Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.05.2014, Blaðsíða 24
Af hverju ekki að hefja nýja vinnuviku á því að fara fyrr á fætur? Það getur verið gott að gefa
sér tíma á morgnana til þess að nostra við sjálfan sig í ró og næði, fara í bað, lesa tímarit eða
hlusta á tónlist. Slík tilbreyting getur lagt grunninn að vellíðan og góðri vinnuviku.
Breyttu til og vaknaðu fyrr
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4.5. 2014
Heilsa og hreyfing
Á undanförnum árum hafa komið fram fleiri og fleiri rannsóknir sem sýna
fram á skaðsemi þess að neyta sykurs í miklu magni. Margir hafa farið þá leið
að sleppa sykri alfarið, eða þá sleppa að minnsta kosti öllum hvítum sykri úr
sinni fæðu.
Þegar ákvörðun er tekin um róttæka breytingu á mataræði er gott að nýta
reynslu annarra sem hafa fetað sömu braut áður. Á vefnum Amazon.com má
finna fjölda bóka sem geta reynst þeim vel sem vill segja skilið við sykurpúkann.
Í bókinni A Year of No Sugar - A Memoir rekur Eve O. Schaub það hvernig
hún, maðurinn hennar og tvær dætur komust í gegnum heilt ár án sykurs. Hún
ákvað að taka sykur út úr sínu lífi eftir að hafa hlýtt á fyrirlestur um skaðsemi
sykurs. Í bókinni segir hún á opinskáan og glettinn hátt frá þeim hindrunum sem
urðu á vegi fjölskyldunnar á hinni sykurlausu vegferð.
Sarah Wilson er þekkt fjölmiðlakona í Ástralíu, stýrði meðal annars ástr-
ölsku útgáfunni af MasterChef þáttunum um tíma og ritstýrði ástralska Cos-
mopolitan tímaritinu. Hún hefur nú snúið sér alfarið að heilsuskrifum og nýlega
gaf hún út bókina I Quit Sugar auk þess að gefa út sérstaka útgáfu bókarinnar
með uppskriftum fyrir börn. Hún heldur úti vinsælum heilsuvef www.sarahwil-
son.com þar sem hún gefur góð ráð.
LESTU ÞIG FRÁ SYKRI
Tvær góðar bækur um
nýtt líf án sykurs
Skrif Söruh Wilson um sykurleysi og heilsubót hafa vakið athygli. Gamansöm frásögn af sykurlausu ári.
H
ugleiðsla getur virkað flókin og
erfið fyrir þann sem ekki hefur
prófað. Í grunninn snýst hún ein-
faldlega um að kyrra hugann, ná
stjórn á hugsunum í stað þess að leyfa þeim
að æða stjórnlaust áfram og valda okkur
streitu.
Þótt hver og einn hugleiði með sjálfum sér
eru starfræktir margir hugleiðsluhópar þar
sem fólk kemur saman og sameinast í að
hugleiða. Hér verða taldir upp nokkrir slíkir
hópar, listinn er þó eflaust ekki tæmandi.
Margir þessara hópa nota Facebook til að
koma skilaboðum um hóphugleiðslu og aðra
viðburði til þeirra sem vilja taka þátt.
Ananda Marga
Jógafélagið Ananda Marga er félagsskapur
fólks sem stundar og hefur áhuga á hug-
leiðslu og jóga. Með því að leita að hópnum
„Jóga og hugleiðsla – Ananda Marga“ á Fa-
cebook og líka við síðuna ertu kominn í hóp-
inn og getur fengið upplýsingar um jógaæf-
ingar, kirtan, hugleiðsluhelgar úti á landi,
fyrirlestra, hjálparstarf, námskeið og svo
framvegis. Hópurinn er öllum opinn sem
vijla vera með og hafa áhuga á að hugleiða.
