Morgunblaðið - 09.05.2014, Qupperneq 44
44 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. MAÍ 2014
Miðstöð íslenskra bókmennta hef-
ur nú úthlutað 6 milljónum króna
til 19 þýðingaverkefna. Alls bár-
ust 29 umsóknir frá 15 aðilum.
Sótt var um 15,3 milljónir króna.
Meðal þeirra verka sem hlutu
þýðingarstyrki í ár eru Bréfabók-
in eftir Mikhail Shishkin í þýð-
ingu Áslaugar Agnarsdóttur sem
Bjartur gefur út, Dear Life eftir
Alice Munro í þýðingu Silju Að-
alsteinsdóttur sem Forlagið gefur
út, Saga Pelópseyjarstríðsins eft-
ir Þúkýdídes í þýðingu Sigurjóns
Björnssonar sem Sögufélag gefur
út, Sensei no kaban eftir Hiromi
Kawakami í þýðingu Kristínar
Jónsdóttur sem Bjartur gefur út,
Burial Rites eftir Hannah Kent í
þýðingu Jóns St. Kristjánssonar
sem Forlagið gefur út, La inven-
ción de Morel eftir Adolfo Bioy
Casares í þýðingu Hermanns
Stefánssonar sem 1005 gefur út,
To the Lighthouse eftir Virginu
Woolf í þýðingu Herdísar Hreið-
arsdóttur sem Ugla gefur út, Yu-
nost (Manndómsár) eftir Lev
Nikolajevíutsj Tolstoj í þýðingu
Áslaugar Agnarsdóttur sem Ugla
gefur út, Úrvalsljóð (vinnutitill)
eftir Shuntaro Tanikawa í þýð-
ingu Gyrðis Elíassonar sem
Dimma gefur út, Eleanor & Park
eftir Rainbow Rowell í þýðingu
Mörtu Hlínar Magnadóttur sem
Bókabeitan gefur út, Bartleby
the Scrivener – A Story of Wall
Street eftir Herman Melville í
þýðingu Rúnars Helga Vign-
issonar sem Þýðingarsetur Há-
skóla Íslands gefur út og La Fete
de l‘insignifiance eftir Milan
Kundera í þýðingu Friðriks
Rafnssonar sem Forlagið gefur
út.
6 milljónir til þýð-
inga á 19 verkum
Alice Munro
Lev Tolstoj
Mikhail Shishkin
Virginia Woolf
Eftir að hafa gefið Lista-safni Árnesinga á fimmtatug málverka árið 1963,vaknaði Bjarnveig
Bjarnadóttir til vitundar um að þar
á meðal voru engin verk eftir konur.
Hún bætti því um betur á 8. ára-
tugnum og hóf að færa safninu að
gjöf verk m.a. eftir Björgu Þor-
steinsdóttur, Ragnheiði Jónsdóttur
og Þorbjörgu Höskuldsdóttur og
ýmsar fleiri. Frá þessu segir í skrá
sýningarinnar Nútímakonur á verk-
um Bjargar, Ragnheiðar og Þor-
bjargar sem allar eru enn virkar í
myndlistinni. Þær sýna ný verk í
samspili við eldri verkin frá 8. ára-
tugnum, en sá áratugur hefur verið
kallaður „kvennaáratugurinn“
vegna femínískrar vakningar sem
þá varð víða um heim, eins og sýn-
ingarstjórinn Hrafnhildur Schram
leggur áherslu á. Heiti sýningar-
innar vísar m.a. til þess að konum
fjölgaði í fremstu röð íslenskra
myndlistarmanna – og með framlagi
listamanna eins og Bjargar, Ragn-
heiðar og Þorbjargar komu fram
nýjar tjáningarvíddir í íslenskri
myndlist. Þá fengust þær allar á ár-
um áður við grafík, en sá miðill
blómstraði einmitt mjög á 8. ára-
tugnum. Í sýningarborðum eru
einnig úrklippur og ýmsar heimildir
tengdar ferli þeirra – en þó er ekki
lögð áhersla á að sýna þróun í verk-
um þeirra heldur er fremur um að
ræða þrjár aðskildar „einkasýn-
ingar“ á nýjum verkum í þremur
sölum. Það er svo í litla millisalnum
og í hinu almenna safnrými sem
eldri verk þeirra mynda beint sam-
tal. Nýju verkin eru afar ólík; Björg
málar á óhlutbundnum nótum,
Ragnheiður sýnir stórar, mynst-
urkenndar kolateikningar og Þor-
björg vísar til landslags og bygging-
arlistar í fígúratífum málverkum –
en allar eru þær í samræðu við nátt-
úruna og fyrirbæri hennar.
Björg sýnir nokkurn fjölda mál-
verka í stóra salnum. Smærri verk-
in eru flest frá 2009 með þéttskip-
uðu mynstri mismunandi litalaga
sem skapar skemmtileg sjónræn
áhrif. Nýjustu verkin eru stórar af-
straktsjónir sem sumar tengjast
hughrifum af vori eða hafinu. Björg
fer vel með fínleg blæbrigði past-
ellita í þessum verkum; má þar
nefna „Sjávarrím“. Dýpri litir sjást í
verkum sem hún kennir m.a. við
stef en stundum taka verkin dálítið
hvert frá öðru þar sem þau hanga
þétt saman, a.m.k. ná þau ekki að
mynda nægilega dýnamískt samspil.
