Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.05.2014, Síða 12

Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.05.2014, Síða 12
Valdís Gunnarsdóttir segistval-Dalamaður; hún kýssem sagt að búa þar en er uppalin í höfuðborginni og segist dæmigerð miðbæjarrotta. Ásdís Melsteð er hins vegar innfædd í Búðardal en saman hafa þær tekið að sér veitingarekstur í Leifsbúð þar í bæ. Veitingastaður hefur lengi verið rekinn í Leifsbúð yfir sumartímann en nýlega var samið við þær stöll- ur um að reka kaffihús þar allan ársins hring. „Þetta er ekki í al- faraleið en túrisminn hefur aukist gífurlega á síðustu árum; aukn- ingin er með ólíkindum. Fáir eru á ferð í janúar og febrúar en aðra mánuði eru mjög margir ferða- menn á svæðinu,“ segir Valdís. Í Leifsbúð, sem stendur niðri við höfnina í Búðardal, hefur verið ým- iskonar starfsemi í gegnum árin. Húsið var byggt 1899 undir versl- un og Bogi Sigurðsson var þar lengi kaupmaður. Síðar var Kaup- félag Hvammsfjarðar þar um ára- bil með verslun og er húsið einmitt kallað Gamla kaupfélagið af mörg- um heimamanninum. Eftir endurbætur var húsið formlega tekið í notkun á nýjan leik fyrir tæpum áratug og heitið Leifsbúð tekið upp. Skömmu áður hafði landafundanna verið minnst og Leifur heppni mönnum ofarlega í huga. Í húsinu er landafundasýn- ing, upplýsingamiðstöð fyrir ferða- menn og „lítið, kósí kaffihús,“ sem Ásdís og Valdís reka. „Það á að verða skemmtilegt mótvægi við vegasjoppur.“ Valdís hefur komið víða við og bjó erlendis í tíu ár frá aldamótum „Mig óraði ekki fyrir því þegar ég flutti heim 2010 að ég ætti eftir að flytja út á land, en maðurinn minn, sem er dýralæknir og hafði unnið hjá Matvælastofnun, vildi breyta til og fékk starf hér.“ Þau höfðu engin tengsl vestur í Dali en þegar spurt er hvernig henni líkar er Valdís fljót til svars: „Æðislega! Mér finnst stórkost- legt að kynnast því að búa á svona stað. Það sem mest er um vert er að hér er miklu minni efnishyggja en fyrir sunnan og það er alveg dásamlegt að vera laus við slíkt.“ Hún segir þær Ásdísi ekki fara út í rekstur kaffihúss til þess að verða ríkar heldur til að láta gott af sér leiða í fallegu húsi. Þær vilji taka þátt í að gæða fallegt hús lífi. „Ég hafði aldreið komið inn á kaffi- eða veitingahús nema sem gestur áður en við tókum við hér! En þetta er skemmtilegt.“ Laxdæla er allt um lykjandi fyr- ir vestan „og mig langar að gera meira úr henni fyrir ferðamenn. En það er ekki bara Laxdæla; Sturlungar voru hér og Hallgerður langbrók fæddist á svæðinu. Hér í Dölunum drýpur sagan af hverju strái.“ Valdís segir Ameríkana koma í pílagrímsferðir á slóðir Leifs heppna en „Íslendingar virðast al- mennt ekki hafa jafn mikinn áhuga. Það er merkilegt að Am- eríkanar eru hér á ferð allan ársins hring og hópast að Eiríksstöðum.“ BÚÐARDALUR „Hér í Dölunum drýpur sagan af hverju strái“ LAXDÆLA ER ALLT UM LYKJANDI Í DÖLUNUM EN NÝR VERT Í LEIFSBÚÐ VILL GERA MEIRA ÚR SÖGUNNI. Fagurt er í Búðardal, ekki síst í rjómablíðu eins og verið hefur undanfarið. Leifsbúð er niðri við höfnina, lengst til vinstri. Ljósmynd/Sigrún Pálmadóttir Ásdís K. Melsteð, til vinstri, og Valdís Gunnarsdóttir í Leifsbúð. Ljósmynd/Sigrún Pálmadóttir „Ferðamönnum sem á Snæfellsnesið koma fjölgar jafnt og þétt,“ segir Lydía Fannberg Gunnarsdóttir. Hún stendur að rekstri Kast Guest- house að Lýsudal í Staðarsveit á sunnanverðu Snæfellsnesi. Nú er verið að stækka gistiheimilið, þar eru fyrir 16 gistiherbergi og stór sal- ur en með viðbyggingu bætast ellefu herbergi við. Ekkert er því til fyrirstöðu að taka megi viðbótina í gagnið í júní, eins og áformað hefur verið. Bygg- ingin er úr steyptum einingum sem koma frá BM-Vallá. „Það eru fleiri að byggja upp gisti- þjónustu eða aðstöðu fyrir ferða- menn hér á svæðinu og það veitir ekkert af slíku,“ segir Lydía. Hún rekur einnig hestaleigu og tjald- svæði og þykir aðstaðan þar vera al- veg til fyrirmyndar. sbs@mbl.is STAÐARSVEIT Fleiri herbergi í Lýsudal Framkvæmdir við stækkun Kast Guesthouse eru í fullum gangi. Landið og miðin SKAPTI HALLGRÍMSSON skapti@mbl.is UM ALLT LAND RAUFARHÖFN Þekkingarnet Þingeyinga í aufarh og B leit háskól Raufarh og snýs kort af bæn „Viðkomandi þarf vinnubrögð og vera krefjandi verkefni.“ SELFOSS Á Sunnlenska sveitadeginu Selfossi í dag, laugardag 3. milli kl 15 og 16 mun Böð Pálsson á Búrfelli bjóða u hvítan kvígukálf sem Guð Jónsdóttir bóndi á Læk án minningar um mann sinn sem lést úr krabbameini í fyrra frá eiginkonu og fjórum b alhvítur og eru slíkir gripi uppboðinu rennur til umb göngudeildar krabbamein Heilbrigðisstofnun Suðurl AKUREYRI Nýr Lambi, skáli Ferðafélags Akureyrar, er nú kominn á sinn stað á Glerárdal í stað þess gamla. Húsið var smíðað á Akureyri og flutt í tveimur hlutum; meginskálinn á miðvikudaginn og forstofan daginn eftir. H REYKHÓLAR Fjórða barnið bættist í hópinn hjá Báru Borg Smáradóttur og Bjarka Stefáni Jónssyni á Gróustöðum við Gilsfjörð þann 14. apríl, að r segir á Reykhólavefnum. Það var úlka en bræður hennar eru Sumarliði Gilsfjörð, 8 ára, Smári Gilsfjörð, 5 ára, og r Gilsfjörð, tveggja og hálfs árs. Þessi í Reykhólahreppi er nítján Margrétar í Borg í Reykhó fimmtán þeirra búsett í R * Er ekki farið að örla á elli þegar maður vaknarfyrir allar aldir einungis til þess að pissa oglesa blöðin? Spyr sá sem ekki veit. Hallgrímur Ólafsson leikari spyr stórt á Facebook. 12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4.5. 2014

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.