Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.05.2014, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.05.2014, Blaðsíða 13
Sauðburður á bænum Kerlingardal í Mýrdalnum. Frá vinstri: Hlöðver Steinþórsson, Sigurður Ásgrímur Geirdal Gíslason og Karl Anders Karlsson, sonur bóndahjónanna á bænum, með nýfædd lömb í fjárhúsunum. Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Töluvert hefur þegar veriðjarmað í Mýrdalnum í vor, áeinum bæ norður á Strönd- um og öðrum í Fljótsdal á Héraði, en víða um land er sauðburður ekki hafinn svo heitið geti en fljót- lega verður allt komið á fullt. Bændur í Mýrdalnum eru yfir- leitt snemma í því og Karl Pálma- son, bóndi á Kerlingardal, er ánægður með gang mála það sem af er. „Þetta er komið vel af stað og gengur í meðallagi vel,“ segir hann en á bænum eru 400 kindur. „Jörð er ansi falleg, hér var alveg klakalaust og vonandi að veður haldist gott. Féð er allt inni ennþá en ég get vonandi sett það út fljót- lega.“ Karl hefur stundað búskap lengi en játar því að vissulega sé alltaf töluverð stemning meðan á sauð- burði stendur. „Þetta er alltaf skemmtilegur tími en þó erfiður. Þetta er svo sem orðið venjulegt fyrir mann sem hefur verið lengi í þessu, en þó alltaf spennandi. Allra skemmtilegast er þegar veður er virkilega gott svo hægt sé að setja ærnar og lömbin út sem fyrst.“ Gestagangur er jafnan óvenju mikill meðan á sauðburði stendur. „Hér er töluvert um að fólk komi við á þessum tíma, bæði skólafólk og aðrir. Ég á til dæmis von á erlendum skólahópi sem er nú í heimsókn hjá grunnskólanum í Vík, mér skilst að það séu krakkar úr ýmsum áttum í heiminum.“ Guðbrandur Björnsson á Smá- hömrum, formaður Félags sauð- fjárbænda í Strandasýslu, segir ær sjaldnast byrja að bera á svæðinu fyrr en viku af maí. Það sé þó að- eins mismunandi eftir bæjum. Á stærstu búum á svæðinu eru um 800 ær en á meðalbúi 350-400. Á Heiðarbæ, hjá Guðbrandi Ás- geiri Sigurgeirssyni, voru þó 30 kindur bornar um miðja vikuna enda hrútum hleypt til ánna fyrr í vetur en hefðbundið er, af ásettu ráði. „Við vildum hafa sauðburðinn óvenju snemma í ár því sonur okk- ar, Sigurgeir Guðbrandsson, verður fermdur í byrjun júní. Við erum með 213 ær og viljum vera búin að þessu tímanlega svo við höfum góðan tíma til þess að undirbúa ferminguna,“ sagði Guðbrandur. Mjög stórt verkefni Þórarinn Ingi Pétursson, formaður Landssamtaka sauðfjárbænda, býr í Höfðahverfi í Eyjafirði. „Það er vika í að á þessu svæði fari allt á fullt og sums staðar seinna, jafnvel ekki fyrr en um miðjan mánuðinn,“ segir hann. „Hjá mér bera 830 ær þannig að það er svo sem engin sérstök róm- antík í kringum þetta!“ sagði hann aðspurður. „Sauðburðurinn er bara mjög stórt verkefni; hér fer í gang hálfgerð verksmiðja og við reynum að láta þetta ganga skafið.“ Sauðburði er að ljúka hjá Hirti bónda Kjerúlf á Hrafnkelsstöðum í Fljótsdal. „Maður er orðinn þreytt- ur en ég er ágætlega stemmdur,“ segir Hjörtur sem er nýorðinn 69 ára og býr einn. Hann hleypir ætíð til mun fyrr en aðrir og lömbin á Hrafnkelsstöðum eru því fyrr á ferðinni en á öðrum bæjum. „Ég hef alltaf verið á undan öðrum í öllu!