Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.05.2014, Qupperneq 17

Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.05.2014, Qupperneq 17
4.5. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17 Tvær leiksýningar verða á Sólheimum í Grímsnesi um helgina. Á laugardag 3. maí kl. 15 sýnir Sólheimaleikhúsið verkið sitt Lorca og skóarakonan og á sunnudag 4. maí kl. 15 verður einstakur listviðburður þar sem leikarar staðarins ásamt gestum frá Madrid sýna samvinnuverkefni sitt í leikhús- inu að Sólheimum. Sama sýning verður sett upp í Þjóðleik- húsinu þriðjudagskvöldið 6. maí kl.19.30. Nánari upplýsingar á www.solheimar.is. Leikhúsferð á Sólheima um helgina Á síðustu sýningu leikritsins Út- undan, sunnudagskvöldið 4. maí, mun Tinna Hrafnsdóttir, leikstjóri sýningarinnar, hlaupa í skarðið og leika eitt af aðalhlutverkunum sem Svandís Dóra Einarsdóttir hefur farið með en Svandís þarf að hverfa frá til sumarstarfa. Verkið er sýnt í Tjarnarbíó en Tinna þýddi einnig verkið sem á frummálinu heitir Fer- tility Objects og er eftir eftir Bret- ann McGlynn. Verkið fjallar um glímuna við ófrjósemi en í viðtali sem birtist í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins í sumar rædd Tinna opinskátt hvern- ig hún í fimm ár reyndi að eignast börn án árangurs en tókst á end- anum að verða ólétt og eignaðist tví- bura. Verkið stendur henni því per- sónulega nærri en það er grátbroslegt og alvarlegt í senn. Ófrjósemi er vaxandi vandamál í heiminum og eflaust margir sem geta endurspeglað sig í þeim veru- leika sem verkið sýnir. Síðustu sýningar á leikritinu eru 3. og 4. maí og leikhússpjall með að- standendum sýningarinnar er á laugardagskvöldið 3. maí. TINNA HRAFNSDÓTTIR LEIKUR Í SÍÐUSTU SÝNINGU ÚTUNDAN Tinna Hrafnsdóttir leikur sjálf í síðustu sýningu Útundan sem hún hefur leik- stýrt í Tjarnarbíói. Stekkur inn í hlutverk F yrir þrettán árum gerði vina- fólk Katrínar Jónsdóttur, kennara og Eurovison- aðdáanda, henni og fjöl- skyldu hennar þann óleik að bjóða þeim í mat að kvöldi lokakeppn- innar. Katrín fann þeim gjörningi flest til foráttu enda þráði hún að horfa ótrufluð á keppnina sem hún hefur svo mikið yndi af. Hún lét þó tilleiðast eftir að vinkona hennar hafði lofað að ýkja áhuga sinn á Eurovision og gleðjast með henni yfir keppninni. Þegar á reyndi stukku fleiri boðsgestir upp á þann vagn og úr varð heljarinnar fjör, ekki síst meðal barnanna. Ekki varð aftur snúið og allar götur síðan hefur matarklúbburinn komið saman og gert sér glaðan dag þegar lokaúrslit Eurovision fara fram. Þegar mest var voru um þrjátíu manns, börn og fullorðnir, í hópnum en nú eru það tæplega tuttugu. Hluti hópsins býr erlendis. Yngsta barnið er tíu ára og var þar af leiðandi ekki fætt þegar hefðinni var komið á. „Þróunin hefur verið þannig að okkur endist varla dagurinn. Næsta skref verður líklega að byrja á föstudeginum. Hittast þá og gista saman um nóttina,“ segir Katrín hlæjandi. Formleg dagskrá hefst klukkan tíu að morgni laugardags – í sundi. Á undan eru allir vitaskuld búnir að fylgjast með lögunum í keppn- inni og mynda sér skoðun á þeim. Í barnalauginni er myndaður hringur og farið í leik sem felst í því að halda bolta á lofti. „Það er mikill metnaður í þessu og þegar met falla