Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.05.2014, Page 19
Á Grønnegade 32 í Kaupmanna-
höfn er lítið og krúttlegt bolla-
kökubakarí, Serenity, sem selur
einar bestu bollakökur þar í borg.
Það er skemmtileg upplifun að
setjast inn á þetta krúttlega köku-
bakarí þar sem stemningin er svo-
lítið eins og í litlu dúkkuhúsi. Kaffi
eða te og dýrindis bollakökur eru
bornar fram á bollastelli frá Royal
Kopenhagen. Eigandi bollaköku-
bakarísins Mariam Mistry ver öll-
um sínum tíma í bakaríinu sjálf
þar sem hún bakar kökurnar,
skreytir þær og afgreiðir síðan
kúnnana sem gefur bakaríinu per-
sónulegt og skemmtilegt andrúms-
loft.
Serenity, sem var stofnað í
ágúst 2011, er orðið frekar þekkt
í Kaupmannahöfn en það sér
gjarnan um veitingar á ýmsum við-
burðum, meðal annars í tengslum
við sjálfa tískuvikuna.
Krúttlegt kökubakarí
í Kaupmannahöfn
4.5. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19
Breytingar á hreinni eign til greiðslu lífeyris 31.12. 2013 2012
Samtals Samtals
Iðgjöld 228 212
Lífeyrir -286 -252
Fjárfestingatekjur 378 371
Fjárfestingargjöld -9 -9
Rekstrarkostnaður -13 -13
Aðrar tekjur 23 22
Hækkun á hreinni eign á árinu 320 330
Hrein eign frá fyrra ári 3.438 3.108
Hrein eign til greiðslu lífeyris 3.758 3.438
Efnahagsreikningur
Verðbréf með breytilegum tekjum 1.088 1.176
Verðbréf með föstum tekjum 2.528 1.931
Veðlán 52 119
Aðrar eignir 78 167
Kröfur 19 52
Skuldir -7 -7
Hrein eign til greiðslu lífeyris 3.758 3.438
Kennitölur
Nafnávöxtun 10,4% 11,3%
Hrein raunávöxtun 6,5% 6,4%
Hrein raunávöxtun – 5 ára meðaltal 4,6% -0,2%
Fjöldi sjóðfélaga 118 126
Fjöldi lífeyrisþega 277 265
Rekstrarkostnaður í % af eignum 0,4% 0,4%
Fjárhagsstaða skv. tryggingafræðilegri úttekt
Með framtíðar endurgreiðslu launagreiðenda
á greiddum lífeyri
Eign umfram heildarskuldbindingar í % 1,1% -0,8%
Eign umfram áfallnar skuldbindingar í % 1,9% -0,1%
Allar fjárhæðir í milljónum króna
Birt með fyrirvara um prentvillur.
Ársreikning LSK 2013 má sjá í heild sinni á heimasíðu LSS: www.lss.is
Stjórn og framkvæmdastjóri
Í stjórn sjóðsins eru Gunnlaugur Júlíusson stjórnarformaður, Guðríður Arnardóttir, Helga Elínborg Jónsdóttir,
Ragnar Snorri Magnússon og Sverrir Óskarsson.
Framkvæmdastjóri sjóðsins er Jón G. Kristjánsson
Aðsetur sjóðsins er hjá Lífeyrissjóði starfsmanna sveitarfélaga, Sigtúni 42, 105 Reykjavík, Sími 5 400 700
lss@lss.is - www.lss.is
Lífeyrissjóður starfsmanna
Kópavogsbæjar
Ársfundur 2014
Ársfundur Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar verður haldinn miðvikudaginn 21. maí kl. 16.00 í Bæjarstjórnarsal
Kópavogsbæjar, Fannborg 2, 1. hæð (gengið inn austanmegin).
Dagskrá
1.Venjuleg ársfundarstörf samkvæmt samþykktum sjóðsins.
2. Önnur mál löglega upp borin.
Allir sjóðfélagar sem og launagreiðendur og viðkomandi stéttarfélög eiga rétt til fundarsetu með málfrelsi og tillögurétti og
eru þeir hvattir til að mæta.
Fundargögn verða afhent á fundarstað fyrir setningu fundarins.
Kópavogi, 2. maí 2014
Stjórn Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar
Starfsemi LSK á árinu 2013
Noma í Kaupmannahöfn endurheimti á dögunum nafnbótina Besti veit-
ingastaður í heimi. Því kann að koma einhverjum á óvart að staðnum
verður lokað í byrjun næsta árs. Rólegur, lesandi góður: það verður bara
tímabundið; meistarakokkurinn René Redzepi mun flytja allt starfsfólkið
frá Kaupmannahöfn til Tókýó og starfa þar í tvo mánuði. Túristar í Kaup-
mannahöfn koma því að lokuðum dyrum á Noma á meðan! Norrænn
matur verður ekki með í för. Redzepi segist lengi hafa hrifist af japönsku
hráefni og gamall draumur rætist nú. Starfsemin verður á frægum veit-
ingastað, Kikunoi, þar sem matreiðslumeistarinn Yoshjihiro Murata ræður
ríkjum en hann bauð Dananum að koma. Þekkt er að mannfólkið ferðist
til þess að komast á góða veitingastaði, en óhefðbundnara að veitinga-
húsin komi sjálf til fólksins. Spennandi verður að sjá hvernig þetta fer.
Noma fer á flakk
AFP
Rene Redzepi (3. frá vinstri) og samherjar hans á Noma eftir að veitinga-
staðurinn var útnefndur sá besti í heimi á nýjan leik í síðustu viku.
Gröf Tútankamons konungs í
Egyptalandi er mjög farin að láta á
sjá. Góð ráð voru dýr, að mati
heimamanna, og gripið var til þess
að fá fornleifafræðinga til að gera
hárnákvæma eftirlíkingu graf-
arinnar, sem ferðamönnum gefst
nú kostur á að skoða. Eftirlíkingin
var opnuð í nýliðinni viku.
Tútankamon var uppi frá 1341 til
1323 fyrir Krist, varð faraó aðeins
níu ára gamall og ríkti í tíu ár, þar til
hann lést. Gröf hans fannst
óhreyfð í Dal konunganna árið
1922 og vakti vitaskuld gríðarlega
athygli og hefur verið einn helsti
viðkomustaður ferðalanga í Egypta-
landi í áratugi.
Gröfin sjálf og eftirlíkingin eru nú
opnar ferðamönnum en í framtíð-
inni er gert ráð fyrir því að þeirri
raunverulegu verði lokað til þess
að nauðsynlegar lagfæringar geti
farið fram. Annars myndi staðurinn
hreinilega eyðileggjast vegna
ágangs. Rétt er að geta þess að
jarðneskar leifar Tútankamons eru
enn í gröfinni, í glerkassa.
Hárnákvæm eftirlíking
grafar Tútankamons
AFP
Unnið að eftirlíkingu grafar Tútankamons faraós í Dal guðanna í Egyptalandi.