Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.11.2014, Page 6
VIÐ TENGJUM YFIRLEITT TÁKN EINS OG HAKAKROSS OG
HAMAR MEÐ SIGÐ VIÐ OFSTÆKI OG GRIMMD. EN Í ASÍU
ER HAKAKROSSINN VÍÐA NOTAÐUR TIL AÐ TRYGGJA
FÓLKI GÆFU OG HANN SKREYTIR BÚDDAHOF. TIL ERU
MÖRG ÞÚSUND ÁRA GAMLAR HAKAKROSSTEIKNINGAR.
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9.11. 2014
HEIMURINN
BRETLAND
Came
að fá breytt reglumBretlands, hyggst reyna
m frjálst flæði fólks milliEvrópusambandsins u
kil andstaða er meðalaðildarríkjanna en mi
við vaxandi innflutningalmennings í landinu
regs, Svíþjóðar og Danmerfólks. Leiðtogar No varað Cameron
messum reglum, þá yrði ekkivið að hrófla við þ gur hægt að líta á ESB se
rmálaskýrendur hafa bStjóreinn markað. n r herði reglurna
um utandmuni fleiri innflytjendur frá lön mast til annarra
ÍN A
uskýrslFullyrt er í nýrri
kiE A að kí
knýlega keypt g
ni er þeir ferðuðu
Xinpings Kínafor
m hefurrém ríkjunum vísa þ
emstárasíðu
anía ertirsó
AKÓ
ÓNAKÓBORGM Interpol segirAlþjóða g glö re
erskáumsem hyggist ganga lið meðða
ð feSýrlandi og Írak séu faramísl i
með skemmtiferðaskipum. Þeggað
okkur tilfelli. Interpol vill að eftirl
gvalla heldur einnig skemmtiferðferðalöngum nái því e
1987, og n
milljónum
auðmaður sem vil
gamall vinstrimaður,
sínum til góðgerðarm
Hann býr á fátæklegu
Manuelu.
Einn sérkennilegasti fáni
ofstækissamtaka í
Miðausturlöndum er lík-
lega sá sem Hizbollah í Líb-
anon, samtök heittrúaðra
sjía-múslíma, nota. Til eru
nokkur afbrigði en algeng-
astur er sá guli með græna
mynd af Kalasníkov-
hríðskotabyssu! Samtökin
hafa lengi haft mikil áhrif í
landinu, ekki síst vegna þess
að þau reka eigin herafla.
Fyrir nokkrum árum reyndi
Ísraelsher með litlum ár-
angri að ganga á milli bols
og höfuðs á Hizbollah
vegna end-
urtekinna
flugskeyta-
árása sam-
takanna yfir
landamærin
á Ísrael.
Róttæklingar og valdasjúkir of-stækismenn hafa í gegnumsöguna notað veifur og fána
með merki eða áletrun sem á að
sameina og hvetja til baráttu.
Markaðsfræðingar nútímans myndu
líklega nota enska orðið „brand“ yf-
ir fyrirbærið fremur en vörumerki,
í viðskiptaheiminum mun brandið
Coca Cola vera frægast. Bæði
kommúnistar og síðar nasistar
komu sér upp þekktum vörumerkj-
um. Og IS-menn í Sýrlandi og Írak
sveifla svörtum fána með hvítri
áletrun: „Enginn er Guð nema Al-
lah“.
Svartur fáni íslams á sér rætur í
tíð Múhameðs spámanns, með hann
í fararbroddi lögðu arabar undir sig
stóran hluta heimsins þegar á mið-
öldum. Blóði stokknir liðsmenn IS
telja sig vera réttkjörna arftaka en
hafa aðallega sýnt hetjuskap sinn
við að murka lífið úr saklausu fólki.
Kommúnistar í Sovétríkjunum
gerðu hamar með áfestri sigð að
merki sínu 1923, merkið skreytti
fána landsins. Hamarinn táknaði
verkamenn en sigðin smábændur.
