Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.09.2014, Qupperneq 58
58 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.9. 2014
BÓK VIKUNNAR Þeir sem vilja viðburðaríka og æsilega
spennusögu ættu að lesa Síðasta hlekkinn eftir Fredrik T.
Olsson, en þar er allt mannkynið í stórhættu.
Bækur
KOLBRÚN BERGÞÓRSDÓTTIR
kolbrun@mbl.is
K
ristján Jóhann Jónsson, dósent
við menntavísindasvið Háskóla
Íslands, er höfundur bókarinnar
Grímur Thomsen – þjóðerni,
skáldskapur, þversagnir og
vald. „Ef horft er á Grím Thomsen, sögu
hans, ritgerðir hans og bækur, ljóðagerð hans
og þátttöku í stjórnmálum og veraldarvafstri
þá kemur maður aftur og aftur að þessum
efnisþáttum: þjóðerni, skáldskap, þversögn-
unum og valdinu,“ segir Kristján Jóhann.
„Segja má að Grímur hafi gert það sem ekki
var talið hægt á hans tíma, að vera bæði einn
af okkur og einn af hinum.
Grímur náði miklum árangri erlendis. Hann
varð háttsettur valdsmaður, eins og marga Ís-
lendinga dreymdi um að verða þó að þeim
fyndist útlönd óræð og ógnvekjandi. Þjóðin
vildi í senn slíta sambandi við Dani og verða
eins og þeir, svo þversagnakennt sem það
kann að virðast. Alls kyns þjóðsögur fóru af
stað um Grím, hann spilaði á spil við kónginn,
sögðu menn, og var sagður búa við alls konar
lúxus og eiga til dæmis þrenna skó og skyrtu
fyrir hvern dag vikunnar.
Hann kom svo öllum á óvart með því að
verða bóndi, koma heim og fara að búa á
Bessastöðum. Það er ekki fallega gert að
koma út úr draumnum og hetjusögunni og
setjast að í veruleikanum. Ferill Gríms gekk
hvað eftir annað þvert á það sem þjóðin bjóst
við og reiknaði með að hann gerði. Það skilaði
sér í margvíslegum sögnum og sögum sem
menn bjuggu til og eru margar hverjar bölvuð
vitleysa, en ef menn skilja ekki eitthvað vilja
þeir gjarnan útskýra það með sögu.
Í bókinni bendi ég á það sem menn hafa yf-
irleitt ekki tekið inn í myndina sem er að
Grímur Thomsen var iðnaðarmannssonur. Í
frásögnum og túlkunum hér heima hefur verið
talað um hann sem aristókrat en faðir hans
var gull- og úrsmiður. Þess vegna féll Grímur
að mörgu leyti vel inn í danskan félagsskap á
sínum tíma því þar voru synir iðnaðarmann-
anna að vinna sig upp. Borgarastéttin var að
ýta aðlinum úr sessi og taka við valdastöðum
og eignast peninga og þessir menn skildu
Grím og hann þá. Hér heima var ekki orðin
iðnbylting og stéttarstaða Gríms var þess eðlis
að menn hér á landi skildu ekki þverstæðuna í
því að verða bæði valdsmaður í Danmörku og
íslenskur bóndi. Grímur var á undan sinni
samtíð, en hér heima var hann talinn vera á
eftir sinni samtíð, sennilega vegna þess að ís-
lenskri þjóð gekk illa að átta sig á umheim-
inum á þessum tíma.“
Maðurinn sjálfur var ekki bara umdeildur
heldur einnig skáldskapur hans, eins og Krist-
ján Jóhann rekur í bók sinni. „Í bókinni er
sagt frá tveimur rætnustu níðgreinum sem
skrifaðar voru um skáldskap hans þar sem
ausið var yfir hann svívirðingum og niðrandi
yfirlýsingum og hann sagður vera skaðvaldur
í íslenskum skáldskap. Þar fléttast þjóðernið
og skáldskapurinn saman og honum er legið á
hálsi fyrir að vera útlendingur, gamalmenni
og bóndi. Það voru talin spjöll á hreinum ís-
lenskum skáldskap að svona maður væri að
gefa út ljóð.
