Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.09.2014, Page 42
JASON
WU
SPENNANDI NÝJUNGAR Í FÖRÐUNARHEIMINUM
Áferðarfögur og
ljómandi húð
LJÓMI OG FULLKOMIN ÁFERÐ HÚÐAR ER ÁBERANDI ÁHERSLA
Í FÖRÐUNARLÍNUM TÍSKUHÚSA ÞENNAN VETURINN. FALLEG
HÚÐ DETTUR ALDREI ÚR TÍSKU OG ÞVÍ NAUÐSYNLEGT AÐ
HUGA VEL AÐ HÚÐINNI. UNDIRSTÖÐUATRIÐI SILKIMJÚKRAR,
BJARTRAR HÚÐAR ER GÓÐUR FARÐI.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
Guerlain
8.199 kr.
BB-Booster er BB-krem sem dregur fram ljóma og
jafnar húðlit. Hentar bæði undir farða og eitt og sér.
Guerlain
8.199 kr.
Lingerie De Peau er léttur fljótandi farði sem gefur
húðinni jafnan lit og náttúrulega áferð. Hentar fyrir allar
húðgerðir.
Guerlain
10.299 kr.
Dásamlegur farðagrunnur sem tengir húðvöruna við
farðann. Gefur húðinni aukinn og jafnan ljóma. Má nota
einn og sér til þess að auka ljóma eða undir farða.
Dior
7.699 kr.
Nýi Star-farðinn frá Diorskin er ákaflega
léttur fljótandi farði sem þekur vel og
gefur fullkomna áferð. Farðinn inniheldur
hátt hlutfall af björtum litakornum sem
fanga birtuna og veita húðinni fullkominn
ljóma. Faðinn er endingargóður og helst
vel á húðinni.
Svampur
2.899 kr.
Yves Saint Laurent
7.899 kr.
Nýi fljótandi farðinn frá YSL, Fusion Ink Founda-
tion, er einstaklega léttur og veitir fallega jafna
áferð á húðinni og ilmar vel. Léttleikinn gerir það
að verkum að það dreifist vel úr farðanum en
samstundis gefur hann góða og jafna þekju.
Fusion Ink Foundation helst á húðinni í um 24 tíma
og er fremur mattur, flaskan er glæsileg en hún er
innblásin af íkonískum smóking tískuhússins.
Bursti
7.999 kr.
Yves Saint Laurent
5.990 kr.
Babydoll Kiss & Blush er kremaður
kinna- og varalitur í einni vöru. Gefur
fallega áferð, frískar upp á andlitið og
veitir léttan ljóma.
CALVIN
KLEIN
42 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.9. 2014
Tíska