Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.05.2014, Blaðsíða 28
Sigurjón myndar efnismassa úr svepparótum sem hægt er að nýta sem efnivið í ýmsan iðnað.
„Ég er að rækta rætur ostru-
svepps. Með því móti mynda
ég efnismassa sem hægt er að
nýta sem efnivið í ýmsan iðn-
að. Svepparæturnar þurfa nær-
ingu til þess að vaxa en ég nýti
mér aukaafurðir úr íslenskum
iðnaði við ræktunina. Hálmur,
bygg og sag er afskaplega hent-
ugt hráefni. Hér smita ég bygg af svepparótum og
kem þeim fyrir í mótum. Þar sem ræturnar vaxa
og á nokkrum dögum mynda efnismassa sem er
síðan þurrkaður og drepinn. En með því móti
hættir hann t.d. að vaxa, harðnar og verður lykt-
arlaus,“ segir Sigurjón sem hannaði verkið Fungi.
Sigurjón segir efnið sérlega sterkt miðað við
hversu létt það er, vel eldþolið og einangrandi.
„Ég hafði áhuga á náttúrlegum hráefnum sem
hægt er að nýta í fjöldaframleiðslu og byrjaði á
að skoða hvernig náttúran endurnýjar sig, þar
gegnir sveppurinn mikilvægu hlutverki. Svepp-
urinn brýtur niður lífefnasambönd sem eru að
visna eins og laufblöð og tré eða bygg og nýtir
sem næringu og býr til næringarríkan jarðveg fyr-
ir aðrar plöntur,“ segir Sigurjón og bætir við að
þannig endurnýjar sveppurinn náttúruna að vissu
leyti. Svepparætur vaxa hratt og dreifa sér víða,
þessi virkni sveppsins er ein af undirstöðum
hringrásar í náttúrunni og er framleiðsluaðferðin
við gerð efnisins innblásin af þessari hringrás
sveppa.
SIGURJÓN AXELSSON
Býr til efnismassa úr svepparótum
Sigurjón smitar bygg af svepparótum og kemur þeim
fyrir í mótum. Þar vaxa ræturnar og á nokkrum dög-
um mynda þær síðan efnismassa.
Sigurjón Axelsson
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4.5. 2014
Heimili og hönnun
„Upprunalega spratt
hugmyndin upp frá salt-
lömpum. Ég fór á Reyk-
hóla og kynnti mér
hvernig saltið er búið til
þar og það sem mér
þótti hvað áhugaverðast
var afgangssaltið, hvern-
ig ég gæti nýtt þessa
aukaafurð,“ segir
Thelma Hrund sem hannaði umhverf-
isvæna sápau úr staðbundnum efnivið frá
Reykhólum.
Thelma nýtti sér heita vatnið á Reykhól-
um á þrjá vegu í útskiftarverkefni sínu við
þörungavinnslu, saltgerð og í sápugerð.
„Ég var að reyna að nýta hráefni stað-
arins eins vel og ég gat og nú er ég komin
með vöru sem ég get haldið áfram að
vinna í. Saltið er upphaf vörunnar og mig
langar að halda áfram að vinna út frá salt-
inu og þar eru endalausir möguleikar.“
Salt og þörungar henta vel til sápugerð-
ar. Saltið er sótthreinsandi og mýkir húð-
ina og þörungarnir eru taldir koma í veg
fyrir óæskilega öldrun húðar. Thelma sér fram á að vinna áfram að verkefninu enda býður saltið upp á mikla möguleika.
THELMA HRUND BENEDIKTSDÓTTIR
Endalausir möguleikar í saltinu
Salt og þörungar henta vel til sápugerðar.
Thelma Hrund
Benediktsdóttir
ÞÍN STUND
ÞINN STAÐUR
TIMEOUT HÆGINDASTÓLL
Sumartilboð
kr. 322.980
með fótskemli
TIMEOUT ER FÁANLEGUR Í MÖRGUM ÚTFÆRSLUM