Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.05.2014, Síða 20

Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.05.2014, Síða 20
✔ Vegabréf, ökuskírteini, veski, greiðslukort og gjaldeyrir (já, best að byrja á hinu augljósa) ✔ Lyfseðilsskyld lyf ✔ Gleraugu/ lesgleraugu, gleraugnahulstur, augnlinsur, ílát og linsuvökvi (ef slíkt er notað) ✔ Sólgleraugu (með styrk ef þarf) ✔ Úr/farsími og hleðslu- tæki ✔ Farmiðar og/eða út- prentun af ferðaplaninu með nöfnum, heimilisföngum og símanúmerum á hótelum og bílaleigum, bókunarnúmerum og tímasetningum (líka fyrir heimferðina) ✔ Kort/ferðahandbækur ✔ Sólarvörn (eða að kaupa hana um leið og stigið er út úr flugvélinni, sem og skordýrafælu) ✔ Stór strandhandklæði (nema þau fylgi með gistingunni). 20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4.5. 2014 Ferðalög og flakk HLUTIR SEM ÞÚ ÞARFT EKKI Í FRÍIÐ Hverju þarf að pakka? SUMARIÐ ER KOMIÐ OG FLESTIR VONAST SENNILEGA TIL AÐ GETA EYTT DÁGÓÐUM TÍMA Í SÓL OG HITA. MARGIR HAFA BAK- TRYGGT SIG MEÐ ÞVÍ AÐ PANTA FERÐ TIL SÓLARLANDA LÍKA, EF SVO ÓLÍKLEGA VILDI TIL AÐ ÍSLENSKA SUMARVEÐRIÐ BRYGÐIST. ALGENGT ER AÐ DVELJA Á ÍBÚÐAHÓTELI OG ÞANNIG ER HÆGT AÐ ÞVO FATNAÐ OG HANDKLÆÐI EFTIR ÞÖRFUM OG ÚT- BÚA NESTI TIL AÐ TAKA MEÐ Á STRÖND- INA FREKAR EN AÐ KAUPA RÁNDÝRAR VEITINGAR. FLESTIR HAFA REKIÐ SIG Á AÐ PAKKA ALLTOF MIKLUM FARANGRI FYRIR SUMARFRÍIÐ EN GLEYMA SAMT NAUÐSYNJ- UM OG ÞVÍ ER GOTT AÐ STYÐJAST VIÐ EFTIRFARANDI LISTA. Ingibjörg Rósa Björnsdóttir ingibjorgrosa@gmail.com Á LEIÐ Í SÓLARFRÍ ✔ Sólarvörn, varasalvi (með sólarvörn), Aloe Vera- gel við sólbruna, sótthreinsigel fyrir hendur, skor- dýrafæla og krem við skordýrabiti. ✔ Vatnshelt hulstur eða poki utan um verðmæti og lykla. ✔ Kælibox með nægu drykkjarvatni, ávaxtasafa, sam- lokum, grænmeti og ávöxtum sem er búið að skera niður í handhægt snarl. Vínber eru líka sérstaklega svalandi í hitanum. Vanalega taka ferðalangar alltof margar flíkur með sér og enda á að nota einungis brot af þeim því maður notar bara það sem manni þykir þægilegast dag eftir dag. Og það má alveg þegar maður er í fríi. Vanalega er algjör óþarfi að taka sokka eða sokkabuxur með í frí til hlýrra staða, nema kannski til að nota á leiðinni svo maður sé snyrti- legur í flugvélinni. Ef gististaðurinn er með þvottaaðstöðu þarf ekki eins mikinn fatnað og ella. Annars þarf einn umgang af nærfötum fyrir hvern dag (eða nógu marga til að þurfa ekki að þvo nema 3.-4. hvern dag). ✔ Náttföt (næturnar geta verið svalar þegar loftræst- ingin er í gangi og ekki sofið við þykkar sængur). ✔ Vanalega þarf færri neðanmittis-flíkur en of- anmittis, t.d. 1-2 stuttbuxur, 1 hné- síðar buxur og 1 síðbuxur. Konur geta skipt stuttbuxum út fyrir 1-2 pils og/eða sum- arkjóla. ✔ 2-3 bolir og 2-3 þægilegar, straufríar skyrt- ur; helst stutt- erma en gott að hafa eina langerma flík til að hvíla handlegg- ina frá sólinni við og við. ✔ 1 hlý peysa