Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.04.2014, Síða 32

Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.04.2014, Síða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6.4. 2014 Matur og drykkir 1 flak reykt þing- vallableikja ólífuolía graslaukur eftir smekk ½ bolli ristuð gras- kersfræ ½ krukka kapers börkur af einni sí- trónu nýmalaður pipar eftir smekk Bleikjan skorin í teninga og öllu bland- að saman. Piprað og sítrónubörkur rifinn yfir. Þing- vallasalat 2 pokar litlar mosarellakúlur 1 askja kirsuberjatómatar ½ askja fersk basilíka ólífuolía 1 dl ristaðar furuhnetur flögusalt og pipar eftir smekk Basilíka og olía er maukað saman í blandara eða með töfra- sprota. Basilíkuolíunni er svo hellt yfir saman við tómatana og mosarellaostinn og blöndunni skipt niður í skálar. Að lokum er kryddað með flögusalti, svörtum pipar og ristuðum furuhnetum stráð yfir. Mosarellasalat Þ etta var æðislegt kvöld, með allra bestu vinkonum mínum, þótt að vísu hafi vantað einhverjar í hópinn, og svo duttu þarna inn tveir ferðalangar, þýskar stúlkur sem voru í skýjunum með matinn og auðvitað þessar stórskemmtilegu vinkonur mínar,“ segir Margrét Rósa Einarsdóttir, vert á Iðnó með meiru og formaður Ferðamálafélags Mosfellsbæjar. Möggu Rósu, eins og hún er jafnan kölluð, er margt til lista lagt þegar kemur að því að útbúa huggulegt kvöldverðarboð. Að þessu sinni ákvað hún að bjóða góðum vinkonum sínum heim á gistiheimilið Tjaldanes sem hún rekur í Mosfellsdal. Á boðstólum var með- al annars Þingvallasalat og ýmislegt gott íslenskt hráefni þar sem blóðberg var meðal annars notað í matargerðina. Þar sem allt er frekar heimilislegt í Tjaldanesi og léttur andi þá fannst Möggu Rósu ekk- ert því til fyrirstöðu að fá tvo gesti á staðnum til að borða með vinkonuhópnum. Á undan matnum var drukkið kampavín við huggulega stemningu og kertaljós. „Í matarboðum finnst mér alltaf gott bjóða annaðhvort upp á kjúkling eða lambakjöt og ég reyni að vera búin að gera sem mest áður en gestirnir koma - að ég þurfi ekki að vera sveitt við að út- búa matinn þegar vinkonurnar koma svo að ég missi ekki af því að spjalla við þær. Ég er lítið fyrir það að láta alla hanga yfir pottunum saman og gera eitthvað smá, ég vil hafa smá stjórn á þessu. Svo geri ég aldrei neitt nýtt við svona tilefni. Ég æfi mig frekar á fjölskyldumeðlimum.“ MARGRÉT RÓSA EINARSDÓTTIR BÝÐUR Í MAT Bestu vin- konurnar ÍSLENSKT HRÁEFNI VAR Í ÖNDVEGI Í MAT- ARBOÐINU SEM MARGRÉT RÓSA EINARS- DÓTTIR BAUÐ Í Á DÖGUNUM. Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is Margrét Rósa er list- ræn fram í fingurróma eins og sést á öllu sem hún kemur nærri. Fallega lagt á borð í Tjalda- nesi, með servíttuhringjum og öllu tilheyrandi. Með matnum var bor- ið fram ofnbakað ís- lenskt grænmeti. * Ég er lítiðfyrir það aðláta alla hanga yfir pottunum saman og gera eitthvað smá, ég vil hafa smá stjórn á þessu

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.