Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.05.2014, Síða 32
É
g ætlaði fyrst að elda grænmetissúpu með linsubaunum og finna til
einhverja snilldaruppskrift en hætti við á síðustu stundu. Ákvað
að fara öruggu leiðina og elda þessa yndislegu súpu sem mamma
gaf mér uppskrift að því ég hef svo oft eldað hana og hún virkar
alltaf. Mamma sagði mér líka að maður ætti helst ekki að vera í tilrauna-
starfsemi þegar fólk kemur heim í mat, því maður veit aldrei nema það
mislukkist!“ segir tónlistarkonan Ragnheiður Gröndal. Ragnheiður bauð
kærum vinkonum sínum heim í súpu, girnilega berjasafa og útbjó sum-
arsalat með salatdressingu sem hún segir að megi alveg kalla að hún hafi
þróað í lengri tíma. Einkasonurinn Gunnar Magnús Guðmundsson var
stjarna boðsins og fannst allt svakalega skemmtilegt.
„Boðið heppnaðist alveg gasalega vel og stelpurnar voru í skýjunum
með matinn. Sonur minn var svo yfir sig spenntur yfir því að fá allar pæj-
urnar í heimsókn að allt kvöldið hjá húsmóðurinni eftir matinn fór í að
reyna að svæfa hann – án árangurs. Stelpurnar fóru um tíuleytið og þá
fórum við Gunnar Magnús að horfa á Söngvaborg til að ná okkur niður.“
Ragnheiður segist reyna að bjóða foreldrum, systkinum og nánasta
fólki í mat öðru hvoru, fáum í
einu, en stór matarboð haldi hún
ekki oft. Til að allt lukkist vel
segir hún að persónulega finnist
henni mikilvægt að halda ró
sinni til að geta notið boðsins.
„Stundum er maður svo mikið á
þönum, sveittur út um allt með
áhyggjur af ósamsettu hnífapör-
unum og diskunum og ósmekk-
legum borðbúnaði að maður
gleymir að njóta og hafa gaman.
Það hjálpaði mér í þessu tilfelli
að vera búin að leggja á borð
fyrr um daginn og einmitt að
vera að elda eitthvað sem ég kunni og vissi að myndi ekki klikka. Sjálfri
finnst mér skemmtilegast að elda súpur, pottrétti og salöt eða grilla.“
Aðspurð hver séu eftirminnilegustu matarboðin sem hún hefur haldið
eða farið í, jafnvel þau sem voru skrautleg, segist hún ekki muna eftir
neinu sérstöku í svipinn, allt renni hálfpartinn saman í eitt.
„Það hefur enginn drepist fram á borðið, ælt eða skandalíserað heima
hjá mér – því miður. En við höfum mikið gert grín að boði sem við fórum
í hjá ónafngreindum aðilum í Evrópu sem buðu upp á heimagert sushi
með saltpækluðum laxi, gúrkubitum og ósoðnum hrisgrjónum. Meðlætið
var svo hvítkálssalat sem var reyndar fínt á bragðið, en það lagði
prumpulykt um alla stofuna. Þau höfðu gert rosalega mikið sushi, og ekki
gekk mikið á það í boðinu svo það var örugglega afgangur í tvær vikur.
Ég hef ekki lyst á að reyna að matreiða sushi sjálf eftir þessa reynslu,“
segir Ragnheiður og hlær.
Gestir frá vinstri: Ragnheiður
Gröndal sjálf, Freydís Guðný
Hjálmarsdóttir næringar-
fræðingur, Gunnar Magnús
Guðmundsson tveggja ára,
Sigríður Ása Júlíusdóttir,
grafískur hönnuður, Sigrún
Einarsdóttir, flugfreyja og
nemi í viðskiptafræði og
Bryndís Jónatans-
dóttir viðskipta-
fræðingur.
MATARBOÐ RAGNHEIÐAR GRÖNDAL
Kærar vin-
konur snæða
súpu og salat
Gunnar Magnús Guð-
mundsson er tveggja
ára og var afspyrnukát-
ur með boðið.
*Sonur minn varsvo yfir sigspenntur yfir því að fá
allar pæjurnar í heim-
sókn að allt kvöldið
hjá húsmóðurinni eftir
matinn fór í að reyna
að svæfa hann.“
TÓNLISTARKONAN RAGNHEIÐUR GRÖNDAL VAR ÞESS FULL-
VISS AÐ KJÚKLINGASÚPAN SEM HÚN FÉKK UPPSKRIFT AÐ HJÁ
MÓÐUR SINNI MYNDI EKKI KLIKKA OG ÞAÐ VAR RAUNIN.
Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is
Ragnheiður Gröndal segist hafa
boðin ekki of stór þegar hún býð-
ur heim í mat og þar njóti nánustu
vinir og fjölskylda oftast matar.
32 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4.5. 2014
Matur og drykkir
Mexíkósk kjúklingasúpa
frá mömmu Ragnheiðar
Fyrir 4-6
2 kjúklingabringur
½ blaðlaukur
1 rauð paprika
1-2 hvítlauksrif
1 msk. kókosolía til að steikja upp úr
1 l vatn
1 kjúklingateningur
1 dós saxaðir tómatar
4 msk. chilisósa (má vera sweet chili)
3 msk. tómatþykkni
2 msk. rjómaostur
salt og pipar eftir smekk
rifinn ostur eftir smekk
1-2 dósir sýrður rjómi
Doritos-flögur eftir smekk
Brúnið kjúklingabringurnar aðeins á
pönnu og leggið til hliðar. Geymið soðið
sem kemur af bringunum við steikinguna
fyrir súpuna.
Saxið papriku, púrrulauk og hvítlauk og
steikið við vægan hita í olíunni í smá-
stund.
Setjið grænmetið í pott ásamt vatni,
tómötum, tómatpúrru, chilisósu og ten-
ingi.
Látið malla í 10-12 mín. og bætið kjúk-
lingabringunum og soðinu út í í lokin og
eldið þar til kjúklingurinn er tilbúinn.
Ragnheiður segir að ekki sé verra að
elda súpuna í Saladmaster súpu- eða raf-
magnspotti. Sjálf er hún afar hrifin af þeim
eldunargræjum og segir eldamennskuna
hafa náð nýjum hæðum eftir að hún fékk
sér græjunrnar. Þær spara henni einnig
mikinn tíma. „Þessa súpu hef ég eldað
mjög oft í matarboðum og hún virkar allt-
af, er bæði saðsöm, ágætlega holl og
ótrúlega bragðgóð.“
Berið súpuna fram með sýrðum rjóma,
rifnum osti og Doritos-flögum.