Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.05.2014, Side 51

Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.05.2014, Side 51
4.5. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 51 notast við. Það má reikna með að þetta hafi fyrst og fremst verið gert með leitarvélar í huga, en fyr- irtæki af þessari stærðargráðu vill væntanlega sitja efst yfir leitarnið- urstöðu hjá Google fyrir þetta vin- sæla leitarorð. 11-10 Slots.com - $ 5.500.000 Þetta lén fór á uppboð árið 2009, en seldist ekki. Það var netleikja- fyrirtæki sem kallast Bodot sem keypti það í beinni sölu í framhald- inu til að hýsa fjárhættuspil á net- inu. Eigandi fyrirtækisins sagði í fréttatilkynningu að á þessu verði teldi hann fyrirtækið hafa stolið léninu, enda velta fjárhættuspil á netinu umtalsverðum fjárhæðum og því eftir miklu að sækjast. 11-10 Casino.com - $5.500.000 Ef Slots.com er rúmlega fimm milljóna dollara virði, þá hlýtur Casino.com að vera að minnsta kosti jafn mikils virði. Það var fjár- hættuspilafyrirtæki á Gíbraltar sem keypti þetta lén árið 2007, og má reikna með að það hafi marg- borgað sig. 9 Beer.com - $7.000.000 Saga lénsins Beer.com er sérstök. Það var fyrst skráð árið 1993 af manni sem heitir Bill Fisher. Hann skráði einnig lénin Budweiser.com og Guinness.com. Fyrir þau lén fékk hann á sínum tíma 25 kassa af Budweiser og ferð til Írlands fyrir tvo, frá viðkomandi fyr- irtækjum. Færri sáu þó verðmæti í léninu Beer.com framan af. Árið 2004 var það selt fyrir litla $80.000. Nokkrum mánuðum síðar var það endurselt fyrir $7.000.000, sem flestum þætti ágæt ávöxtun. Það merkilega við þessa rándýru fjár- festingu er þó að hún stendur auð. Ef þú slærð inn Beer.com, þá tek- ur ekkert við þér annað en hvítur skjár. 8-7 Diamonds.com - $7.500.000 Ef það er eitthvað sem er dýrara en áfengi (í það minnsta hérlendis) þá eru það demantar. Það var skartgripasali frá Evrópu sem keypti lénið, en hann hafði þá þeg- ar rekið blómlega skartgripaversl- un á vefnum Ice.com. Það er bara eitthvað við það að eiga lénið fyrir vöruna sem þú ert að selja. 8-7 Business.com - $7.500.000 Business.com er fyrsta almenna leitarorðið sem seldist fyrir háar upphæðir, en það var selt fyrir sjö og hálfa milljón dollara árið 2009. Það var keypt til þess að hýsa fyr- irtækjaskrá og keppa við skráning- arsíður á borð við Yellowpages.com (seinna Yp.com). 6 Fb.com - $8.500.000 Facebook keypti lénið Fb.com af samtökunum American Farm Bu- reau Federation árið 2010. Þó að lítil hætta sé á ruglingi á þessum tveimur lénum, þá sá Facebook sér hag í að kaupa lénið til þess að nota til að stytta vefsíðuslóðir á Facebook, sérstaklega þegar þeim er deilt í gegnum samfélagsmiðla á borð við Twitter. Það er munur á að deila fb.com/mbl eða Facebook- .com/Morgunbladid, svo dæmi sé tekið. 5 Porn.com - $9.500.000 Klám er ein fyrirferðarmesta sölu- varan á netinu og leitartraffík með lykilorð tengd klámi er gríðarleg, en það hefur löngum verið sú „vara“ sem mest er leitað eftir á netinu samkvæmt Google. Það þarf því engan að undra að þetta lén hafi farið á stórfé þegar það var selt árið 2007. 