Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.09.2014, Side 32
32 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.9. 2014
Matur og drykkir
M
ér finnst mjög gaman og mikilvægt að eiga góða nágranna og
Egill og Gyða Rán eru afar góðir og skemmtilegir grannar,“
segir tónlistarmaðurinn Jógvan Hansen en hann og eiginkona
hans, Hrafnhildur Jóhannesdóttir, buðu nágrannahjónum
heim í mat í vikunni.
Pörin eru á svipuðum aldri og eiga börn á sama aldri og Jógvan segist
ekki þekkja annað úr æsku sinni en að nágrannavinátta sé ræktuð.
Jógvan bauð upp á grindhval í forrétt, fisk í aðalrétt og uppskriftina að
eftirréttinum fékk hann lánaða af bloggsíðunni eldhussogur.com.
„Ég hef fengið samskonar forrétt á Ísafirði nema í þann rétt var notuð
nautalund en núna notaði ég grindhval í staðinn. Ég er mikið fyrir fisk-
meti en ég elda þó fisk yfirleitt á fremur einfaldan máta. Þessi uppskrift
sem ég eldaði er því í það flóknasta fyrir
minn smekk en eflaust þykir öðrum hann
fremur einfaldur. Hann er rosalega góður.
En ég elska allan fisk, siginn fisk, soðinn
fisk, steiktan fisk, get borðað endalaust af
fiski.“
Eftirréttinn var Jógvan að prófa í
fyrsta skipti en hann segir hann hafa ver-
ið guðdómlegan. Sérstaklega hafi musco-
vado-sykurinn, sem hann var að prófa í
fyrsta skipti, gefið gott bragð og kakan
hafi verið jafnvel enn betri daginn eftir.
Jógvan er annars í óða önn að undirbúa Frank Sinatra tónleika sem
verða föstudagskvöldið næstkomandi, 19. september í Salnum í Kópavogi
þar sem hann flytur öll helstu lög söngvarans ásamt hljómsveit. Hann
segir lög Frank Sinatra einmitt vera frábæra tónlist til að keyra upp
stemningu í upphafi matarboða en hann hefur verið aðdáandi söngvarans
frá því hann var 13 ára. En hvernig borðar hann fyrir tónleika?
„Ég passa að borða ekki pítsur og mat sem er þyngri í maga en í raun
borða ég hvað sem er – aðalmálið er að borða litla skammta yfir daginn
svo maður sé alls ekki of saddur. Ég myndi til dæmis ekki fara í mat-
arboð sama dag þótt ég sé yfirleitt duglegur að bæði halda og fara í mat-
arboð.“ Enda er fátt betra að Jógvans mati en sameinast í góðra vina hóp
yfir góðum mat á notalegri stund.
Fiskurinn með girnilega maukinu á leið inn í ofn.
Jógvan skenkir vín í glös áður en fólki er boðið að snæða forréttinn.
TÓNLISTARMAÐURINN JÓGVAN HANSEN
Nágrannarn-
ir komu yfir
*Ég elska all-an fisk, sig-inn fisk, soðinn
fisk, steikan fisk,
get borðað enda-
laust af fiski
JÓGVAN HANSEN OG EIGINKONA HANS, HRAFN-
HILDUR JÓHANNESDÓTTIR, BUÐU NÁGRÖNNUM
SÍNUM Í MAT Á DÖGUNUM.
Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is
Grindhvalskjötið fékk Jógvan hjá vinkonu sinni,
Hlédísi Sveinsdóttur, en kjötið er af hval sem rak
á land á Snæfellsnesi í fyrra. Uppskriftin sjálf er frá
ísfirskum vini Jógvans. Hægt er að nota nautakjöt í
staðinn fyrir hvalkjöt.
500 g nautalund, hrefnukjöt eða grind-
hvalur
1 msk. timjan
1-1,5 msk. rósmarin
1 msk. mynta
1-2 lárviðarlauf
1 msk. sítrónupipar
1,5-2 kg gróft sjávarsalt
Snyrtið kjötið og fjarlægið sinar. Myljið kryddið,
allt nema saltið, saman og nuddið því inn í vöðv-
ann. Setjið helminginn af saltinu á mátulega stórt
glerfat undir kjötið. Leggið kjötið ofan á saltbeðið
og takið því næst afganginn af saltinu og dreifið of-
an á. Látið standa á borði í um það bil 4 klst. Fjar-
lægið saltið af kjötinu, pakkið inn í álpappír og
setjið in í frysti. Þar skal það geymt þar til það á
að nota kjötið en takið það samt út 1-2 klst áður
en það skal snætt. Skerið það þá í þunnar sneiðar
þegar það hefur þiðnað aðeins.
HVÍTLAUKSSÓSA MEÐ
2 dl sýrður rjómi
5-6 hvítlauksrif, smátt skorin, marin eða rifin
1 tsk. sítrónupipar
nokkrir dropar tabascosósa
Blandið öllu vel saman í skál
Grafinn grindhvalur