Morgunblaðið - 12.08.2014, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 12.08.2014, Qupperneq 13
FRÉTTIR 13Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. ÁGÚST 2014 Ingileif Friðriksdóttir if@mbl.is Íslenskur maður, Jóhann Helgi Heiðdal, eignaðist eineggja þríbura- drengi með danskri konu sinni, Kar- in Kristensen, aðfaranótt sunnu- dags eftir náttúrlega þungun. Fjölskyldan dvelst enn á spítala í Danmörku, en drengirnir fæddust rúmum 11 vikum fyrir tímann. „Þetta er mikið spennufall en al- veg yndislegt,“ segir Brynja Sigur- óladóttir, föðuramma drengjanna. Hún segir það hafa verið vitað fyr- irfram að áhættan væri mikil enda mjög sjaldgæft að eineggja þríburar verði til á náttúrulegan hátt. Að því er kemur fram á netsíðunni Wikipe- diu fæðast eineggja þríburar aðeins einu sinni í hverjum 500.000 fæð- ingum, og enn óalgengara er að það gerist á náttúrulegan hátt. „Þetta var erfitt því það var mikil óvissa en maður er rétt farinn að trúa þessu núna,“ segir Brynja og bætir við að mikið sé um fjölbura í hennar ætt. „Ég á frændur sem eru þríburar og svo er fullt af tvíburum í ættinni,“ segir hún. Ekki náðist tal af Jóhanni Helgi í gær en hann sagði við Fréttablaðið, að öllum heilsaðist mjög vel, bæði móður og börnum. Ekki fyrsta dæmið Þetta er ekki í fyrsta skipti sem eineggja þríburar fæðast í íslensk- um fjölskyldum. Hjónin Guðbjörg Gunnarsdóttir og Sigfús Ö. Erlings- son eignuðust eineggja þríburast- úlkur á Landspítalanum 15. júlí 1985, einnig eftir náttúrulega þung- un. „Það er auðvitað ótrúlegt að eitt egg og ein sæðisfruma geti framleitt svona mikið,“ segir Guðbjörg, sem í dag á þrjár 29 ára gamlar stúlkur, sem allar eru eins. „Ég man alltaf eftir því að fæðingarlæknirinn sagði að það væri allt eins á þeim: negl- urnar, eyrun og tærnar. Þetta er ennþá svona í dag, þær eru með sama háralit, tennur, neglur og tær. Það er allt eins á þeim,“ segir hún. Guðbjörg segir mikið af fjölburum í fjölskyldum þeirra hjóna, en afi Sig- fúsar var tvíburi, pabbi hans átti tví- burasystur og bróðir hans á tvíbura. „Svo er þetta aðeins lengra í minni ætt, eða upp í 3ja ættlið,“ segir hún. Íslendingur eignaðist eineggja þríbura  A.m.k. í annað sinn sem eineggja íslenskir þríburar fæðast Ljósmynd/Jóhann Helgi Heiðdal Þríburar Þegar drengirnir fæddust hafði móðirin aðeins gengið 31. viku. Sá stærsti var sjö merkur, næsti sex merkur og sá minnsti fimm og hálf mörk. Líkurnar litlar » Samkvæmt Wikipediu fæð- ast eineggja þríburar aðeins einu sinni í hverjum 500.000 fæðingum, og enn óalgengara er að það gerist á náttúrulegan hátt. » Áhættusamt er að ganga með þríbura og er mun líklegra að fjölburar fæðist fyrir tím- ann. Nýfæddu íslensku þríbur- arnir fæddust eftir tæplega 31 viku meðgöngu. www.volkswagen.is Atvinnubílar HEKLA býður nú fyrirtækjum Volkswagen Crafter, Extreme Edition, hlaðinn aukabúnaði á einstaklega hagstæðu mánaðargjaldi. Greitt er fast mánaðarlegt leigugjald og bifreiðinni einfaldlega skilað í lok leigutímans. HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is