fögnum við eins og hval- ir,“ upplýsir Katrín. Þegar allir eru orðnir hreinir og fínir eftir sundið er slegið upp pylsuveislu. Undir óma að sjálf- sögðu Eurovision-lög, bæði þau frægustu og líka þau „frægustu hjá okkur“, eins og Katrín orðar það. Ekki er óalgengt að börnin kunni alla textana, við gömul lög og ný, auk þess sem þau eru með landafræðina á hreinu og þekkja sérhvern fána. Ratleikur í hverfinu Þá er komið að ratleiknum. Skipt er upp í fjóra hópa og þeir sendir út vopnaðir korti af hverfinu. Hér og þar er svo að finna spurningar, með Eurovision-þema, sem kepp- endum ber að svara á sem skemmstum tíma. Verðlaun eru í boði sem hefð er þó fyrir að deila með öllum hópnum. „Menn koma sveittir í mark. Það get ég sagt þér,“ segir Katrín. Enginn er annars bróðir í leik. Þegar hér er komið sögu er vin- sælt að fá sér tíu til fimmtán mín- útna kríu enda menn orðnir slæptir eftir sundið og ratleikinn. Þegar búið er að hlaða rafhlöð- urnar kemur að því sem margir telja hápunkt undirbúningsins – mojito-blönduninni. Hópurinn býr að snillingi í þeim fræðum og allir fá sinn drykk, börnin að sjálfsögðu óáfengan. Mojito smakkast víst síst verr þannig. Ef tími gefst til er gjarnan farið í Actionary, þar sem keppendur giska á hvað Eurovision-lög er ver- ið að leika með látbragði, eða bryddað upp á skemmtiatriðum, sem vitaskuld tengjast keppninni. Kvöldverður er snæddur tím- anlega svo allir geti einbeitt sér að keppninni, þegar hún hefst á slag- inu klukkan sjö. Pitsur eru vinsæl- astar, eða þá mexíkanskur matur. Allir hjálpast að við matseldina og undir drynur tónlist. Þið vitið hverrar gerðar. „Og við syngjum eins og enginn sé morgundag- urinn,“ segir Katrín. Þegar keppnin hefst eru allir til- búnir með blað og penna. Gefin eru stig og allir þurfa að rökstyðja sitt álit. Verðlaun eru veitt fyrir að giska rétt á efstu sætin. Fljótlega eftir að úrslit liggja fyrir lýkur formlegri dagskrá og gestir halda til síns heima. „Við er- um ekkert að draga þetta á lang- inn enda börn í hópnum og við bú- in að vera saman allan daginn,“ segir Katrín. „Og hvorki talað né hugsað um annað en Eurovision.“ EUROVISION-AÐDÁENDUR SEM KUNNA AÐ SKEMMTA SÉR Eurovision frá morgni til kvölds Katrín Jónsdóttir einbeitt að leika Eurovision-lag í Actionary. ALLUR DAGURINN ER UNDIR (OG DUGAR VARLA TIL) ÞEGAR KATRÍN JÓNS- DÓTTIR KENNARI OG VINIR HENNAR KOMA SAMAN OG GLEÐJAST YFIR EURO- VISION-KEPPNINNI. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Eurovision-klúbbur Katrínar þjóðlegur og spenntur fyrir framan skjáinn 2011. Vertu vinur okkar á facebook www.facebook.com/weledaísland Eitt best geymda leyndarmálið á markaðnum Weleda Skin Food er í miklu uppáhaldi hjá þekktum tísku- fyrirsætum og förðunarfræðingum um allan heim. Skin Food er 100% lífrænt árangursríkt alhliða krem sem nærir þurra og viðkvæma húð og kemur jafnvægi á húðina. Skin Food kom fyrst á markað fyrir meira en 80 árum síðan og hefur uppskriftin verið óbreytt síðan. Kremið er unnið úr lífrænt ræktuðum Stjúpum, Baldursbrá, Morgunfrú og Rósmarín, gott krem fyrir alla fjölskylduna – Í samhljómi við mann og náttúru. www.weleda.is Þú kaupir Weleda vörur í heilsuverslunum og apótekum um allt land
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.