Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.05.2014, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4.5. 2014
P
étur Jóhann Sigfússon,
leikari og skemmti-
kraftur, er kominn í
nýtt hlutverk sem
þáttastjórnandi. Hann
stýrir tæplega klukkutímalöngum
spjallþætti, sem heitir einfaldlega
Pétur Jóhann, og sýndur er á sjón-
varpsstöðinni Bravó á mánudags-
kvöldum til fimmtudagskvölds. Öllu
starfsfólki félagsins var sagt upp
nú nýlega en Pétur Jóhann heldur
ró sinni, enda verða ekki breyt-
ingar á högum hans og þátturinn
verður áfram á dagskrá stöðv-
arinnar.
„Það er ekki verið að skella í lás.
Bravó og Mikligarður halda áfram
en mér skilst að verið sé að leita
nýs hlutafjár,“ segir Pétur Jóhann.
„Það að vera með spjallþátt í sjón-
varpi er í eðli sínu óvissa. Maður
getur aldrei gengið að neinu vísu
með hversu lengi hann lifir. Sem
skemmtikraftur er það undantekn-
ing að menn séu í fastri vinnu.
Stjórnendur eru bjartsýnir á að
það takist að fá nýtt hlutafé og ég
er bjartsýnismaður að eðlisfari.“
Hvernig finnst þér að vinna sem
spjallþáttastjórnandi?
„Þessi þáttur á hug minn allan
og fátt annað kemst að. Það erum
við Þórður Helgi Þórðarson, félagi
minn, sem sjáum um vinnuna og
þurfum að útfæra hugmyndir okk-
ar eins fljótt og mögulegt er og
með eins lítilli fyrirhöfn og hægt er
og ekki má fara mikill tími í það.
Uppleggið er eins og við þekkjum
erlendis frá þar sem spjallþættir
eins og þessi eru á hverju kvöldi
og þáttastjórnandinn drepur tím-
ann með gamansögum og sprelli
þar til gesturinn kemur. Erlendis
eru nokkrir gestir í hverjum þætti
en við erum yfirleitt bara með einn
og engir áhorfendur eru í sal.
Þátturinn byrjar kl. hálfellefu á
kvöldin, á tíma þar sem margir
sjónvarpsáhorfendur eru að flakka
milli stöðva og vilja örugglega
margir staldra við þátt eins og
þennan. Fyrr um kvöldið hafa
fréttatímarnir einokað dagskrána
og þar er manni sagt að það sé
fremur leiðinlegt og vonlaust að
búa á þessu landi, þannig að þáttur
eins og þessi er ágætt mótvægi við
þær fréttir.“
Eins og sálfræðimeðferð
Er einhver erlendur spjall-
þáttastjórnandi sem þú lítur til við
gerð þessara þátta?
„Ég hef verið aðdáandi erlendra
spjallþátta í mjög langan tíma og
Letterman hefur alltaf verið í sér-
legu uppáhaldi hjá mér. Ég fylgist
líka ágætlega með mönnum eins og
Jimmy Fallon, Jimmy Kimmel og
fleirum. Þessi þáttur er allt öðru-
vísi en allt annað sem ég hef gert.
Það er sama hvort ég er að leika
Ólaf Ragnar í Næturvaktinni eða
einhverja aðra persónu, um leið er
ég kominn með gervi sem ég get
hengt mig á. Í þessum spjallþætti
er ég ekki með neitt haldreipi og
er bara ég sjálfur. Ég tala um hluti
sem eru að gerast í lífi mínu og
það er alveg nýtt fyrir mig að opna
mig þannig. Þetta er dálítið eins og
sálfræðimeðferð.“
Hvernig stóð á því að þú byrj-
aðir í skemmtanabransanum?
„Ég byrjaði í skemmtanabrans-
anum árið 1999, eftir að hafa starf-
að í Byggingavöruverslun Kópa-
vogs frá árinu 1992, tók ég þátt í
keppninni Fyndnasti maður Ís-
lands og eftir að hafa unnið þá
keppni réð ég mig til Íslenska út-
varpsfélagsins og var hjá því þar
til núna að ég er kominn til Stór-
veldisins.“
Hvenær uppgötvaðir þú að þú
værir fyndinn?
