Morgunblaðið - 06.08.2014, Side 1
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Mikill uppgangur er í atvinnulífi
Vestmannaeyja, ekki síst í ferða-
þjónustu, og er skortur á vinnuafli í
bæjarfélaginu. Vegna eftirspurnar
hyggst Eimskip fjölga ferðum með
Herjólfi í allt að 37 á viku árið 2015.
Metfjöldi skemmtiferðaskipa sem
leggja leið sína til Vestmannaeyja á
þátt í fjölgun erlendra ferðamanna.
skipið sem hefur komið til hafnar í
Vestmannaeyjum.
Andrés Sigurðsson, hafnsögu-
maður í Eyjum, segir að búist sé við
mikilli fjölgun skemmtiferðaskipa.
„Það koma 25 skemmtiferðaskip í
sumar og það stefnir í að það komi 35
næsta sumar. Fyrr á öldinni var al-
gengt að það kæmu 10-15 slík skip á
ári,“ segir Andrés.
Gríðarlegur vöxtur í Eyjum
Eimskip undirbýr 37 ferðir með Herjólfi á viku á næsta ári sem er metfjöldi
Nær ekkert atvinnuleysi 35 skemmtiferðaskip munu sigla til Eyja árið 2015
Menningin blómstrar
» Aðsókn að gosminjasafninu
Eldheimum það sem af er ári
er langt umfram væntingar.
» 24 staðir bjóða nú mat til
sölu í Eyjum og er það gríðar-
leg aukning á fáum árum.
MSkortur er á.... »6
Ólafur Þór Snorrason, hafnar-
stjóri í Vestmannaeyjum, segir
skipaumferðina þyngjast ár frá ári.
Skemmtiferðaskipið Prinsendam,
sem lagðist að Nausthamarsbryggju
í gær, er það stærsta sem komið hef-
ur inn í höfnina í Eyjum. Það er
39.000 brúttólestir og 204 metrar.
Fyrir utan höfnina var skipið Veen-
dam, 57.000 brúttólesta skemmti-
ferðaskip sem var of stórt til að geta
lagst við höfnina. Það er stærsta
Ljósmynd/Óskar Friðriksson
Vestmannaeyjar Skemmtiferðaskipin Prinsendam og Veendam, í bakgrunni, í Vestmannaeyjahöfn í gær, ein stærstu skip sem þangað hafa komið.
M I Ð V I K U D A G U R 6. Á G Ú S T 2 0 1 4
Stofnað 1913 181. tölublað 102. árgangur
ÚTILEGUSTEMNING
Í RAFMAGNAÐRI
HÖFUÐBORGINNI
HÖFUÐBÝLI Á
ÁLFTANESI
FRIÐLÝST
ÓVISSA MEÐ
GEITURNAR Á
HÁAFELLI
ATVINNA OG ROKK 4 ERFIÐLEIKAR 10INNIPÚKINN 30
Langfæstir þeirra ferðamanna sem
skoðuðu Sólheimajökul í gær vissu
af því óvissustigi sem var lýst yfir á
mánudaginn við jökulinn og er enn
í gildi.
Óvissan ríkir við jökulsporðinn
en þar er hætta á að ís brotni frá
jöklinum og fljóti út í sístækkandi
lón fyrir neðan hann. Ekki er um
neinn stóratburð að ræða að sögn
Magnúsar Tuma Guðmundssonar,
prófessors í jarðeðlisfræði, en
vegna þess fjölda ferðamanna sem
kemur að jöklinum á degi hverjum
er ekki annað hægt en að vara fólk
við og loka ákveðnum leiðum ná-
lægt jökulsporðinum og við lónið.
Fjallaleiðsögumanni, sem geng-
ur daglega upp á jökulinn, finnst
ekki nóg að gert og vill sjá stórt
aðvörunarskilti, á nokkrum tungu-
málum, við bílaplanið. Hann segist
hafa séð ferðamenn fara of nálægt
hættusvæðinu uppi á jöklinum.
Vegna hættunnar fara leiðsögu-
menn með hópa inn á miðjan jökul-
inn í stað þess að vera nálægt
sporðinum eins og áður. Engin
hætta á að vera fólgin í því en
hættan felst í þeim sem ferðast ein-
ir án leiðsagnar og gætu álpast á
hættusvæðið.
Íslenskur leiðsögumaður sem var
með hóp á svæðinu í gær segist
hafa varað fólk við því að fara upp
á ísinn frá því í snemma í júlí, enda
hafi hann séð miklar breytingar á
jöklinum í sumar og lónið stækka
hratt. ingveldur@mbl.is »14-15
Ferðamenn fara of nálægt
Verður að hafa varann á við Sólheimajökul vegna fólksins
Morgunblaðið/Eggert
Sólheimajökull Björgunarsveit stóð vaktina í gærdag og lögreglan leit við.
Nú styttist í stórtónleika með
bandaríska poppgoðinu Justin
Timberlake í Kórnum í Kópavogi
24. ágúst nk. Ísleifur Þórhallsson,
framkvæmdastjóri tónlistar- og við-
burðasviðs Senu, segir þetta verða
umfangsmestu tónleika sem haldn-
ir hafa verið hér á landi. Með Tim-
berlake sjálfum koma um 100
manns; listamenn, tæknimenn, að-
stoðarmenn o.fl. Við bætast um 100
tæknimenn frá Íslandi og með
gæslu, umferðarstjórn og öðrum
verkefnum áætlar Ísleifur að allt að
500 manns vinni við tónleikana í
Kórnum. Samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins mun Timberlake
koma til Íslands nokkrum dögum
fyrir tónleikana, sem sendir verða
beint út á netinu á vef Yahoo. »13
Allt að 500 manns
kringum Timberlake
Reuters
Stjarna Það styttist í að Justin Timber-
lake komi til landsins vegna tónleikanna.
Páll Her-
mannsson flutn-
ingahagfræð-
ingur telur að
draga megi úr
kostnaði við
flutning á
vörum til og frá
landinu með
aukinni sam-
vinnu skipa-
félaga. Það gæti lækkað verð til
viðskiptavina. Hann segist telja
að núgildandi samkeppnislög
standi í vegi fyrir slíkri samvinnu
skipafélaganna. Páll segir að með
samsiglingum á leiðum sem þegar
er samkeppni á geti skipakostn-
aður við gámaflutninga minnkað
um 20% með svipaðri eða betri
þjónustu. Hagræðing gæti leitt til
10% lækkunar heildarflutnings-
kostnaðar. » 16
Vill auka samvinnu
skipafélaganna
Páll Hermannsson