Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.09.2014, Síða 42

Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.09.2014, Síða 42
JASON WU SPENNANDI NÝJUNGAR Í FÖRÐUNARHEIMINUM Áferðarfögur og ljómandi húð LJÓMI OG FULLKOMIN ÁFERÐ HÚÐAR ER ÁBERANDI ÁHERSLA Í FÖRÐUNARLÍNUM TÍSKUHÚSA ÞENNAN VETURINN. FALLEG HÚÐ DETTUR ALDREI ÚR TÍSKU OG ÞVÍ NAUÐSYNLEGT AÐ HUGA VEL AÐ HÚÐINNI. UNDIRSTÖÐUATRIÐI SILKIMJÚKRAR, BJARTRAR HÚÐAR ER GÓÐUR FARÐI. Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is Guerlain 8.199 kr. BB-Booster er BB-krem sem dregur fram ljóma og jafnar húðlit. Hentar bæði undir farða og eitt og sér. Guerlain 8.199 kr. Lingerie De Peau er léttur fljótandi farði sem gefur húðinni jafnan lit og náttúrulega áferð. Hentar fyrir allar húðgerðir. Guerlain 10.299 kr. Dásamlegur farðagrunnur sem tengir húðvöruna við farðann. Gefur húðinni aukinn og jafnan ljóma. Má nota einn og sér til þess að auka ljóma eða undir farða. Dior 7.699 kr. Nýi Star-farðinn frá Diorskin er ákaflega léttur fljótandi farði sem þekur vel og gefur fullkomna áferð. Farðinn inniheldur hátt hlutfall af björtum litakornum sem fanga birtuna og veita húðinni fullkominn ljóma. Faðinn er endingargóður og helst vel á húðinni. Svampur 2.899 kr. Yves Saint Laurent 7.899 kr. Nýi fljótandi farðinn frá YSL, Fusion Ink Founda- tion, er einstaklega léttur og veitir fallega jafna áferð á húðinni og ilmar vel. Léttleikinn gerir það að verkum að það dreifist vel úr farðanum en samstundis gefur hann góða og jafna þekju. Fusion Ink Foundation helst á húðinni í um 24 tíma og er fremur mattur, flaskan er glæsileg en hún er innblásin af íkonískum smóking tískuhússins. Bursti 7.999 kr. Yves Saint Laurent 5.990 kr. Babydoll Kiss & Blush er kremaður kinna- og varalitur í einni vöru. Gefur fallega áferð, frískar upp á andlitið og veitir léttan ljóma. CALVIN KLEIN 42 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.9. 2014 Tíska

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.