns í hóp. Ferðirnar eru flokkaðar eftir erf- iðleikastigi, frá einum upp í fimm. Á vef Rotalis eru nákvæmar upplýsingar og leiðarlýsingar af öllum ferðunum og hægt er að panta bækling. HJÓLAÐ UM EVRÓPU HREYFING OG FERÐALÖG Engin ástæða til að sitja kyrr í útlöndum AP ÞAÐ HENTAR EKKI ÖLLUM AÐ SITJA Á KAFFIHÚSUM EÐA FARA Í RÚTUFERÐIR Á FERÐALÖGUM. HEILSUTENGD FERÐAMENNSKA NÝTUR SÍFELLT MEIRI VINSÆLDA OG HÉR ER BENT Á NOKKRAR SNIÐUGAR LEIÐIR TIL AÐ KYNNAST FRAMANDI SLÓÐUM EN FÁ UM LEIÐ HOLLA HREYFINGU. Eyrún Magnúsdóttir eyrun@mbl.is Fyrir þá sem vilja prófa eitthvað nýtt á ferðalögum má reyna að bóka ferð gegnum vefinn www.surftrips.com en hann sér- hæfir sig í að leiðbeina ferða- mönnum sem vilja komast á brimbretti um víða veröld. Frá árinu 2003 hefur fyrirtækið Swimtrek boðið upp á sundferðir víða um heim. Eins og sjá má á vef fyrirtækisins, www.swimt- rek.com, byrjaði ævintýrið með því að boð- ið var upp á vikusundferð milli nokkurra grískra eyja. Sú ferð er enn í boði en fjöldi annarra hefur bæst við. Flestar ferðirnar eru 3-7 dagar en miserfiðar. Ef farið er um grísku eyjarnar eru jafnan syntir um fimm kílómetrar á dag. Á milli sundspretta sigla þátttakendur um á fjörutíu feta snekkju og njóta útsýnisins. Meðal annarrra ferða sem fyrirtækið býður upp á má nefna sundferð með leiðsögn frá San Francisco út í Alcat- raz, hina alræmdu fangelsiseyju. SYNT MILLI GRÍSKU EYJANNA Írland býður upp á stórbrotna náttúru. Fyrir þá sem vilja fara um írska grund á tveimur jafnfljótum má benda á fyrirtækið Trailwalkers Ireland sem sérhæfir sig í að skipu- leggja gönguferðir fyrir ferðafólk. Á vefnum www.trailwalkersireland.ie er hægt að skoða ferðalýsingar. Fyrirtækið sér um að bóka gistingu, útvega leiðalýsingar, kort og aðrar upplýsingar fyrir þriggja til tíu daga gönguferðir en fólk fer í ferðirnar á eigin vegum, þ.e. ekki með leið- sögumanni. ÍRSK ÚTIVIST Brynjólfur Þorkelsson Framkvæmdastjóri binni@remax.is Sylvía GWalthersdóttir Löggiltur fasteignasali sylvia@remax.is „...veittu mér framúrskarandi þjónustu í alla staði“ „Katrín heiti ég. Þau hjónin Binni og Sylvía sáu um að selja húsið mitt sumarið 2013 og veittu mér framúrskarandi þjónustu í alla staði. Haldið var opið hús þar sem þau sáu um að bjóða fólkið velkomið og fylgdu opna húsinu svo eftir en það leiddi til sölu sem allir voru sáttir við. Ég mæli hiklaust með þessum sætu hjónum“ 820 8080 Hringdu núna ogpantaðu frítt söluverðmat

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.