“ segir hann og skellihlær. „Ég var til dæmis fyrstur hér í sveitinni til að farga mjólkurkú. Þegar ég byrjaði að búa var mér gefin kýr en ég sendi hana umsvifalaust í sláturhús. Mér fannst ég ekki þurfa að viðhafa miklar reikni- kúnstir til að sjá að það borgaði sig ekki. Samkvæmt tímamælingu útheimtir ein kýr 500 vinnustundir á ári og betra að kaupa mjólkina og eyða tímanum í að sinna fleiri kindum.“ Sauðburður hefst yfirleitt í Fljótsdal þegar vika er af maí, en Hjörtur hefur um árabil verið fyrr á ferðinni. „Ég byrjaði á því að hafa sauðburðinn svona snemma vegna þess að veðrið í apríl var alltaf skömminni skárra en í maí og jafnvel júní. Besta tíðin var oft í apríl og ég man til dæmis varla eftir eins góðu veðri og hefur verið núna undanfarið.“ STRANDIR - FLJÓTSDALUR - MÝRDALUR Sauðburði flýtt vegna fermingar SUMS STAÐAR ER SAUÐBURÐUR KOMINN NOKKUÐ VEL Á VEG EN Á ÖÐRUM LANDSVÆÐUM AÐ HEFJAST. „ALLTAF SKEMMTILEGUR TÍMI, EN ERFIÐUR,“ SEGIR BÓNDI Í MÝR- DALNUM. „BARA MJÖG STÓRT VERKEFNI,“ SEGIR ANNAR Sigurgeir Guðbrandsson, fermingardrengur á bænum Heiðarbæ á Ströndum. Ljósmynd/Tinna Schram 4.5. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13 Í nýliðinni viku var tekinn í notkun brettagarður við Blönduskóla. Það hefur staðið til síðan í haust þegar svæði við sparkvöllinn var malbikað. Garðurinn hef- ur verið mikið sóttur af nemendum, skv. huni.is. Brettagarður á Blönduósi Æskulýðs- og íþróttafulltrúa vantar á Djúpavog frá 1. ágúst. Sá hefur yfirumsjón með starfsemi ungmennafélags- ins Neista og raunar öllu æskulýðssstarfi í bænum í sam- vinnu við Djúpavogsskóla og sveitarstjórn. Viltu austur á Djúpavog? Í landinu eru um 475.000 vet- urfóðraðar kindur; ær, gemlingar og hrútar. Á vordögum fæðast alls um 700.000 lömb og í sumar eru því um 1,2 milljónir fjár hér á landi, stærstur hluti til fjalla. Alls eru skráðir um 1.800 sauðfjárbændur á Íslandi en búin eru mjög misstór. Á þeim stærstu eru um 1.000 á fóðrum yfir vetrartím- ann en ekki eru mörg slík. Á meðalbúi eru um 400 fjár og margir eiga innan við 100 kindur. „Þá er fólk í öðr- um störfum líka, sauðfjárrækt hentar mjög vel með öðru og algengt að að minnsta kosti annar mak- inn vinni utan heimilis,“ segir formaður Lands- samtaka sauðfjárbænda. „Það er t.d. algengt að makar sauðfjárbænda séu kennarar. Ég hef reyndar ekki kannað það vísindalega en tilfinn- ing mín er sú og það tengist því að stór hluti yngri bænda er mjög vel menntað- ur.“ Tæp hálf milljón fjár MÚSIKEGGIÐ tryggir að þú fáir eggið þitt soðið eins og þú vilt hafa það. Þú setur það með eggjunum í pottinn við suðu, og þegar eggin eru linsoðin heyrist: „Killing me softly“ og harðsoðin: „Final Countdown“ Skólavörðustíg 12 • www.minja.is • facebook: minja Bráðnauðsynlegt fyrir tónlistarunnendur og þá sem vilja hafa eggin sín rétt soðin. Músikeggin (EggStream) er samstarfsverkefni þýska hönnunarteymisins „Brain Stream“ Verð aðeins 5.500 kr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.