Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.05.2014, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.05.2014, Blaðsíða 64
SUNNUDAGUR 4. MAÍ 2014 „Við erum að fjárfesta í nýju húsnæði sem verður þá höfuð- stöðvar okkar, vinnuaðstaða þar sem við spilum, tökum upp og höngum saman,“ segir Georg Hólm, meðlimur hljómsveit- arinnar Sigur Rósar, en þeir félagar sveitarinnar hafa keypt um 200 fermetra húsnæði í póstnúmeri 101, nánar tiltekið á Granda. Húsnæðið ætla þeir félagar að sníða að eigin þörfum og brátt munu smiðir taka þar til óspilltra málanna við framkvæmdir. Þeir félagar höfðu hins vegar ekki eirð í sér að bíða eftir iðn- aðarmönnum á svæðið og tóku sig því til, settu á sig hjálma og fóru í að brjóta niður veggi. Georg segir að þeir muni þó láta fagmenn um restina. „Það er frábært að vera þarna miðsvæðis, það er svo mikil uppbygging sem á sér stað þarna, fullt af kaffihúsum og félagar okkar úr öðrum hljómsveitum.“ Hress hljómsveit í framkvæmdaham gat ekki beðið eftir iðnaðarmönnum og ákvað að gera það sem þeir gátu. SIGUR RÓS Í FRAMKVÆMDUM Kaupa hús- næði á Granda Jónsi í Sigur Rós tók til við að rífa niður veggi í nýja húsnæðinu á Granda ásamt félögum sínum. Í 400 ár hafa nemar við súmó- glímuskólann í Tókýó tekið þátt í Nakizumo-hátíðinni þar sem þeir fá ungbörn til að gráta. Hefðin byggist á málshættinum Naku ko wa sodatsu sem þýðir Börn sem gráta stækka mest. Japanskir for- eldrar trúa því að gráturinn á há- tíðinni færi barninu góða heilsu og hreki burt djöfla og aðrar óvættir. Súmókapparnir, tveir og tveir saman, velja sér hvor sitt barn, stíga inn í hringinn og byrja að gretta sig, framleiða hávaða og rykkja börnunum til og frá. Allt er gert til að fá barnið til að gráta enda er þetta keppni. Á meðan standa foreldrarnir fyrir utan og vonast eftir miklum öskrum. Dóm- arinn ákveður hvort barnið grætur fyrr og það barn sem brestur í grát á undan kemst áfram í næstu umferð. Fari svo að börnin fari að gráta á sama tíma vinnur barnið sem grætur hærra. Fari hins veg- ar svo að hvorugt barnið gráti við grettur og fettur súmónemanna dregur dómarinn upp djöflagrímu og öskrar „naki“ sem þýðir grátur. Flestir foreldrar ættu að þekkja að djöflagrímur koma flestum börnum til að gráta – jafnvel þótt þau séu innan við eins árs gömul. FURÐUR VERALDAR Góður grátur gulli betri Keppnin fer fram ár hvert við Sensoji-musterið í Tókýó. Gráturinn er sagð- ur hindra að slæmir andar komi nálægt þeim í nánustu framtíð. AFP ÞRÍFARAR VIKUNNAR Gerard Butler sem Leonidas konungur úr kvikmyndinni 300. Arda Turan knattspyrnumaður. Björgvin Sigurðsson söngvari Skálmaldar. Ótakmarkað fyrir alla fjölskylduna með RED Family Með RED Family fá allir í fjölskyldunni ótak- mörkuð símtöl og SMS óháð kerfi í alla farsíma og heimasíma á Íslandi. Allir samnýta gagnamagnið og fjölskyldan fær einn símreikning. Skiptu yfir í Vodafone RED á vodafone.is Vodafone Góð samskipti bæta lífið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.