4 Fund.com - $9.900.000 Þetta lén var keypt til að hýsa fjármálaþjónustu af einhverjum toga samkvæmt upplýsingum um viðskiptin á sínum tíma. Enginn veit þó raunar hvað nákvæmlega á að vera á þessu léni, því það stend- ur autt, líkt og Beer.com. En 10 milljónir dollara eru lítið verð fyrir hvíta vefsíðu. 3 Sex.com - $13.000.000 Kynlíf selur, þetta er gömul klisja og ný. Árið 1994 skráði maður að nafni Gary Kremen þetta lén, en hann átti einnig vinsæla stefnu- mótasíðu sem heitir Match.com. Árið 1995 svindlaði maður að nafni Stephen Cohen lénið úr höndum Kremens með því að falsa bréf og faxsendingar til skráningaraðila lénsins. Það tók fimm ár í rétt- arsölum fyrir Kremen að fá lénið til baka. Hann fékk reyndar $40 milljónir í skaðabætur þegar upp var staðið, en lénið velti þá í kring- um hálfri milljón dollara á mánuði í gegnum auglýsingasölu. Það þarf því vart að koma á óvart að Sex- .com var eitt dýrasta lén sögunnar þegar það var keypt árið 2010. Það merkilega við þá sölu er því mögu- lega að það var keypt úr þrotabúi gjaldþrota fyrirtækis. Líklega er rétt að ganga ekki að klámpening- unum of vísum. 2 Insure.com - $16.000.000 Insure.com er tryggingamiðlun sem selur tryggingar frá mörgum ólíkum tryggingarfyrirtækjum og hjálpar neytendum að finna hvað hentar þeim best. Tryggingabrans- inn hefur löngum þótt æði harður í Bandaríkjunum og því kemur vart á óvart að þetta lén hafi sótt meira en lastarlén tengd bæði fjár- hættuspilum, áfengi og klámi, eða hvað? 1 Vacationrentals.com - $35.000.000 Í sögu viðskipta með lén er salan á Vacationrentals.com ein sú skrýtn- asta. Það var fyrirtækið Homea- way.com, sem keypti lénið á metfé árið 2007. Það var þá þegar eitt af leiðandi fyrirtækjum heimsins í að framleigja íbúðir einstaklinga yfir sumarleyfistímann, líkt og Airbnb gerir. Fyrirtækið hafði safnað um 400 milljónum dollara frá fjár- festum til frekari viðskiptaþróunar. Forstjóri fyrirtækisins sagði í fyr- irlestri nýlega að fyrir þessa pen- inga hefði hann meðal annars ákveðið að kaupa lénið Vacation- rentals.com til þess eins að passa að það hafnaði ekki í höndunum á Expedia, eða öðrum samkeppnisað- ilum. Bara svona ef ske kynni. Það er raunar fátt sem bendir til þess að Vacationrentals.com væri aug- ljóst lén fyrir samkeppnisaðila, eða að Expedia eða önnur fyrirtæki hefðu raunverulega verið að spá í að fara í samkeppni við Homea- way.com, en það er alltaf betra að byrgja brunninn. * Á topp 20 listanum mámeðal annars finnalén fyrir vef sem sérhæfir sig í sölu á gjafabréfum – FULLT HÚS ÆVINTÝRA Við bjóðum upp á 6 mánaða vaxtalausar létt- greiðslur Visa og Euro! Grillflötur 450x470 mm 2 brennarar 79.900KR. CHAR-BROIL GASGRILL Léttgreiðslur 13.317 KR. í 6 mán. Grillflötur 670x470 mm 3 brennarar 129.900KR. CHAR-BROIL GASGRILL Léttgreiðslur 21.650 KR. í 6 mán. Grillflötur 790x470 mm 4 brennarar 159.000KR. CHAR-BROIL GASGRILL Léttgreiðslur 26.500 KR. í 6 mán. Grillflötur 280x440 mm 1 brennari 39.900KR. CHAR-BROIL X200 FERÐAGASGRILL Léttgreiðslur6.650 KR. í 6 mán.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.