Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.05.2014, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.05.2014, Blaðsíða 39
4.5. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 39 *Netið er frábært því það heldur heimskufólki innandyra en ekki úti meðal fólks.Douglas Coupland – rithöfundur Fyrir tíma Grand turismo og Grand theft auto var einn fyrsti ökuhermirinn á markaðnum Tomy turbo sem kom út 1983. Fjölmörg íslensk börn fengu ökuherminn í jólagjöf á níunda ára- tugnum og reyndist hann góð barnapía og var endingargóður. Hermirinn var með stýri, hraðamæli, lykil til að kveikja á tækinu, bensínmæli, fjóra gíra og kílómetramæli til að mæla ferðina. Eftir að lyklinum var snúið kviknaði á leiknum og bíllinn var tekinn úr hlutlausum gír, settur í þann fyrsta og af stað ók hann. Eina markmiðið var að halda bílnum inni á veginum. Tré voru fyrir utan veginn en þau gerðu ekkert ef stýrinu var snúið til að keyra á þau. Þau þjónuðu í raun engum tilgangi nema til skrauts. Aðrir bílar voru einnig á veginum en hægðu ekkert á bílnum ef ekið var á þá. Hljóðið sem hermirinn gaf frá sér var suðandi tikk og hefur trúlega gert marga foreldra gráhærða. Ef tækið fraus, sem gat auð- veldlega gerst, dugði oft að slá aðeins ofan á skjáinn og bíllinn fór af stað á ný. Nintendo kom síðan á markað 1985 og setti ný viðmið í tölvuleikjum með Super Mario og öðrum leikjum. Tölvuspil og hvað þá ökuherm- ar áttu erfitt uppdráttar eftir það. GAMLA GRÆJAN Tomy turbo-ökuhermir Tomy turbó-ökuhermir var fyrsti ökuhermirinn til að koma í sölu árið 1983. Notaði 4D-risarafhlöður til að knýja leikinn. Hewlett-Packard, Google, Amazon, Microsoft og Apple eiga fleira sameinlegt en að vera öflugir tækniris- ar. Öll fyrirtækin byrjuðu nefnilega í bílskúr. Steve Jobs og Steve Wozniak stofnuðu Apple í bílskúrnum hjá foreldrum Jobs 1976 þegar Jobs var 21 árs og Wozniak 26 ára. Þeir smíðuðu 50 fyrstu eintök- in af Apple 1-tölvunni í skúrnum. Jeff Bezos stofnaði Amazon í skúrnum heima hjá sér árið 1994. 20 árum síðar er Amazon stærsti smásali veraldarvefjarins. Bill Hewlett og Dave Packard byrjuðu sína starf- semi hjá Hewlett-Packard í bílskúr í Palo Alto árið 1939. Skúrinn er af mörgum talinn fæðingarstaður frumkvöðlastarfsins sem fer fram í Kísildal eða Silicon Valley á hverju ári. Þeir Paul Allen og Bill Gates stofnuðu Microsoft í bílskúr árið 1975 þar sem þeir skrifuðu forrit fyrir Altair-tölvur. Síðan er mikið vatn runnið til sjávar. Í bílskúrnum hjá Susan Wojcicki árið 1998 voru tveir ungir menn, Larry Page og Sergey Brin, að leika sér að forrita. Bjuggu til Google, fannst það flott og reyndu að selja það til Excite á eina milljón dollara. Því boði var hafnað þannig að þeir héldu áfram að leika sér. Restina af sögunni þeirra þekkja líklega flestir. TÖFF TÆKNISTAÐREYND Byrjuðu öll í bílskúrum Æskuheimili Steves Jobs þar sem Apple-fyrirtækið varð til. AFP Fjórða kynslóð Roku-streymisspilarans kom á markað í lok mars og kemur nú svipað stór og USB-lykill. Roku 3 var svipað stór og venjulegur sjónvarpsflakkari og er Roku 4 svar þeirra við Google ChromeCast. Spilarinn kostar rúm- lega 10 þúsund krónur og fylgir fjarstýring með. Með appi er síðan hægt að breyta snjallsímanum í fjarstýringu fyrir spilarann. Þarf ekkert að gera annað en að taka spilarann úr umbúðunum, setja hann í HDMI-tengið aftan á sjón- varpinu og þá er hann tilbúinn. Rúmlega þúsund stöðvar má finna á spilaranum, sumar fríar en að öðrum þarf að kaupa ákrift. Má finna Netflix, Hulu Plus, HBO Go og fleiri stöðvar sem streymisspilaranotendur kannast við. Þá er einnig hægt að streyma efni frá snjallsímanum beint í sjón- varpið, myndböndum eða myndum. Apple, Google, Amazon og Samsung berjast á stofumark- aðnum með sínum streymisspilurum og snjallsjónvörpum og er Roku enn eitt valið fyrir þá sem vilja frekar velja sér dagskrá í stað þess að horfa á fyrirfram ákveðið efni. Roku-spilarinn hefur fengið fína dóma erlendis en í dómi CNN um spilarann kom fram að hann væri svolítið hæg- virkur að hlaða hverja stöð. Þegar stöðin loks kom á skjáinn kom aldrei hökt eða neitt. Biðin var hins vegar of löng að mati blaðamanns CNN. ROKU HDMI-STREYMISSPILARI Risastór veröld í litlu tæki Chromecast virkar með Android, iPhone og iPad og hefur orð á sér fyrir að vera ein- falt og þægilegt. Kost- ar 12.900 krónur. Apple TV kostar frá 15 þúsundum. Hægt að streyma úr iTunes, iPad, iPhone og iPod beint í sjónvarpið. Það er hægt að flakka um nálægt þúsund stöðvar með Roku-spilaranum. Smáralind | Sími 512 1330 Laugavegi 182 | Sími 512 1300 Au ka hl ut ad ag ar st an da til 1. m aí iPad töskur InEarheyrnartól Þráðlausirhátalarar Fartölvutöskur daa ga rs ta nd a til 1. m aí Þrá ag ar st an da til 1 m aí ðlausheyrnartól iPhonehulstur iPhonesport armbönd
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.