„Ég veit ekki hvort ég er búinn
að uppgötva það. Vinir og vanda-
menn voru mjög iðnir við að segja
mér hvað ég ætti gott með að
koma frá mér gamansömum
reynslusögum af sjálfum mér og
þegar við vinirnir hittumst þá var
ég yfirleitt sögumaður kvöldsins. Á
þessum árum var uppistand að
hefjast á Íslandi og ég var hvattur
til að reyna fyrir mér þar. Því oft-
ar sem ég var hvattur því meir
langaði mig til að láta á þetta
reyna. Ég tók því þátt í keppninni
Fyndnasti maður Íslands árið 1999
og sigraði. Ég hafði reyndar reynt
áður að skemmta opinberlega. Þá
hafði ég séð auglýsingu um uppi-
stand Steins Ármanns. Ég var í
pásu frá byggingavöruversluninni
og vann við að keyra út bjór og
þar á meðal á staðinn þar sem
Steinn Ármann átti að skemmta í
Hafnarfirði. Ég kom með bjórkassa
inn í salinn og þar var Steinn Ár-
mann staddur og ég spurði hvort
ég mætti ekki hita upp fyrir hann.
Hann sagði að ég mætti gera það.
Ég mætti um kvöldið og hitaði upp
og það hló ekki einn einasti maður.
Allir sátu með svip sem gaf til
kynna að ég væri eitthvað skrýt-
inn. Það var samt gaman að prófa.
Ég fór í keppnina Fyndnasti
maður Íslands vegna þess að mig
langaði til að vita hvort einhverjum
öðrum en fólkinu sem stóð mér
nærri þætti ég fyndinn. Þar sem
ég stóð uppi á sviði og allir hlógu
þá gerðist eitthvað innra með mér
sem heldur mér ennþá í þessu
starfi. Ég fæ alltaf mjög mikið út
úr því að standa á sviði og sjá
áhorfendur hlæja. Það fyllir mig
mikilli sælutilfinningu.“
Gæti orðið góður
stjórnmálamaður
Þú lékst í hinum rómuðu Vakta-
seríum með Jóni Gnarr og öðru
hæfileikafólki. Hvernig var að
vinna með Jóni og varstu ekkert
smeykur við að hann myndi
skyggja á þig?
„Það var frábært að vinna með
Jóni enda höfðum við svipaða nálg-
un á verkefnið. Jón er ekki leikari
sem leggur upp úr því að skyggja
á aðra leikara og ég held að ég sé
alveg eins að því leyti. Mér fannst
mikilvægast, eins og alltaf, að skila
góðu dagsverki. Það er sama hvort
ég er að mæta í bygginga-
vöruverslunina eða vinna við
Vaktaseríurnar eða eitthvað annað,
markmiðið er alltaf að reyna að
gera yfirmanninn ánægðan.“
Vissuð þið þegar þið gerðuð
fyrstu Vaktaseríuna að þið mynduð
slá í gegn?
„Sjálfir vorum sannfærðir um að
þættirnir væru snilld, það var bara
spurning hvort einhver yrði sam-
mála okkur. Þegar við vorum að
vinna að þáttunum bjóst Jón alveg
eins við að þættirnir fengju svipuð
viðbrögð og Fóstbræðraþættirnir,
en ýmsir reiddust yfir þeim og
fannst þeir ósmekklegir. Við-
brögðin við Vaktaseríunum voru
mjög lofsamleg sem var ánægju-
legt.“
Kom þér á óvart að Jón Gnarr
skyldi fara út í pólitík og verða
borgarstjóri?
„Nei, það kom mér ekki á óvart.
Þegar ég kynntist Jóni tók ég eftir
því að hann hafði mjög sterkar
skoðanir á pólitík og þjóðfélags-
málum þar sem honum fannst um-
ræðan vera á of leiðinlegum og nei-
kvæðum nótum. Hann er ekki
maður sem er hrifinn af skot-
grafahernaði í pólitík. Það kom
mér ekki á óvart að hann varð
borgarstjóri og það kom mér held-
ur ekki á óvart að hann skyldi
Ekki breyttur
maður
PÉTUR JÓHANN SIGFÚSSON LEIKARI VINNUR NÚ SEM SPJALLÞÁTTASTJÓRNANDI Í
SJÓNVARPI. HANN RÆÐIR UM FERILINN OG SAMSTARFIÐ VIÐ JÓN GNARR OG
SEGIR MIKILVÆGT AÐ SKILA GÓÐU DAGSVERKI. Í LOKIN BIÐUR HANN SVO FYRIR
KVEÐJU TIL DAVÍÐS ODDSSONAR SEM HANN HITTI Á DÖGUNUM.
Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@mbl.is
* Þar sem ég stóð uppi á sviði og allirhlógu þá gerðist eitthvað innra meðmér sem heldur mér ennþá í þessu starfi.
Ég fæ alltaf mjög mikið út úr því að
standa á sviði og sjá áhorfendur hlæja.
Það fyllir mig mikilli sælutilfinningu.
Svipmynd