Morgunblaðið - 12.08.2014, Qupperneq 40
ÞRIÐJUDAGUR 12. ÁGÚST 224. DAGUR ÁRSINS 2014
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470
1. Líf Ragnars breyttist mikið …
2. Hreinlæti og kæling …
3. Gistiheimili glíma við lús
4. Hundrað hættu að líka við síðuna
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Baldur Ragnarsson, einn liðs-
manna víkingamálmsveitarinnar
Skálmaldar, er ekki sáttur við að vera
neðstur í áheitasöfnun hljómsveitar-
meðlima fyrir Reykjavíkurmaraþonið
sem fram fer 23. ágúst. Skálm-
eldingar munu allir hlaupa, eins og
frægt er orðið. „Menn eru búnir að
nota ansi margt til að finna sér sér-
stöðu í þessari baráttu,“ skrifar Bald-
ur á Facebook um félaga sína og seg-
ir m.a. að Snæbjörn Ragnarsson
skrifi „laaaanga pistla um það hvað
allt er erfitt“ og Gunnar Ben stimpli
inn á að hann hafi aldrei hlaupið áður
sem þýði í raun að hann hafi verið
latur fram að þessu. Jón Geir Jó-
hannsson ber sig einnig illa, segir á
Facebook að hann sé „orðinn skamm-
arlega neðstur í áheitasöfnuninni“.
„Ég er að fara að fara þetta hægt og
ekki tignarlega og það verður frekar
óþægilegt en mér er alveg sama ef að
ég næ að safna pening fyrir Hring-
inn,“ segir Jón Geir. Þegar þetta var
skrifað í gær hafði Baldur safnað
33.500 krónum, Jón Geir 35.500,
Snæbjörn Ragnarsson 79.500, Þrá-
inn Baldvinsson 47.000, Björgvin
Sigurðsson 75.900 og Gunnar
98.000. Þeir sem vilja heita á hlaup-
ara geta gert það á hlaupastyrkur.is.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Rígur meðal hlaup-
andi Skálmeldinga
Tónlistarmaðurinn og plötusnúð-
urinn Ívar Pétur Kjartansson og Kaffi-
barinn bjóða þriðja árið í
röð upp á þemakvöldin
Undir áhrifum og verður
það fyrsta haldið í kvöld
kl. 22. Ívar býður til sín
listafólki sem hann telur
hafa haft áhrif á list-
sköpun sína og í
kvöld kemur fram
með honum tón-
listarmaðurinn
Sin Fang.
Ívar undir áhrifum
Á miðvikudag Minnkandi norðanátt. Lítilsháttar væta norðaust-
antil framan af degi, stöku skúrir syðst, en bjartviðri annars staðar.
Hiti frá 6 stigum á Norðausturlandi, upp í 17 stig sunnanlands.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðan 3-10 en 8-13 austast. Bjartviðri á
Suður- og Vesturlandi, en lítilsháttar rigning eða þokusúld norð-
austan- og austanlands og með norðvesturströndinni.
VEÐUR
Stjarnan er komin upp að
hlið FH á toppi Pepsi-
deildar karla í knattspyrnu
eftir 2:1-sigur á botnliði
Þórs í gærkvöld. Pablo
Punyed skoraði sigur-
markið beint úr frá-
bærri aukaspyrnu í
uppbótartíma. Fram
kom sér úr fallsæti með
1:0-sigri á Val, KR vann
Keflavík 2:0, og Fjölnir og
Breiðablik gerðu 1:1-
jafntefli. »2-4
Punyed kom til
bjargar í blálokin
Rory McIlroy vann sinn fjórða sigur á
risamóti í golfi þegar hann stóð uppi
sem sigurvegari á PGA-meist-
aramótinu um helgina á Valhalla-
vellinum í Kentucky-
ríki Bandaríkjunum.
McIlroy hefur þar
með unnið tvö risa-
mót á jafn-
mörgum mán-
uðum. »4
Rory McIlroy heldur
áfram á sigurbraut
Íslandsmethafarnir Ásdís Hjálms-
dóttir og Hafdís Sigurðardóttir verða
á ferðinni á stærsta móti sumarsins í
frjálsum íþróttum, Evrópumeist-
aramótinu, sem hefst í Zürich í Sviss
í dag. Segja má að Ásdís sé á heima-
velli er hún freistar þess að komast í
úrslit í spjótkasti og hún kveðst í
mjög góðu formi. Íslandsmet Hafdís-
ar í langstökki gæti verið í hættu. »1
Ásdís og Hafdís hefja
keppni á EM í Zürich
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Það eru að líkindum fleiri pólitískir
undirtónar á Tívolí en nokkurri ann-
arri Stuðmannaplötu. Gamli Tívol-
ísgarðurinn í Vatnsmýrinni er yrk-
isefnið og íslenskt samfélag þessa
tíma er með ýmsum hætti speglað í
garðinum, bæði með eftirsjá og
gagnrýni,“ segir Jakob Frímann
Magnússon Stuðmaður.