og/eða jakki til að smeygja sér í á kvöldin. ✔ Sundföt (a.m.k. tvenn til að eiga allt- af ein þurr tilbúin), konur geta einnig haft með sér sarong eða túniku til að bregða sér í yfir sundfötin meðan karlarnir láta sér nægja bol eða skyrtu. ✔ Sandalar (helst úr plasti, gúmmíi svo hægt sé að vaða á þeim út í sjó/vatn) líka. ✔ Fínni sandalar/ opnir skór til að nota á kvöldin og inni í bæ og borg. Hælaháir skór taka bara pláss í töskunni og eru í raun óþarfir nema kona ætli að fara út á einhvern flottan stað eða klúbb og vilji klæða sig fínt upp á, en þá þarf líka að taka með kvöld- kjól. Eða kaupa hann! Annars ganga fínir sandalar alls staðar á sumarleyfisstöðum. ✔ Strigaskór ef fara á í lengri göngur (þá er gott að troða einu sokkapari ofan í skóna líka). ✔ Sólhattur og/eða derhúfa. ✔ Lítill bakpoki/góð axlartaska og strandtaska sem hægt er að loka með rennilás. ✔ Mundu, það eru til búðir í útlöndum. Á STRÖNDINNI Sumarleyfisstrendur eru misjafnar, sums staðar fylgja sólhlífar með sólbekkjunum en annars þarf að koma með þær sjálfur eða leigja þær sérstaklega. ✔ Sólhlíf/sóltjald eða lítið strandtjald er algjörlega nauðsynlegur búnaður ef eyða á deginum á ströndinni, sérstaklega ef lítil börn eru með í för. Allir þurfa að geta leitað skjóls fyrir sólinni öðru hverju og ekki er verra að hafa með blævæng til að kæla sig niður. ✔ Stór strandhandklæði og/eða teppi til að breiða undir sig. ALMENNT FATNAÐUR ✔ Stóra brúsa með hársápu, hár- næringu, andlitshreinsi, andlits- vatni, munnskoli o.þ.h. Þegar þetta safnast saman er þetta ótrú- lega plássfrekt og þungt. Kauptu litlar plastflöskur og færðu snyrti- vörurnar yfir í þær eða kauptu þessar vörur þegar komið er á staðinn. ✔ Aukapeysu, -buxur, -skó, bara til öryggis. Þú ert ekki að fara á hjara veraldar, ef þig endilega vantar flík þegar á sumarleyf- isstaðinn er komið er nær öruggt að þú getur keypt hana í svoköll- uðum verslunum. ✔ Bækur. Þótt það hljómi voða- lega forframað að lesa Laxness eða Voltaire í sólbaði, þá er stað- reyndin sú að fæstir nenna því og grípa á endanum e-t meira létt- meti. Ef þú vilt ekki láta segjast, notaðu þá spjaldtölvu eða rafbók, þær eru léttari og nettari. ✔ Mat. Þú hlýtur að geta lifað án Ora bauna og harðfisks í nokkrar vikur. Til hvers að fara á fjarlægar slóðir ef ekki til að prófa mat heimamanna og kynnast nýrri matarmenningu? ✔ Sléttujárn. Þetta á sennilega frekar við konur en karla en alla- vega, taktu frí frá hársléttun í sum- arfríinu! Þótt það séu til handhæg, lítil sléttujárn þá taka þau samt pláss og stela frá þér tíma. Það er hvort eð er vita vonlaust að halda hárinu sléttu í hita og raka og þú færð þér daglegan sundsprett hvort eð er. Taktu hárið upp með fallegum spennum og klemmum og leyfðu náttúrulegum liðum og óstýrilátum lokkum að njóta sín, þá líturðu einmitt út fyrir að vera afslöppuð kona í fríi!

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.