Morgunblaðið - 06.08.2014, Page 12

Morgunblaðið - 06.08.2014, Page 12
12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. ÁGÚST 2014 Kristján H. Johannessen khj@mbl.is Hrun í sandsílastofninum árið 2005 leiddi af sér atferlisbreytingu meðal sílamáfa í grennd við höfuðborgar- svæðið. Þetta segir Gunnar Þór Hallgrímsson, fuglafræðingur og dósent í dýrafræði við Háskóla Ís- lands. Langstærsta varpsvæði máfa hér á landi er á Miðnesheiði á Reykjanesskaga. „Strax í kjölfar þess fóru máfarnir í miklum mæli að leita inn í borg og bæi í leit að æti. Frá þessum tíma hefur varp þessara fugla verið meira og minna úr skorðum,“ segir Gunnar Þór og bendir á að fjölgun sílamáfa í höfuðborginni sumrin 2005 og 2006 hafi því aðallega stafað af atferlis- breytingu fuglanna fremur en veru- legri aukningu í stofni. Mikil aðlögunarhæfni máfa Sandsíli er mikilvæg fæða fyrir sílamáfa, lunda og kríu hér við land. Þegar sandsílastofninn tók að hrynja fyrir um tíu árum síðan gripu máfarnir til þess ráðs að leita ætis annars staðar. „Ef lundinn og krían hefðu sömu hæfileika við leit að æti þá hefðu þær tegundir vafalaust gert slíkt hið sama. Lundinn er hins vegar ekki þekktur fyrir að taka mat af grillum fólks svo við verðum ekki jafn vör við breytingu hjá þeim. Það koma þó fram sömu áhrif í vörp- unum, þ.e. þeir verpa síður.“ Spurður hvort máfar búi yfir mik- illi aðlögunarhæfni kveður Gunnar Þór já við. „Þeir deyja hreint út sagt ekki ráðalausir og geta valið sér fjöl- breytta fæðu. Ef kjörfæða er ekki til staðar þá leita þeir oft til fólks þaðan sem fæðu er gjarnan að fá.“ Tjörnin ekki jafn þéttsetin Minna hefur nú sést af máfi við Tjörnina í Reykjavík en undanfarin ár. Telja margir ástæðu þess vera meira æti úti á sjó en verið hefur. Aðspurður segist Gunnar Þór ekki vita til þess að sandsílastofninn sé farinn að taka við sér af neinni al- vöru. „Ég hef ekki séð nein gögn sem benda til þess. Það sem hins vegar gerist á svona löngum tíma er að máfarnir hætta að leita á varp- svæðin auk þess sem fuglum fækkar þegar fáir ungar komast á legg. Á ári hverju detta út um tíu prósent af varpfuglunum og ef ekki næst að fylla í skörðin þá fækkar vitanlega í stofninum,“ segir hann. Gunnar Þór segir stofnstærð síla- máfs á suðvesturhorni landsins hafa talið yfir 100.000 fugla árin 2004 til 2005. Í grennd við höfuðborgina, einkum við sorphauga, eru um 7.000 máfar skotnir á ári hverju. Aðspurður segir Gunnar Þór erf- itt að meta hvort þessi mikli fjöldi sílamáfa sem skotinn er ár hvert hafi áhrif á stærð stofnsins. „Áhrif skotveiðanna eru í raun ókunn en ljóst er að sílamáfum hefur fækkað tölu- vert á suðvesturhorni landsins undanfarin ár.“ Færri sílamáfar á suðvesturhorninu  Fjölgun sílamáfa í höfuðborginni sumrin 2005 og 2006 mátti einkum rekja til atferlisbreytingar vegna skorts á sandsílum  Leituðu þá meira inn í bæi eftir æti  Ætið í sjónum að aukast á ný Ljósmynd/Jón Örn Guðbjartsson Sílamáfur Gunnar Þór Hallgrímsson, fyrir miðju, Íris Mýrdal Kristinsdóttir og Bob Dusek fóru í vor norður í land til þess að veiða og merkja máfa. Guðmundur Björnsson, rekstr- arstjóri meindýravarna Reykja- víkurborgar, segir mun færri kvartanir hafa borist í ár vegna ágangs sílamáfa í höfuðborginni en undanfarin misseri. „Það hefur verið fremur lítið um kvartanir í ár en auðvitað berast þó alltaf einhverjar kvart- anir frá fólki. Ástæðan er senni- lega sú að æti virðist hafa aukist í sjónum í sumar,“ segir hann og bendir á að máfum hafi t.a.m. fækkað töluvert við Tjörnina í miðbæ Reykjavíkur. „Þegar hart er í ári á sjón- um þá sækja máfarnir mjög í bæinn í leit að fæðu. Þeir eru þekktir fyrir að leita á fólk enda þurfa allir að borða.