Hljómsveit allra landsmanna, eins
og Stuðmenn eru stundum kallaðir,
er komin aftur á stjá. Fyrir tveimur
árum hélt sveitin tónleika í Hörpu
með lögum úr gleði- og söngva-
myndinni Með allt á hreinu frá árinu
1982. Og nú er róið á sömu mið með
Tívolítónleikum sem verða í Hörpu í
byrjun september. Undirtektir hafa
verið góðar og miðasala farið vel af
stað.
Brunnurinn ekki þurrausinn
Árið 2014 markar 40 ára hljóð-
ritunarsögu Stuðmanna. Hin fræga
plata Sumar á Sýrlandi kom út 1975
og Tívolí ári síðar.
„Sú plata varð síðan kveikjan að
kvikmyndaævintýri hljómsveit-
arinnar, handritið sem við lögðum
fyrst upp með var byggt á Tívolí-
plötunni. Síðan þróaðist sú kvik-
myndagerð og myndin Með allt á
hreinu var hreinlega spunnin af
fingrum fram. Í ýmsum birting-
armyndum eru hugmyndir, karakt-
erar og lög af Tívolímyndinni í Með
allt á hreinu. Brunnurinn var þó ekki
endilega þurrausinn með því. Það er
ekkert sem útilokar möguleikana á
því að til verði einn góðan veðurdag
kvikmyndin Tívolí,“ segir Jakob,
sem undirstrikar með þessu að
Stuðmenn séu sprelllifandi hljóm-
sveit þó að menn dragi sig stundum
í hlé. Slíkt sé þó aðeins um stund-
arsakir.
Mörg lögin og sögupersónur á
Tívolíplötunni áttu sér skírskotun
í veruleikanum. Þannig segir
Jakob að Bílalagið, Í stórum hring
móti sól, sé táknmynd einkabílsins,
græðgi og ameríkaníseringar.
Hveitibjörn er víða
„Hveitibjörn er Tívolístjórinn,
pólitíkusinn, bisnessmaðurinn sem
makkar með ameríska her-
manninum Frímanni flugkappa. Sig-
urbjörn Eiríksson í Klúbbnum, Ólaf-
ur Jóhannesson dómsmálaráðherra
og ýmsir fleiri samtímamenn komu
til tals við textagerðina og sjálfsagt
endurspeglast Hveitibjörn í fjölda
manna. En Svarti Pétur í Bíólaginu
á sér hins vegar enga fyrirmynd
aðra en þann úr spilastokknum,
hann er víða og almennt heiti yfir
bankaræningja,“ segir Jakob, sem
telur Tívolíplötuna hafa elst vel.
Þeir Stuðmenn sem standa munu á sviðinu í Hörpu í september eru, að
Jakobi Frímanni meðtöldum, Egill Ólafsson, Ragnhildur Gísladóttir, Eyþór
Gunnarsson, Tómas Tómasson, Ásgeir Óskarsson, og Guðmundur Pét-
ursson. Einnig Valgeir Guðjónsson sem hefur verið viðloðandi
sveitina síðustu árin, eftir að hafa staðið utan hennar um all-
langt skeið.
Mikið er lagt í umgjörðina á Hörputónleikunum. „Yrk-
isefnið, Tívolí í allri sinni dýrð, gefur fullt tilefni
til litríkrar og skrautlegrar uppfærslu,“ segir
Jakob. Leikstjórinn Benedikt Erlingsson hefur
verið Stuðmönnum til halds og trausts í þessu
efni og mætti þá fleiri hæfileikamenn nefna.
Yrkisefnið í allri sinni dýrð
LITRÍK OG SKRAUTLEG UPPFÆRSLA
Jakob Frímann
Undirtónarnir óma í Tívolí
Stuðmenn æfa
fyrir Hörpu í
september
Morgunblaðið/Eggert
Gleði Stuðmenn brugðu á leik fyrir æfingu í gær. Frá vinstri talið; Jakob Frímann, Jónas, Egill, Valgeir og Ásgeir.