Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.05.2014, Blaðsíða 50
50 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4.5. 2014
20 Candy.com - $3.000.000
Árið 2009 keypti fyrirtæki sem
kallast G&J Holding lénið Candy-
.com fyrir þrjár milljónir dollara. Í
fréttatilkynningu frá félaginu sagði
að lénið myndi hýsa vefverslun
með sælgæti. Hér skyldi ekki
möndlað með bland í poka fyrir
klink. Á vefnum má finna ýmislegt
tengt sætindum, ekki síst mynd-
arlegt úrval af ýmiss konar köku-
skrauti, svo sem fyrir brúðkaups-
tertur, en einnig má kaupa sælgæti
eftir litum eða tengt ákveðnum há-
tíðisdögum. Fyrirtækið varð þó
fyrir töluverðum búsifjum þegar
Google tók lénið af skrá yfir lén
sem það fylgist með sökum óprútt-
inna tilrauna til þess að hafa áhrif
á leitarvélar Google. En gott lén er
Google betra. Eða því sem næst.
19 Whiskey.com - $3.100.000
Ef það er hægt að versla með sæl-
gæti á netinu, þá er líklega allt
eins hægt að versla með áfengi.
Þýskt fyrirtæki sem sérhæfði sig í
sölu á þeim görótta drykk viskíi,
keypti lénið fyrir rúmar þrjár
milljónir dollara í byrjun þessa árs.
Það hafði þá verið í eigu Banda-
ríkjamannsins Michael Costello frá
því hann skráði það fyrstur árið
1995, þegar það kostaði ekkert að
skrá lén. Það má reyndar fylgja
sögunni að Costello krafðist þess
að fá meira en þrjár milljónir doll-
ara fyrir lénið, eingöngu vegna
þess að árið 2006 hafði lénið
Vodka.com verið selt fyrir þrjár
milljónir sléttar.
18 Altavista.com - $3.300.000
Áður en Google kom til sögunnar
var Alta Vista ein öflugasta leit-
arvélin sem í boði var á netinu.
Tæknirisinn Compaq keypti fyr-
irtækið Alta Vista árið 1998.
Skömmu síðar rann upp fyrir
stjórnendum Compaq að lénið
Altavista.com hafði ekki fylgt með í
kaupunum, enda var stofnandi Alta
Vista sjálfur skráður fyrir léninu.
Compaq neyddist því til að semja
um kaup á léninu sérstaklega. Lén-
ið er ekki lengur virkt, en beinir
umferð inn á leitarvél Yahoo.com.
17 Mi.com - $3.600.000
Kínverski síma- og raftækjafram-
leiðandinn Xiaomi keypti lénið Mi-
.com til þess að freista þess að ná
frekari fótfestu á Vesturlöndum
með styttra og einfaldara nafni.
Samhliða kaupunum hóf það að
markaðssetja vörur sínar undir
nafninu Mi, fremur en Xiaomi. Mi
þýðir hrísgrjón á kínversku, svo
kannski er möguleiki að fylgja í
fótspor Candy.com og Whi-
skey.com ef harðnar í ári á raf-
tækjamarkaði.
16 Yp.com - $3.850.000
Það var 2008 sem Yellowpages.com
keypti lénið Yp.com til að hýsa
starfsemi sína. Yp.com hafði þá
þegar talsverða traffík fólks sem
taldi þetta vera lénið fyrir gulu síð-
urnar.
15 Giftcard.com - $4.000.000
Það kemur á óvart, en viðskipti
með gjafakort velta milljörðum
dollara á hverju ári. Eigandi Gift-
cardlab.com taldi víst að lénið Gift-
card.com yrði fjárfesting sem
kæmi til með að skila sér fljótt,
enda gerðu viðskiptaáætlanir hans
ráð fyrir 100% vexti fyrirtækisins
milli ára í kjölfar kaupanna, þrátt
fyrir afborganir af léninu.
14 iCloud.com - $4.500.000
Þegar Apple hóf að markaðssetja
skýjaþjónustu sína, iCloud, þurfti
að sjálfsögðu að finna lén í sam-
ræmi. Það mætti segja að Apple
hafi að vissu leyti verið búið að
sýna spilin með stórri vörulínu af
iVörum, s.s. iPad, iPhone og svo
framvegis. Það er því líklegt að
lénasafnarar hafi þegar verið búnir
að skrá megnið af lénum sem byrja
á iEitthvað í von um að Apple
fyndi not fyrir það seinna. Þetta
lén var þó áður í eigu sænsks fyr-
irtækis sem sérhæfir sig í skýja-
lausnum
13 Asseenontv.com - $5.000.000
Mikill er máttur sjónvarpsins. Svo
mikill raunar að lénið Asseenontv-
.com var selt á fimm milljónir doll-
ara til þess að hala inn á vörulín-
una As Seen on TV, sem er nær
eingöngu markaðssett í gegnum
sjónvarp, í alþekktum kynning-
armyndböndum.
12 Toys.com - $5.100.000
Það var leikfangarisinn ToysRUs
sem keypti þetta lén á uppboði árið
2009 til þess að leysa af hómi lénið
Toysrus.com sem það hafði áður
Sýnileikinn kostar
LÍKT OG AÐRAR FASTEIGNIR GANGA LÉN KAUPUM OG SÖLUM. SUMUM KANN REYNDAR
AÐ FINNAST SKRÝTIÐ AÐ TALA UM LÉN SEM FASTEIGN, EN ÞEGAR MAÐUR HUGSAR UM
ÞAÐ SEM HEIMILISFANG Á NETINU, ÞÁ ER SAMLÍKINGIN EKKI FJARRI LAGI. ALLIR VILJA
STAÐSETJA SIG ÞAR SEM VIÐSKIPTAVININA ER AÐ FINNA, LÍKT OG GERIST OG GENGUR Í
ALMENNRI SMÁSÖLU. OG ALVEG EINS OG GOTT VERSLUNARHÚSNÆÐI ER DÝRT, ÞÁ
GETUR GOTT LÉN KOSTAÐ SKILDINGINN. EN ÞAÐ ER MARGT FORVITNILEGT AÐ FINNA
EF SKOÐUÐ ER SAGA DÝRUSTU LÉNA SÖGUNNAR. HÉR GETUR AÐ LÍTA LISTA YFIR ÞAU
20 LÉN SEM KOSTAÐ HAFA MESTA PENINGA FRAM TIL ÞESSA.
Sveinn Birkir Björnsson sveinnbirkir@gmail.com
20 DÝRUSTU LÉN SÖGUNNAR
PI
PA
R\
TB
W
A
•
SÍ
A
•
1
4
1
1
4
6
*Heimkeyrsla innan höfuðborgarsvæðisins á virkum
dögum milli kl. 9–18.
GRILLSUMARIÐ
ERHAFIÐ
Verðlaunagrillin frá Char-Broil búa yfir
nýju TRU-Infrared tækninni sem gerir
þér kleift að grilla í hvaða veðráttu sem
er. Grillin eru afgreidd samsett og keyrð
heim til kaupanda ef óskað er.*
REYKJAVÍK • Fiskislóð 1 • Sími 580 8500 • mánud.–föstud. 10–18 • laugard. 10–16 / ellingsen.isAKUREYRI • Tryggvabraut 1-3 • Sími 460 3630 • mánud.–föstud. 10–18 • laugard. 10–16 •
100% JAFN HITISAFARÍKARI
MATUR
BETRI STJÓRN
Á HITA
0:00
STYTTRI
ELDUNARTÍMI
Í ALLRI
VEÐRÁTTU
MINNI
GASNOTKUN
ENGAR
ELDTUNGUR