Kolamyndir Ragnheiðar eru unnar
af öryggi og næmni og eru þær
sýndar í salnum innst vinstra meg-
in. Þar er upphengingin líka þétt en
hér skapar hún kröftug heildar-
áhrif. Hið fallega verk „Storð 1“
nýtur sín þó líka vel þar sem það
hangir stakt á vegg. Hinum megin í
salnum og á vegg hjá kaffistofunni
sjást eldri grafíkmyndir Ragnheiðar
(úr eigu Listasafns Reykjavíkur),
þekktar myndir frá lokum 8. ára-
tugarins og eru verkin hluti af
kvennabaráttunni þegar hún stóð
sem hæst. Í innsta salnum sýnir
Þorbjörg fjölda nýrra verka og þar
sést að hún er á kunnuglegum slóð-
um í hugleiðingum um samband
manns og náttúru. Form og litbrigði
landsins verða í verkum hennar
kveikjur að fantasíukenndum pæl-
ingum þar sem manngerður arki-
tektúr fléttast saman við landið: flís-
ar vaxa út úr fjallsrótum, eða er það
öfugt; rísa fjallasalir upp af flísa-
lögðum gólfum? Verkið „Rýkur
rauðmöl“ sker sig úr fyrir þær sakir
að þar ber lítið sem ekkert á mann-
gerðum formum – þótt vitaskuld sé
landslagssýnin bundin mannlegu
sjónarhorni.
Í millisalnum og við inngang
safnsins sjást eldri verk listamann-
anna, frá 8. og 9. áratugnum, þ.á m.
verk úr safneigninni en einnig verk
fengið að láni annars staðar frá.
Tenging þessara verka við þá póli-
tísku vitund sem gjarnan er kennd
við „kvennaáratuginn“ er ekki alltaf
ljós. Verk Þorbjargar má mörg hver
skilja sem hugleiðingu um það
hvernig maðurinn þjarmar að nátt-
úrunni og hægt er að túlka verkið
„Jarðelda“ í því samhengi. Einnig
má lesa í aðþrengda stöðu kvenna
út frá verki Bjargar, „Málverk II“,
frá 1973. Það er helst í úrklippum í
sýningarborðum sem unnt er að
glöggva sig á afstöðu þeirra til bar-
áttumála, ekki síst í verkum sem
birt voru á forsíðu sunnudagsblaðs
Þjóðviljans um árabil.
Sýningin Nútímakonur felur
þannig í sér enduróm af fortíð en
gildi hennar er ekki síst fólgið í því
að varpa ljósi á listsköpun í núinu
og á framlag Bjargar Þorsteins-
dóttur, Ragnheiðar Jónsdóttur og
Þorbjargar Höskuldsdóttir til ís-
lenskrar samtímamyndlistar – sem
er verðugt framtak út af fyrir sig.
Nútímakonur Björg Þorsteinsdóttir, Ragnheiður Jónsdóttir og Þorbjörg Höskuldsdóttir.
Þrjár konur, þá og nú
Listasafn Árnesinga,
Hveragerði
Nútímakonur – Björg Þorsteinsdóttir,
Ragnheiður Jónsdóttir, Þorbjörg
Höskuldsdóttir
bbbmn
Til 11. maí 2014. Opið alla daga kl. 12-18.
Aðgangur ókeypis. Sýningarstjóri:
Hrafnhildur Schram.
ANNA JÓA
MYNDLIST
Svefn Verk eftir Björgu.
Menningarhátíðin Kópavogsdagar
hófst í gær í Kópavogi og voru m.a.
haldnir pönktónleikar á skemmti-
staðnum Spot um kvöldið þar sem
fram komu tónlistarmenn úr fram-
varðarsveit ensks og íslensk pönks:
Glen Matlock, bassaleikari Sex Pist-
ols, Fræbbblarnir og Q4U. Pönk-
veislan heldur áfram á morgun kl.
14 í Molanum, Hábraut 2. Þar troða
upp ungar og efnilegar hljómsveitir
auk hinna sjóuðu Fræbbbla, hljóm-
sveitirnar PungSig, Skerðing, Fjöl-
tengi og Bossbarajamm.
Pönk Valgarður Guðjónsson og félagar í
Fræbbblunum leika í Molanum.
Meira pönk á
Kópavogsdögum
Morgunblaðið/Ernir
Annar árgangur
tímaritraðar-
innar 1005 verð-
ur gefinn út á
morgun og verð-
ur haldin út-
gáfuhátíð á BSÍ
af því tilefni kl.
16. Þótti umferð-
armiðstöðin
kjörinn vett-
vangur fyrir
þennan árlega viðburð og þá m.a. í
ljósi þema heftisins, „Styttri ferð-
ir“, eins og segir í tilkynningu. Nýj-
asta hefti 1005 telur 400 bls. og má
á þeim m.a. finna safn ferðaþátta
eftir dularfullan hóp höfunda og
þýðenda, erlendra og innlendra, og
smásagnasafn eftir Braga Ólafsson.
Á útgáfuhátíðinni verður boðið upp
á léttar veitingar og upplestur og
mun Óskar Árni Óskarsson m.a.
lesa ljóð um BSÍ og ópusinn „Styttri
ferðir“ eftir Jón Hall Stefánsson
verður frumfluttur.
Útgáfuhátíð 1005
haldin á BSÍ
Jón Hallur
Stefánsson