Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.05.2014, Blaðsíða 57
4.5. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 57
Lay Low heldur á laugar-
dagskvöld tónleika á Café
Rósenberg og hefjast þeir
klukkan 21.30. Lay Low
kemur þar fram með hljómsveit sinni
og fagnar nýrri smáskífu og mynd-
bandi við lagið „Our Conversation“.
2
Síðustu sýningar verða um
helgina á leikritinu Út-
undan í Tjarnarbíói en sýn-
ingar á þessu athyglisverða
verki hafa gengið vel á undanförnum
vikum. Það fjallar um þrjú pör sem
þrá að eignast barn en geta það ekki.
Leikstjóri er Tinna Hrafnsdóttir. Eftir
sýningu á laugardag ræða aðstand-
endur við gesti um verkið.
4
Mæðgurnar Þórunn Hjart-
ardóttir og Steinunn Eld-
flaug Harðardóttir opna á
laugardag klukkan 14 sýningu
í hinu forvitnilega sýningarými 002
galleríi, sem er á heimili í blokk í
Hafnarfirði, að Þúfubarði 17.
5
Kirkjukór Lágafellssóknar
flytur dagskrá byggða á verk-
um eftir Halldór Laxness, í
tali og tónum, í Akureyrar-
kirkju á laugardag klukkan 16. Kórinn
hefur þegar flutt dagskrána tvisvar í
Mosfellsbæ við góðar undirtektir og
ættu Norðlendingar ekki að verða
sviknir af henni. Einsöngvarar eru Mar-
grét Árnadóttir og Ívar Helgason.
3
Þessa dagana standa yfir út-
skriftarsýningar nemenda
Listaháskóla Íslands og af þeim
má enginn missa, enda ein-
hverjar skemmtilegustu sýningar sem
settar eru upp í borginni ár hvert.
BA-nemar sýna í Hafnarhúsinu en
meistaranemar í Gerðarsafni.
MÆLT MEÐ
1
geti verið gaman að því. En af og til vill
maður vera út af fyrir sig. Georgía er mitt
föðurland og þar langar mig að vera í róleg-
heitum.“
– Var gott að alast upp í Georgíu og læra
að leika á píanóið?
„Árin þegar ég var að alast upp voru erfið
í Georgíu. Við höfðum gengið gegnum stríðs-
átök og á tíunda áratugnum var efnahagslífið
afar slæmt. Svo gat verið hættulegt að vera
á ferli á götum úti. En foreldrar mínir
reyndu að fá okkur systur til að einbeita
okkur við æfingar, æfa og æfa, og við grín-
umst oft með það að við höfum á þessum ár-
um aðeins séð heimilið og tónlistarskólann!
En það var gott, þeim tókst að halda okkur
frá erfiðleikunum og áhyggjunum sem tröll-
riðu samfélaginu. Það var ekki auðvelt en
skilaði sér algjörlega, fyrir mig, því þetta
voru gjöful ár og ég lærði svo margt sem ég
byggi á í dag, ekki bara tónlistina, og ég get
þakkað foreldrum mínum það.
Þrátt fyrir vandamálin í Georgíu bjuggum
við systur við frábært atlæti og ég er til að
mynda afar þakklát fyrir að hafa fengið að
læra öll þessi tungumál, það hefur heldur
betur komið sér vel. Ég lærði fjögur mál til
16 ára aldurs og bætti svo þýskunni við þeg-
ar ég fór til náms í Vínarborg.
Þegar maður talar tungur þá tapar maður
aldrei áttum, kemst alltaf leiðar sinnar.“
Buniatishvili talar um að sig langi að eiga
einhverja aukadaga hér á landi, í kringum
tónleikana til að skoða sig um, og ef það
tekst taki hún jafnvel fjölskylduna með sér,
foreldrana og systur sína. „Ég vona að ég
hafi tíma, ég veit bara aldrei hvað gerist í
framtíðinni, bara hvað ég þarf að takast á
við í núinu,“ segir hún og flissar.
„Ég er bókuð langt fram í tímann en í júlí
tek ég mér frí! Þá leik ég bara á einum tón-
leikum og það verður í fyrsta skipti í mörg
ár sem ég hef svo lítið að gera í einum mán-
uði. Mánuður er langur tími í mínu lífi.“
„Þessi árin er ég full af orku og nýt þess að takast á við fjölbreytileg verkefni víða um lönd,“ segir píanóstjarnan Khatia Buniatishvili.
Georgíski píanóleikarinn Khatia Buniat-
ishvili kemur fram á einleikstónleikum í
Eldborgarsal Hörpu á Listahátíð í
Reykjavík í lok mánaðarins, 29. maí.
Buniatishvili er ein skærasta unga
stjarnan í klassíska tónlistarheiminum
um þessar mundir og hefur síðustu ár,
síðan hún lauk námi í Vínarborg og und-
irritaði útgáfusamning við Sony, verið á
látlausu ferðalagi landa á milli og komið
fram með virtum sinfóníuhljómsveitum,
kammersveitum og haldið einleiks-
tónleika. Þá kemur hún stundum fram
með eldri systur sinni, Gvantsa, sem
einnig er snjall píanóleikari.
Buniatishvili kom fyrst fram opin-
berlega þegar hún var sex ára gömul og
hefur sigrað í mörgum tónlistar-
keppnum.
ÖRT RÍSANDI STJARNA