Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.06.2014, Síða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22.6. 2014
* Andri Freyr Viðarsson á Rás 2: „Kristinn,hvaðan kemurðu?“ Kristinn R. Ólafsson:„Ég kom vestan úr bæ, en ég er úr Eyjum.“Landið og miðinSIGURÐUR BOGI SÆVARSSON
sbs@mbl.is
UM ALLT LAND
AKRANES
Myndlistarkonan Erna
Hafnes var útnefnd
bæjarlistamaður
Akraness 2014 við
hátíðlega athöfn
á Akratorgi á
þjóðhátíðardaginn.
Erna hefur haldið
fjölmargar málverkasýning
síðast hélt hún samsýning
í vita í Akranesvita með H
Guðbrandsdóttur. Mennin
óskaði eftir tilnefningum f
Akranesi og fékk Erna fle
HVOLSVÖLLUR
Hjólreiðakeppnin
Tour de Hvols-
völlur fer fram
á laugardag eftir
viku. Nafnið
vísar til frægustu
hjólreiðakeppni heims,Tour de France,
en keppendur geta valið á milli tveggja
vegalengda; annars vegar frá Reykjavík að
Hvolsvelli, 110 km, hins vegar frá Selfos
48 km. Netskráning er á www.hjolam
SÚÐAVÍK
Murr ehf. í
Súðavík hefur
verið tekið til
gjaldþrotaskipta
að sögn bb.is.
Murr var
stofnað 2008
og framleiddi gæludýrafó rir
hunda og ketti. Fasteignafé gið
Langeyri ehf. og SAH afurðir ehf.
fóru fram á gjaldþrotaskip
AKUREYRI
Líklegt er að nýnemar viðVerkmenntaskólann á
Akureyri verði fleiri í haust en undanfarin ár en
r alls 1.2
knigreinum að sögn Hjalt
tara og hefur aðsókn
ar aldrei verið jafnmikil; t.d. í
véltæknigreina og grunndeild rafi
SEYÐIS
Hljómsv
Dúkk
óhélt
á Ö
S
J
óhannes Jóhannsson skógar-
bóndi á Silfrastöðum í
Skagafirði áformar að
gróðursetja allt að 15.000
skógarplöntur í landareign
sinni á þessu sumri. Liðin eru
23 ár síðan Jóhannes snéri sér að
skógrækt og fyrir fimm árum þótti
saga til næsta bæjar þegar
1.000.000. skógarplantan í Silfra-
staðalandi var sett í jörð. Nú nálg-
ast þær 1,1 milljón og dafna vel.
Það sjá vegfarendur sem aka fram
Skagafjörð.
Silfrastaðir eru syðsti bær í
Blönduhlíð og eru skógarlönd
jarðarinnar frá Bólugili í norðri að
Kotá í Norðurárdal, skammt áður
en ekið er upp á Öxnadalsheiði.
Þetta belti er alls um tíu km langt
og eru efstu trén í um 400 metra
hæð uppi við kletta.
„Þetta starf er heilmikið púl en
afar skemmtilegt. Við getum farið á
fjórhjólum hér um brekkurnar með
plöntur til gróðursetningar. Okkur
hefur gengið vel að undanförnu og
á góðum degi náum við að koma
700 til 800 plöntum í jörð. En þeg-
ar við erum hér uppi í svona brött-
um hlíðum verður þetta tafsam-
ara,“ sagði Jóhannes þegar
Morgunblaðsmaður hitti þau Þóru
Jóhannesdóttur eiginkonu hans í
síðustu viku. Þau voru þá að gróð-
ursetja sprota við Kotá í Norður-
árdalnum – og hvað annað en lerki?
Reynslan sýnir að lerkið dugar
einkar vel til dæmis í grýttum jarð-
vegi og þar sem hvassviðrasamt
eða snjóþungt getur orðið.
Tek ekki peninga í gröfina
Skógræktarstarf á Silfrastöðum
hófst 1991 og eru hæstu trén á
svæðinu nú orðin um 10 m há.
Talsvert er síðan byrjað var að
grisja skóginn. Þó að það sé í
smáum stíl enn sem komið er eru
nytjarnar orðnar talsverðar. Nokk-
uð fellur til af spírum sem notaðar
eru sem girðingarstaurar. Þá er
sprek góður eldiviður.
„Tekjurnar af bændaskógrækt-
inni eru ekki miklar til að byrja
með. En peningarnir koma í fyll-
ingu tímans. Eftir þrjátíu ár eða
svo verður þessi skógur farinn að
skila góðum smíðaviði – og raunar
eru margir farnir að nýta tiltækt
íslenskt timbur við framkvæmdir
sínar. Skógurinn eykur verðgildi
þessarar jarðar en sjálfsagt mun ég
ekki lifa þá tíma að hafa mikinn af-
rakstur af þessu ræktunarstarfi.
Hitt ber á að líta að maður tekur
ekki peningana með sér í gröfina
svo þetta breytir kannski ekki
miklu. Það er góð tilfinning að búa
í haginn fyrir komandi kynslóðir og
skila landinu af sér í betra horfi en
var. Að þessu leyti er ég rækt-
unarmaður þó að mér hafi ekki
verið sýnt um slíkt meðan ég
stundaði fjárbúskap,“ segir Jóhann-
es. Hann segir þau Þóru munu
stunda búskap á Silfrastöðum fram
á næsta ár. Er þá ætlunin að
Hrefna, dóttir Jóhannesar, sem er
skógfræðingur, og Johann Holzt
eiginmaður hennar taki við. Á ann-
að hundrað bændur eiga aðild að
Norðurlandsskógum. Skógrækt
þessi er stunduð með timburfram-
leiðslu í huga en einnig til landbóta,
það er bætt skilyrði fyrir fuglalíf,
ferðaþjónustu og fleira. Fyrir
hverja gróðursetta plöntu fá bænd-
ur greiddar 15 kr. auk greiðslna
fyrir sértækari verk.
Sama ætt hefur setið Silfrastaði í
130 ár. Jóhannes, sem er 65 ára að
aldri, kom í sveitina með foreldrum
sínum tveggja ára gamall og hefur
átt þar heima síðan.
Skýr afrakstur
„Í fáu sér maður afrakstur starfs
síns jafn skýrt og í skógrækt. Hér
erum við með alls 470 hektara und-
ir. Þá eru birkisprotar farnir að
stinga sér upp hér á bökkum Norð-
urár og Héraðsvatna og ef að lík-
um lætur verður þar kominn fal-
legur birkiskógur eftir nokkra
áratugi,“ segir Jóhannes að síðustu.
SKAGAFJÖRÐUR
Milljón tré
og dafna vel
SKÓGURINN SETUR SVIP SINN Á SILFRASTAÐALANDIÐ.
MEÐ SPROTA UM BREKKUR. AFURÐIR EFTIR ÁRATUGI. TÍU
METRA HÁ TRÉ. LANDABÆTUR OG BÚIÐ Í HAGINN.
Jóhannes Jóhannsson og Þóra Jóhannesdóttir hér stödd þar sem „menningin vex í lundi nýrra skóga,“ eins og skáldið orti.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Það er fallegt að líta heim að Silfrastöðum og kirkja setur svip á staðinn.