“ Minna um kvartanir í ár REYKJAVÍKURBORG Líðan hjólreiða- manns sem varð fyrir bíl við Mý- vatn í fyrra- kvöld er eftir atvikum góð. Hjólreiðamað- urinn er 29 ára dönsk kona sem var á ferð eftir þjóðveginum þeg- ar hún lenti á bíl sem kom akandi út af bílastæði. Konan var í fyrstu send til Akureyrar til aðhlynn- ingar. Í kjölfarið var ákveðið að senda hana til Reykjavíkur til rann- sókna þar sem aðbúnaður til að at- huga höfuðmeiðsli er betri en á Ak- ureyri. Samkvæmt upplýsingum frá lög- reglunni á Húsavík eru meiðsl kon- unnar ekki alvarleg. Meiðsl dönsku kon- unnar ekki alvarleg Morgunblaðið/Rax Aðfaranótt laugardags kom til slagsmála á Flúðum sem lauk með þeim hætti að maður tók upp dúka- hníf og lagði til annars og risti upp fótlegg hans. Samkvæmt upplýs- ingum frá lögreglu er enn margt óljóst um árásina. Rannsóknardeild lögreglunnar á Selfossi er með málið til skoðunar þar sem þarna er um að ræða alvar- lega líkamsárás. Lögreglan biður alla þá sem veitt geta upplýsingar um aðdraganda átakanna, árásina og lyktir hennar að hafa samband í síma 480-1010. Önnur líkamsárás á Flúðum að- faranótt laugardags var kærð til lögreglu. Í því tilviki var um minni háttar árás að ræða þar sem stimp- ingar áttu sér stað milli ungs fólks. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Flúðir Hnífsárás er til rannsóknar. Margt enn óljóst í hnífstungumáli Á sunnudag var komið að meðvit- undarlausu barni í setlaug við sumarbústað í Hrunamannahreppi. Barninu var komið til meðvit- undar og flutt með þyrlu Land- helgisgæslunnar á slysadeild Landspítala til frekari aðhlynn- ingar. Ekki fengust frekari upplýs- ingar um líðan barnsins á Land- spítalanum í gærkvöldi. vidar@mbl.is Komið að meðvit- undarlausu barni Niðurstöður nýrrar könnunar Festu um afstöðu Íslendinga til sam- félagsábyrgðar fyrirtækja bendir til þess að tæpur helmingur almenn- ings hér á landi telji að fyrirtæki hafi jákvæð áhrif á samfélagið. Það er ívið lægra hlutfall en í öðrum löndum Evrópu. Ketill B. Magnússon, fram- kvæmdastjóri Festu, segir að vissu- lega sé áhyggjuefni að færri Íslend- ingar telji að fyrirtæki hafi jákvæð áhrif á samfélagið en íbúar í öðrum löndum. Hann bendir þó á að hlufall þeirra sem vita ekki eða svara ekki um áhrif fyrirtækja sé mun hærra á Íslandi en annars staðar og að það sé vísbending um að mikið verk sé óunnið þegar kemur að fræðslu og umræðu um samfélagsábyrgð fyr- irtækja hér á landi. Góðgerðarmál og umhverfisvernd Styrkir til góðgerðamála og um- hverfisvernd koma oftast upp í huga fólks þegar það hugsar um samfélagsábyrgð fyrirtækja. Það eru sömu tvö málefni og oftast voru nefnd í könnun Festu í fyrra. Könn- unin leiðir í ljós að 48% almennings finnst áhrif fyrirtækja á íslenskt samfélag vera jákvæð þegar á heildina er litið, 28% telja áhrif þeirra neikvæð og 25% vita ekki eða taka ekki afstöðu. Íslenskir stjórn- endur hafa meiri trú á jákvæðum áhrifum fyrirtækja, en 69% þeirra telja áhrif fyrirtækja jákvæð á ís- lenskt samfélag, 13% þeirra telja áhrifin neikvæð og 18% vita ekki eða taka ekki afstöðu. Þegar niðurstöðurnar eru bornar saman við könnun Evrópusam- bandsins meðal Evrópuþjóða kemur í ljós að 41% Evrópubúa telur fyr- irtæki hafa neikvæð áhrif á sam- félag sitt en 52% telja þau hafa já- kvæð áhrif. Þar eru hins vegar aðeins 7% sem segjast ekki vita eða taka ekki afstöðu. Í Danmörku telja 85% almenn- ings fyrirtæki hafa jákvæð áhrif, 54% Breta, 67% Íra og 60% Banda- ríkjamanna. Í öllum þessum löndum er hlufall þeirra sem vita ekki eða taka ekki afstöðu mun lægra en á Íslandi eða 5–9% á móti 25% al- mennings á Íslandi. gudmundur@mbl.is Þörf á meiri fræðslu um samfélagsábyrgð  Tæpur helmingur Íslendinga telur fyrirtæki hafa jákvæð áhrif á samfélagið  Ívið lægra hlutfall en í öðrum löndum Morgunblaðið/Golli Könnun 48% telja fyrirtæki hafa já- kvæð áhrif á íslenskt samfélag. Borgaðu eftir 14 daga! RAMLENGJUM FR AM YFIR VERSLUN ARMANNAHELGIN A! ÁMA- SALA HJÓLA-OGSPORTVÖRUVERSLUNIN · FAXAFENI 7 SÍMI 5 200 200 · GAP.IS OPIÐMÁN-FÖSKL.9-18 -LOKAÐLAUGARDAGOGFRÍDAGVERSLUNARMANNA ALLT AÐ 50% AFSLÁTTUR GRÍPTU TÆKIFÆRIÐ! FULLUR GÁMUR AF MONGOOSE HJÓLUM SEM VIÐ ÞURFUM A Ð LOSNA VIÐ - STR AX! SÖLUMENN OKKAR VERÐA Í SAMNINGS STUÐI!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.