Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.05.2014, Side 34
Kristján Jens Kristjánsson, verkefnastjóri hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins.
34 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18.5. 2014
Matur og drykkir
É
g man eftir brunum í Árbæ og Grafarvogi þar
sem fór illa vegna þess að það var ekki nægi-
lega vel hugsað um gasgrill. Í Árbæjarmálinu
gleymdist að slökkva á grillinu og vegna að-
stæðna bráðnaði grillið og það kviknaði í.
Að grilla á gasgrillum er frekar ung iðja hér á Ís-
landi. Gasgrill verða ekki algeng hér á landi fyrr en í
kringum 1990. En það er ekkert að óttast fari fólk
eftir nokkrum einföldum reglum,“ segir Kristján Jens
Kristjánsson, verkefnastjóri hjá Slökkviliði höfuð-
borgarsvæðisins.
Kristján á gamlan trébústað og stóð gasgrillið hans
of nálægt útiveggnum eitt sinn. Sem reyndur slökkvi-
liðsmaður áttaði hann sig þó í tæka tíð á að grillið
stóð of nálægt og kom í veg fyrir tjón. Einnig hefur
hann fengið vatnsbunu á sig úr þrýstijafnara en þá
hafði vatn lekið í þrýstijafnarann. Kristján segir að
það eigi alltaf að snúa þrýstijafnaranum niður. Lítið
gat er á honum sem rigningarvatn geti farið inn í og
jafnvel frosið, séu grillið og kúturinn geymd úti.
Aldrei á að geyma gaskút þannig að sólarljósið skíni
beint á hann. Það sé vegna þrýstings sem gasið er
undir í kútnum. „Þrýstingurinn á þessum hefðbundnu
kútum er í kringum fjögur millíbör en hitinn frá sól-
inni getur hækkað þann þrýsting upp í 10 millíbör,“
segir hann. Að grilla þarf ekki að vera flókið mál og
telur Kristján að líkja megi við notkun bíla. „Bílar
eru stórhættulegir ef ekki er farið rétt með þá. Ekki
bönnum við bíla. Þetta er í raun einfalt. Það þarf að
athuga slöngur og pakkningar. Séu rifur á þessu
tvennu þarf að skipta um. Ágæt þumalputtaregla er
að skipta um þetta tvennt á þriggja til fimm ára
fresti. Þegar kveikt er á grillinu verður það að
standa rúman metra frá útivegg og glugga. Við fáum
alltof oft útköll vegna þess að rúða hefur sprungið
vegna hita frá grilli sem stóð of nálægt.
Einnig er mikill misskilningur að það þurfi að
skrúfa frá gaskútnum alveg í botn. Það skiptir engu.
Það kemur alveg jafn mikið gas út úr kútnum hvort
sem hann er skrúfaður í botn eða ekki.
Það má alls ekki kveikja upp í grillinu með lokið á.
Ég hef komið að slysum þar sem menn hafa farið illa
út úr því og svo er það að hafa gaskútinn ekki beint
undir því. Feiti sem brennur ekki upp fer niður og
það hefur gerst að það hefur kviknað í slöngunni af
sjóðheitri feiti. Það má alveg þrífa grill að innan, það
er bæði fallegra og getur komið í veg fyrir bruna.
Svo má ekki gleyma að slökkva fyrst á kútnum og
svo grillinu. Þá er ekkert gas í slöngunni. Þetta er
svona grunnurinn í örygginu gagnvart gasgrillun.“
Kristján segir einnig að fólkið á stöðinni sé alltaf
til í góðan grillmat – enda fátt betra. Það gefist hins-
vegar alltof sjaldan tími til að henda góðri steik á
grillið, því útköllin og sjúkraflutningarnir sem
slökkviliðið sinnir taki sér aldrei frí og nóg sé að
gera.
Morgunblaðið/Þórður
AÐ MÖRGU ER AÐ HYGGJA ÁÐUR EN STEIK ER SETT Á GRILLIÐ
Hættulaust ef farið
er eftir reglum
KRISTJÁN JENS KRISTJÁNSSON, VERKEFNASTJÓRI HJÁ SLÖKKVILIÐI HÖFUÐBORGARSVÆÐ-
ISINS, HEFUR KOMIÐ AÐ BRUNUM ÞAR SEM EKKI VAR RÉTT STAÐIÐ AÐ GRILLUN MATAR.
PRÓPANGAS SÉ ÞÓ HÆTTULAUST SÉ HUGAÐ VANDLEGA AÐ NOKKRUM ATRIÐUM.
Benedikt Bóas benedikt@mbl.is
SHS-borgarinn
120 g hamborgari
2 stk. Maribo-ostsneiðar
1 sneið af ananas úr dós
3 stk. beikonsneiðar
½ sveppur, skorinn í sneiðar
hvítlaukssalt, hamborgarakrydd og
pipar eftir smekk
sinnepssósa (fer á neðra brauð)
HP BBQ-sósa (fer á efra brauð)
gúrka, skorin í sneiðar
tómatur, eftir smekk
rauðlaukur, eftir smekk
Aðferð: Grillið hamborgarann, kryddið
eftir smekk og setjið ostsneiðar ofan á
þegar búið er að snúa hamborgaranum.
Setjið ananasinn á grillið en gætið þess að
snúa honum ört svo hann brenni ekki.
Ananas þarf töluvert langan tíma á grill-
inu.
Hitið hamborgarabrauð smástund á
grillinu. Steikið beikon en passið feitina
sem lekur niður.
Ef það er panna á grillinu er gott að
steikja sveppi, hita rauðlaukinn og jafnvel
má henda smáhvítlauk saman við.