Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.04.2014, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.04.2014, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6.4. 2014 Matur og drykkir 1 laxaflak 50 g salt 50 g sykur 25 g sítrónubörkur (smátt sax- aður, gætið þess að hvíti hlutinn sé ekki með) Aðferð: Roðflettið laxaflakið og gangið úr skugga um að allar blóðrendur og bein hafi verið fjarlægð. Stráið helmingnum af salti, sykri og sítrónuberki á bakka og leggið flakið á. Dreifið þessu næst afganginum af blöndunni jafnt yfir hina hliðina og látið marinerast í 1 klukkustund. Eftir klukkutíma, skolið mariner- inguna af flakinu og sneiðið niður í hóf- lega bita. Innsiglið næst í plast og loft- tæmið í vél. Sjóðið á 45°C gráðum í 10-12 mínútur (gott er að hafa hita- mæli í vatninu allan tímann). Berið fram með gúrkum, sinnepi, dilli og góðu rúgbrauði. A gnar var tiltölulega nýlentur frá London, þegar Sunnudags- blaðið náði af honum tali. Hafði hann þá staðið vaktina á Texture um morguninn og var kominn í eldhúsið á VOX Restaurant fyrir kvöldmat. „Ég verð hérna með sex rétta máltíð föstudag og laugardag, í tengslum við London-daga á staðnum,“ segir Agnar, spurður út í til- urð þess að hann væri hingað kominn yfir helgina. „Þetta verður svona það sem við erum að gera á Texture, þessir réttir hafa flestir verið á seðlinum hjá okkur á einum eða öðrum tíma,“ bætir hann við. Reynslan frá tímanum með Blanc dýrmæt Um fjórtán ára skeið hefur Agnar búið og starfað í Bretlandi. Áður en hann réðst í eigin rekstur starfaði hann um tæplega sex ára skeið í Oxford, á hinum þekkta Manoir aux Quat’Saisons, sem er í eigu stjörnukokksins franska Raymond Blanc. Varð þeim vel til vina enda hafa þeir unnið mikið og stíft á hin- um tveggja stjörnu Michelin-stað, þar sem Agnar var meðal annars yfirkokkur í á þriðja ár. „Þetta var náttúrlega bara frábært og mikil reynsla,“ segir hann. Bætir hann við að dagarnir hafi oft hlaupið enda oft og tíðum unnið í 16-18 klukkustundir og því ekki að undra að menn hafi kynnst vel. Agnar segir reynsluna frá tímanum með Blanc hafa verið ómetan- lega þegar kom að því að hefja eigin rekstur, enda ekki hlaupið að því í heimsborginni London. „Það var náttúrlega mikil viðurkenning fyrir mig að hafa verið yfirkokkur á tveggja stjörnu Michelin-stað, sem auðveldaði mjög að fá inn fjárfesta og fleira slíkt. Ég hefði eflaust aldrei getað opnað stað hér, ef ekki væri út af honum [Blanc]. Þetta gerist ekkert öðruvísi en með mikilli vinnu,“ segir hann hógvær. Texture opnuðu Agnar og Rousset við Portman Street, steinsnar frá Oxford-stræti, árið 2007. Var staðnum strax vel tekið í fjölbreyttri veitingaflóru Lundúnaborgar. Síðan hafa þrjú brasserie, undir heitinu 28° - 50° , bæst við en þau er að finna í City, Mayfair og Marylebone. Með 120 manns í vinnu Spurður út í reksturinn í dag segir Agnar hann ganga mjög vel. (Hann bætir þó kankvís við að eflaust myndu allir svara á þessa leið). Í heild starfa um 120 manns á stöðunum fjórum, þar af 30 bara á Texture. „Á öllum okkar stöðum hefur leiðin bara legið upp á við að undanförnu. Árið 2008 og helmingur 2009 voru kannski svolítið erfið, enda dróst saman alls staðar, en eftir það hefur allt verið upp á við. Michelin-stjarnan breytti líka miklu þegar hún kom til 2010,“ segir hann. Þegar blaðamaður spyr hvort Agnar sjái jafnvel fyrir sér að hefja einhvern rekstur hér á landi í framtíðinni verður hann eilítið sposkur. „Það getur vel verið að eitthvað sé í plönunum, en ég get ekki talað um það.“ Eitt er víst, að Agnar kann vel við sig í London og hyggst halda sig þar enda nóg að gera. Hann kemur þó reglulega heim enda á hann dóttur hér á landi. Reynir hann líka að kíkja í laxveiði hér á sumrin og er ein slík ferð í bígerð. „Ég ætla að koma með Blanc í veiði hér í sumar, það verður í fyrsta sinn sem hann kemur hingað,“ segir Agnar léttur að endingu og er rokinn. AGNAR SVERRISSON Á TEXTURE RESTAURANT Í LUNDÚNUM Mikil vinna að baki góðu gengi SJÖ ÁR ERU SÍÐAN AGNAR SVERRISSON OPNAÐI TEXTURE RESTAURANT Í LONDON, MEÐ SAMSTARFSFÉLAGA SÍNUM XAVIER ROUSSET. SÍÐAN HEFUR LEIÐIN NÁNAST LEGIÐ SLEITULAUST UPP Á VIÐ, MICHELIN-STJARNA FALLIÐ ÞEIM Í SKAUT, AUK ÞESS SEM ÞEIR HAFA EINNIG OPNAÐ ÞRJÚ BRASSERIE TIL. AGNAR ÞAKKAR MIKILLI VINNU VELGENGNINA AUK ÞESS SEM HANN BÝR AÐ ÞVÍ AÐ HAFA STARFAÐ HJÁ RAYMOND BLANC. Gunnhildur Ásta Guðmundsdóttir gunnhildur@mbl.is Eldaður graflax, ásamt meðlæti, að hætti Texture Restaurant. Agnar Sverrisson Úr veitingasalnum á Texture Restaurant en hann tekur 50 gesti í sæti. Graflax að hætti Texture Restaurant
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.