Ef nánar er að gáð þá eru mörg af ljóðum
Gríms með rómantísk þemu. Þetta eru kvæði
eins og þau sem verið var að yrkja í Evrópu á
þessum tíma þar sem fjallað var um dyggðir
sem tengja má við riddaraskap og menn sem
standa með sjálfum sér og hafa sterka sam-
visku. Í sumum birtist nútímalegur ótti og til-
vistarkvíði. Veruleikinn hótar því að hverfa
inn í órætt myrkið á Sprengisandi. “
Kristján Jóhann segist lengi hafa haft
áhuga á Grími. „Þessir sterku einstaklingar
hans sem sýna þvermóðsku þegar höfðingjar
eru annars vegar, ögra siðareglum, fara sína
leið og gera það upp við sig sjálfir hvað þeim
finnst rétt og rangt, heilluðu mig mjög
snemma. Ég vissi kannski ekki af hverju en
þeir hafa komið til mín aftur og aftur. Ég
varði doktorsritgerð um Grím Thomsen fyrir
tveimur árum. Sveinn Yngvi Egilsson pró-
fessor var leiðbeinandi. Ég hélt þeirri vinnu
svo áfram og útkoman er þessi bók.“
GRÍMUR THOMSEN VAR SAGÐUR VERA SKAÐVALDUR Í ÍSLENSKUM SKÁLDSKAP
„Ferill Gríms gekk hvað eftir annað þvert á það sem þjóðin bjóst við og reiknaði með að hann
gerði. Það skilaði sér í margvíslegum sögnum og sögum sem menn bjuggu til“, segir Kristján Jóhann.
Morgunblaðið/Golli
KRISTJÁN JÓHANN JÓNSSON ER
HÖFUNDUR BÓKAR UM GRÍM
THOMSEN SEM VAR Í LIFANDA LÍFI
BÆÐI UMDEILDUR SEM MAÐUR OG
SKÁLD OG ÓTAL SÖGUR VORU
SAGÐAR AF HONUM.
Einn af okkur og
einn af hinum
Uppáhald er afstætt, þar er oft dagamunur á. Í sérstöku uppáhaldi
núna eru bækurnar um Einar Áskel. Ég finn fyrir undarlegri sam-
kennd með honum Einari, kannski er það bara klippingin. Svo er ég
að lesa dásamlega gamansögu um indverskan fakír sem festist inni í
IKEA-skáp, hún er að koma út í haust. Alveg skríkj-
andi skemmtileg vellíðunarbók eftir franskan landa-
mæravörð.
Af uppáhaldsbókum æskunnar verð ég að nefna
hina ógleymanlegu Kapitolu sem kom út í seríunni
Sögusafni heimilanna um miðja síðustu öld. Sú sería
var algjör fjársjóður af melódrama og átökum fyrir
óharðnaða sál. Ég las Kapitolu alltof snemma og þori
eiginlega ekki að lesa hana aftur því þá gæti dýrðar-
ljóminn farið af henni. Það skiptir öllu að hitta bækur á réttum tíma.
Þegar mig vantar andlega næringu og meiri trú á mannkynið les ég
hina stórlega vanmetnu sögu Alveg glymjandi einvera eftir Boh-
umil Hrabal. Það er í það minnsta einu sinni á ári. Oftast í febrúar.
Og fyrir fólk sem hefur fengið nóg af hefðbundnu spennusögunum
mæli ég eindregið með bókum Svíans Anders de la Motte. Hann
er fáránlega flinkur höfundur sem ég hef miklar mætur á. Sögurnar
hans gerast í nútíma sem við þekkjum, í ofmiðluðu og snjallvæddu
upplýsingasamfélagi. Bækurnar geim og buzz eru svona stafrænn has-
ar á bókarformi – sögur sem fá mann líka til að hugsa öðruvísi um
glæpi og völd. Það þarf ekki gor í allar glæpasögur.
Í UPPÁHALDI
KRISTRÚN HEIÐA HAUKS-
DÓTTIR VERKEFNASTJÓRI
Það er dagamunur á því hvaða bækur eru í uppáhaldi hjá Kristrúnu
Heiðu, en hún les Alveg glymjandi einveru minnst einu sinni á ári.
Morgunblaðið/Eggert
BÓKSALA 1.-31. ÁGÚST 2014
Allar bækur
Listinn er tekinn saman af Félagi íslenskra bókaútgefenda
1 Grillréttir HagkaupsHrefna Rósa Sætran
2 AfdalabarnGuðrún frá Lundi
3 PiparkökuhúsiðCarin Gerhardsen
4 Amma biður að heilsaFredrik Backman
5 Fyrstu 100 tölurnar, litirnirog formin
6 Anna og Elsa eignast nýjan vinWalt Disney
7 MánasteinnSjón
8 Bragð af ástDorothy Koomson
9 Síðasti hlekkurinnFredrik T. Olsson
10 Risasyrpa : Á framandi slóðumWalt Disney
Kiljur
1 AfdalabarnGuðrún frá Lundi
2 PiparkökuhúsiðCarin Gerhardsen
3 Amma biður að heilsaFredrik Backman
4 MánasteinnSjón
5 Bragð af ástDorothy Koomson
6 Síðasti hlekkurinnFredrik T. Olsson
7 Lífið að leysaAlice Munro
8 Síðasta orðsending elskhugansJojo Moyes
9 Fangi himinsinsCarlos Ruiz Zafón
10 Eða deyja ellaLee Child