Merkið, í ýmsum gerðum, varð að
sjálfsögðu geysilega útbreitt og er
enn á mörgum opinberum bygg-
ingum, þótt Sovétríkin hafi hrunið
1991. Sum héruð og borgir í Rúss-
landi nota það enn og einnig er það
ennþá í merki rússneska flugfélags-
ins Aeroflot.
Nokkur fyrrverandi komm-
únistaríki A-Evrópu hafa bannað
notkun þessa tákns og reynt að fá
Evrópusambandið til að gera slíkt
hið sama. Þau segja að með því að
leyfa kommúnistatáknið sé verið að
„gera lítið úr glæpaverkum komm-
únista“ sem sé ekkert skárra en að
leyfa fólki að afneita Helförinni.
En líklega er hakakrossinn (í út-
gáfu nasista) þekktasta vörumerki
óþjóðalýðs og hroðaverka sem um
getur á Vesturlöndum. Þótt langt sé
síðan Hitler skaut sig í byrginu í
Berlín 1945 vekur merkið enn óhug
okkar.
Eimskip, Falun Gong og
hásæti Dalai Lama
Fyrir nokkrum árum hætti Eimskip
að nota gamla merkið sitt á stefni
skipanna en það var blár hakakross
með stuttum örmum.
Það var einfaldlega allt of flókið
að útskýra fyrir öðrum þjóðum
að merkið hefði verið tekið í
notkun 1914, þegar Hitler
reyndi enn að skrimta
sem póstkortamálari í
München.
Og ekki dugar heldur
að minna á að finnski
flugherinn málaði bláan
hakakross á vélar sínar löngu fyrir
tíma nasista. Kínverska þjálfunar-
og íhugunarhreyfingin Falun Gong
notar hakakross í sínu merki, hann
barst fyrir um 2000 árum til Kína
frá Indlandi með búddismanum. Og
hvarvetna um sunnanverða Asíu má
sjá þetta merki á búddahofum og
veraldlegri fyrirbærum eins og rút-
um og verslunum. Skátahreyfingin
notaði táknið til 1935, sama gerði
bandaríska guðspekifélagið lengi.
Og í Tíbet skreytir það hásæti hins
útlæga Dalai Lama.
Hakakrossinn, sem á fornmáli
Indverja, sanskrít, heitir swastica,
er miklu eldri en nasisminn. Fund-
ist hafa 10.000 ára gömul hella-
málverk með hakakrossum og tákn-
ið mun hafa fundist á leifum af 2000
ára gömlu gyðingamusteri í Palest-
ínu. Stjörnufræðingurinn Carl Sag-
an benti á að merkið gæti táknað
halastjörnu sem gæti útskýrt hve
víða það finnst. Á Norðurlöndum
var hakakrossinn nefndur Þórs-
hamar og táknið barst með vík-
ingum til Englands á miðöldum.
Hakakrossinn finnst í fjölmörgum
litum og útfærslum og hefur senni-
lega verið stílfært sólartákn, hann
er heilagur í hindúisma og búdd-
isma. Einnig getur hann táknað
gæfu en þá álíta sumir að menn
megi ekki snúa merkinu eins og
þeim hentar.
Uppruninn er álitinn vera í Ind-
landi þótt hakakrossinn hafi fundist
um allan heim, þ. á m. hjá indjánum
í Norður-Ameríku. Á gamalli ljós-
mynd sést að indverskt skip, Ja-
ladhanya, var með samskonar mynd
og Eimskip á stefninu 1974, kross-
inn á skipinu var þó rauður en ekki
blár.
Merki illsku
en líka friðar
og gæfu
AP
IS hampar fána sínum í Írak, hakakross og hamar og sigð vekja einnig óhug. En Asíumenn vita að Hitler fann ekki upp
hakakrossinn eldforna, Falun Gong notar sitt litfagra afbrigði og einnig má sjá indverska útgáfu með mjúkum örmum.
* Enginn fáni er svo stór að hann dugi til að breiða yfirþað smánarlega athæfi að drepa saklaust fólk.Howard Zinn, bandarískur sagnfræðingur.AlþjóðamálKRISTJÁN JÓNSSON
kjon@mbl.is
SKREYTTUR BYSSU