Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.11.2014, Page 4

Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.11.2014, Page 4
Fleiri börn á hvern starfsmann Oft hefur verið vakin athygli á þvíhversu lausbeislaður lagaramminner utan um frístundaheimili sveitar- félaganna. Á vegum Reykjavíkurborgar eru starfrækt frístundaheimili við alla grunn- skóla borgarinnar. Engin lög gilda beinlínis um starfsemina en það sem kemst næst því að vera eins konar rammi utan um hana er borgarráðs- samþykkt sem staðfest var á fundi borgar- ráðs þann 4. mars 2010. Í samþykktinni er meðal annars kveðið á um fjölda barna sem hver starfsmaður má hafa umsjón með. Þar segir: „Hver starfsmaður hafi umsjón með 12-14 börnum börnum að jafnaði. 12 börn pr. starfsmann í 6 ára hópnum og 14 börn pr. starfsmann í 7-9 ára hópnum.“ Um síð- ustu áramót var sú breyting hins vegar gerð að hver starfsmaður mátti frá og með síð- ustu áramótum hafa umsjón með 13 börnum í 6 ára hópnum en 16 börnum á aldrinum 7-9 ára. 50-60 milljónir úr almennri þjónustu í sértæka Skýringin á auknum fjölda barna á hvern starfsmann mun vera tilfærsla á fjármunum innan fjárheimilda frístundaheimila. Að sögn Soffíu Pálsdóttur, skrifstofustjóra tóm- stundasviðs hjá Reykjavíkurborg, var ákvörðunin um að fjölga börnum sem hver starfsmaður má hafa umsjón með á frístundaheimilum um eitt í yngri hóp og tvo í eldri hóp tekin í tengslum við gerð fjár- hagsáætlunar borgarinnar í desember 2013 í því skyni að leggja meiri áherslu á stuðn- ingsþjónustu en áður. „Það var verið að færa fjármagn úr al- mennri þjónustu í sértæka þjónustu. Þeir fjármunir sem sköpuðust við þessa breyt- ingu fara í þjónustu við börn sem þurfa sér- stakan stuðning,“ segir Soffía. Samhliða þessari breytingu munu fleiri starfsmenn hafa verið ráðnir til að sinna sértækum stuðningi við börn í frístund- astarfinu. Ekki slegið af öryggi barna Alls er um að ræða 50-60 milljónir króna ár- lega sem voru færðar úr almennri þjónustu frístundaheimila yfir í þjónustu við börn með sérþarfir á frístundaheimilunum. Að sögn Ragnars Þorsteinssonar, sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs borgarinnar, hefur stuðn- ingsþörf barna á frístundaheimilum aukist og nauðsynlegt hafi verið að mæta því. „Við sláum aldrei af öryggi barnanna og drögum ekki úr því með þessari breytingu. Þær kannanir sem gerðar hafa verið um frí- stundaheimilin benda til þess að foreldrar séu almennt ánægðir með þau. Óánægja for- eldra barna sem þurfa sérstakan stuðning hefur hins vegar komið sterkt fram gegnum tíðina. Við verðum að hafa sveigjanleika til að setja fjármagnið í þá þjónustu sem mest þörf er fyrir. Með þessu er ekki verið að draga úr því fjármagni sem frístundaheim- ilin hafa úr að spila heldur verið að færa það til. Við getum ekki staðið kyrr og vísað í gamlar borgarráðssamþykktir sem eru kannski úreltar,“ bendir Ragnar á. Gamlar upplýsingar á vef borgarinnar Ef farið er inn á vef Reykjavíkurborgar undir slóðinni www.reykjavik.is/fristunda- heimili, þar sem er að finna upplýsingar um frístundaheimili borgarinnar, stendur undir liðnum Öryggi á frístundaheimilum: „Frí- stundaheimilin vinna eftir öryggisverkferlum sem gilda ætíð þegar börnin eru í þeirra umsjá og sem dæmi má nefna að eingöngu eru 12-14 börn skráð á hvern starfsmann.“ Ennfremur má finna á sömu vefslóð borg- arinnar svokallaða Foreldrahandbók frí- stundaheimilanna en þar stendur: „Sam- kvæmt borgarráðssamþykkt er miðað við að 12 börn séu að jafnaði á hvern leiðbein- anda.“ Miðað við þessar upplýsingar gætu for- eldrar í Reykjavík sem eiga börn á frí- stundaheimilum áætlað að hver leiðbeinandi hefði umsjón með aðeins 12 börnum, en 14 að hámarki ef þau eru 7-9 ára. Svo er hins vegar ekki og upplýsingarnar sem foreldrum er bent á á vef borgarinnar eru því úreltar. Fólk getur svo auðvitað haft ýmsar skoðanir á því hvað telst hæfilegur fjöldi barna á hvern starfsmann. Í Kópavogi er til dæmis miðað við að hámarki 15 börn á starfsmann að jafnaði og í einhverjum öðrum sveitar- félögum munu þau vera enn fleiri á hvern starfsmann, enda engar algildar reglur til. Starfsmaður frístundaheimilis sem blaða- maður ræddi við sagði að starfsfólk hefði vissulega fundið fyrir þeirri fækkun al- mennra stöðugilda sem varð með áður- nefndri breytingu um síðustu áramót og benti að auki á það að á frístundaheimilum er enginn sem leysir af þegar starfsmaður veikist. Þá er bara færra fólk í vinnu og fjöldi barna á hvern starfsmann því oftar en ekki meiri en sem nemur þessum 13-16 börnum sem borgin hefur nú ákveðið að sé hæfilegt. Þess má geta að í menntamálaráðneytinu hefur undanfarið staðið yfir vinna við að endurskoða lagaramma frístundaheimila. Ekki er þó endilega líklegt að settar verði sérstakar reglur um fjölda barna á hvern starfsmann. Fram til þessa hafa sveitar- félögin sjálf getað ákveðið það í samræmi við þörfina og samsetningu barnahópsins hverju sinni. Morgunblaðið/Ómar HVER STARFSMAÐUR FRÍSTUNDAHEIMILIS REYKJAVÍKUR MÁ HAFA UMSJÓN MEÐ ALLT AÐ 16 BÖRNUM. SAMKVÆMT BORGARRÁÐSSAMÞYKKT FRÁ 2010 ÁTTI HVER STARFSMAÐUR FRÍSTUNDAHEIMILIS AÐEINS AÐ HAFA UMSJÓN MEÐ AÐ HÁMARKI 14 BÖRNUM Í ALDURSHÓPNUM 7-9 ÁRA EN 12 BÖRNUM SEM ERU 6 ÁRA. UM SÍÐUSTU ÁRAMÓT VAR FJÖLDINN AUKINN Í 13 BÖRN Í YNGRI HÓPNUM OG 16 BÖRN Í ÞEIM ELDRI Á HVERN STARFSMANN. EKKI VAR UM SPARNAÐ AÐ RÆÐA HELDUR VORU 50-60 MILLJÓNIR MEÐ ÞESSU FÆRÐAR ÚR ALMENNRI ÞJÓNUSTU Í STUÐNINGSÞJÓNUSTU. 4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9.11. 2014 * Í Foreldrahandbók um frístundaheimili á reykjavik.is/fristundaheimilisegir að aðeins séu 12 börn á hvern starfsmann frístundaheimilis. Hand-bókin er frá 2007 og tölurnar úreltar. Nú eru 13-16 börn á hvern starfsmann.ÞjóðmálEYRÚN MAGNÚSDÓTTIR eyrun@mbl.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.