Hugleiðsla okkar tíma
Hugleiðsla okkar tíma eða nútímahugleiðsla
eru íslensk heiti á því sem kallað er Modern
Day Meditation. Þessi hugleiðsla er stunduð
í hóp og með henni er unnið gegna streitu. Á
Facebook má fá nánari upplýsingar með því
að slá inn leitarstrenginn Hugleiðsla okkar
tíma. Jafnan er hugleiðsla á miðvikudags-
kvöldum, en best er að afla upplýsinga á
samfélagsmiðlinum um nánari tímasetningar.
Nútímahugleiðsla skiptist í fjóra kafla. Í
fyrsta hlutanum er athyglin sett á að opna
hugann, tilfinningarnar og hjartað. Í öðrum
hlutanum finna þátttakendur djúpa ró á
mjög náttúrulegan hátt. Þriðji hlutinn snýst
um að hugsa; að tengja við innsæi, laus frá
áhrifum tilfinninga eða viðbragða við ut-
anaðkomandi áreiti. Fjórði kaflinn snýr að
því að framkvæma til að þær upplýsingar
eða uppgötvanir sem þú finnur í hugleiðsl-
unni nýtist í lífinu.
Í þessari hugleiðslu er notuð margvísleg
tónlist. Frítt er fyrir þá sem hafa aldrei
komið áður, en jafnan kostar hugleiðslu-
kvöldið (sem er 2½ tími í senn) 2.000 krónur.
Lótushús
Í Lótushúsi á Garðatorgi í Garðabæ er hægt
að sækja námskeið í hugleiðslu og jákvæðri
hugsun. Á vefnum www.lotushus.is má finna
frekari upplýsingar um næstu námskeið, en
einnig eru haldin námskeið á Akureyri.
Lótushús er miðstöð alþjóðlegu samtak-
anna Brahma Kumaris World Spiritual Uni-
versity á Íslandi. Í Lótushúsi eru haldin
hugleiðslu- og hugræktarnámskeið með
reglulegu millibili allan ársins hring. Öll
námskeið og viðburðir á vegum skólans eru
þátttakendum að kostnaðarlausu og er
kostnaði mætt með frjálsum framlögum
þeirra sem góðs hafa notið af starfsemi skól-
ans.
Hugleiðsla hefur í gegnum aldirnar verið
ein einfaldasta og áhrifaríkasta leiðin til að
öðlast jákvæðara og kyrrara hugarástand,
segir á vef Lótushúss. Hugleiðslan sem þar
er stunduð er kennd við Raja yoga sem
byggist á upplifun einstaklingsins á sínu
innra sjálfi og eiginleikum. Hugleiðslan
hjálpar okkur að læra að ríkja yfir eigin
huga, öðlast sanna sjálfsvirðingu og virkja
þá góðu eiginleika sem innra með okkur búa.
Námskeið Lótushúss eru ætluð öllum þeim
sem vilja byggja upp innri frið og styrk til
að ná betri tökum á sjálfum sér og lífi sínu í
gegnum hugleiðslu og sjálfsskoðun. Aðferð-
irnar eru einfaldar og geta gagnast fólki á
öllum aldri, byrjendum jafnt sem lengra
komnum.
HUGLEIDDU OG NJÓTTU LÍFSINS
Hugleiðsla
gegn áhyggjum
og streitu
Hugleiðslu er hægt að stunda einn með sjálfum sér en líka í hóp.
AFP
FJÖLDI FÓLKS KÝS AÐ HUGLEIÐA Í HÓPUM. HUGLEIÐSLA ER GÓÐ LEIÐ TIL
AÐ LOSNA VIÐ STREITU OG ÁHYGGJUR. MEÐ ÞVÍ AÐ HUGLEIÐA MÁ NÁ
TÖKUM Á OF HRÖÐUM HUGSUNUM OG HÆGJA Á Í AMSTRI DAGSINS.
FACEBOOK GEYMIR MARGA HÓPA SEM HÆGT ER AÐ SKRÁ SIG Í OG
BYRJA AÐ STUNDA HUGLEIÐSLU.
Morgunblaðið/Ernir
Dadi Gulzar í Lótushúsi árið 2010. Hún hefur
stundað hugleiðslu frá átta ára aldri.