Umboðsmenn: Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · Heklusalurinn Ísafirði Volkswagen Crafter á rekstrarleigu Staðalbúnaður: ESP stöðugleikastýring og spólvörn, Hill Holder og tregðulæsing, ABS bremsur, rennihurð báðum megin, loftpúðar fyrir ökumann og farþega, rafstýrðir upphitaðir hliðarspeglar, fjarstýrð samlæsing, 2 sæta bekkur með geymslurými, armpúðar á bílstjórasæti, fullkomin aksturstölva, útvarp með geislaspilara, 270° opnun á afturdyrum. Millilangur háþekja Langur háþekja VW Crafter með Extreme Edition aukahlutapakka 5.840.637 6.039.841 Sértilboð 4.613.546 4.772.908 12 mán. rekstrarleiga 12 mán. rekstrarleiga Rekstrarleiga 128.559 pr. mán. 131.497 pr. mán. Aukahlutapakki: Hraðastillir (Cruise control), gólfklæðning, hliðarklæðning, fjaðrandi, hæðarstillanlegt og upphitað bílstjórasæti með armpúðum, vélarhitari með fjarstýringu og tímastilli, rafmagnsmiðstöðvarhitari, fjarlægðaskynjarar að framan og aftan, aðgerðarstýri, rennur í flutningsrými, hliðarlýsing, díóðulýsing í flutningsrými. Öll verð eru án vsk. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Ekki eru margir veiðistaðir hér á landi og þótt víðar væri leitað þar sem veiðimennirnir geta mætt án fyrirvara og án alls búnaðar, veitt og tekið síðan fiskinn með sér heim í flökum. Slíkur staður er í Ysta-Vík í Eyjafirði, á leiðinni frá Akureyri til Grenivíkur. „Það er mikið að gera í þessu yfir hásumarið enda gott fyrir byrjendur að koma og veiða sinn fyrsta fisk til að vekja áhugann á stangveiði,“ seg- ir Magnús Blöndal sem rekur Vík- urlax með Gunnari Blöndal, föður sínum. Gunnar hefur verið með fiskeldi í tjörnum í Ystu-Vík í um tuttugu ár. Fljótlega datt honum í hug að bjóða fólki að veiða og útbjó stóra tjörn. Þangað er sleppt fiski vikulega, mest regnbogasilungi um þessar mundir. Stangirnar bíða tilbúnar „Við erum hér að vinna í fiskeldinu og höfum gaman af því að fá ferða- fólk og fjölskyldur til að veiða hjá okkur,“ segir Magnús en bætir því við að reyndir veiðimenn komi oft til að æfa fluguköstin og taka nokkra fiska í leiðinni. Þá séu dæmi um að hópar komi til að veiða marga fiska til að fara með í reyk. Stangirnar bíða tilbúnar og aðeins þarf að beita maðki. Þegar nýlega er búið að sleppa fiski í tjörnina er fisk- urinn gráðugur og bítur á um leið og öngullinn er kominn í vatnið. Magn- ús tekur fram að hann róist og stundum þurfi fólk að láta reyna á veiðihæfileika sína. Þá sjaldan fisk- urinn gefur sig ekki í stóru tjörninni fær fólk að fara í eldistjörn til að ná í skammtinn. Hægt er að fá aflann slægðan eða flakaðan, þannig að hann sé tilbúinn á pönnuna eða grillið. Veiðimenn- irnir greiða fyrir hvert kíló sem þeir fara með og er ekki greitt sér- staklega fyrir veiðileyfi og afnot af búnaði. Fara heim með slægðan fisk  Veiðin í Ystu-Vík í Eyjafirði er vinsæl hjá byrjendum í stangveiði Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Afli Eins og hálfs til tveggja kílóa regnbogasilungar taka í þegar börn- in halda á stönginni. Fyrstu „stóru“ fiskarnir verða eftirminnilegir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.