Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.11.2014, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.11.2014, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30.11. 2014 Má bjóða þér gamlan sófa … á raðgreiðslum? Við kynnum til leiks gjörbylt-ingu í viðskiptum á sölu-torgi Blands.“ Á þessum orðum hefst póstur sem markaðs- torgið Bland.is sendi notendum sín- um í vikunni. Sú „bylting“ sem vís- að er til felst í því að nú geta notendur fengið peninga fyrir kaupum á notuðum vörum að láni – gamlan sófa er nú hægt að kaupa á raðgreiðslum. Bland.is er sjöundi mest sótti vefur landsins samkvæmt mæl- ingum Modernus. Á bland.is ganga gamlir munir, húsgögn, notuð föt, barnadót, bílar og fleira kaupum og sölum. Al- gengast er að kaupin gangi fyrir sig milliliðalaust; seljandi auglýsir vöru, kaupandi lýsir áhuga og sín á milli semja þeir um verð fyrir vör- una sem jafnan er staðgreidd í peningum við afhendingu. Milliliður bætist við með tilheyrandi kostnaði Nú vill Netgíró blanda sér í þessi viðskipti á bland.is og gerast milli- liður viðskiptanna. Það gerir fyrir- tækið með því að bjóða greiðslu- þjónustu (byltinguna) sem seljandi vörunnar greiðir fyrir. Kaupandinn greiðir ekki fyrir þjónustuna, sem felur það í sér að hægt er að seinka greiðslu um allt að 14 daga, en ef greiðslur dragast fram yfir þann tíma þá er Netgíró eigandi kröfu á hann og setur hana í inn- heimtu eða kaupandi óskar eftir að notast við raðgreiðslur sem hægt að dreifa á allt að þrjá mánuði ef verslað er á bland.is. Netgíró býður raunar sína lánaþjónustu gegnum 700 aðra söluaðila fyrir utan bland.is og hefur undanfarið auglýst mikið t.d. í sjónvarpi og nú eru auglýs- ingar fyrirtækisins orðnar fyrirferðarmiklar á bland.is. Sófinn fer á 57.376 krón- ur en ekki 50.000 krónur Ekki er alltaf hlaupið að því að átta sig á því hversu mikill kostn- aður fylgir því að fresta greiðslum eða dreifa þeim. Fyrir- tæki nota hugtök eins og „vaxta- laust“ til að láta viðskiptavinum líða eins og þjónustan sé ókeypis – en það er hún að sjálfsögðu aldrei. Til að skýra út hvernig Netgíró virkar fyrir notendur bland.is þá er best að taka dæmi: Notaður sófi er seldur á bland- .is fyrir 50.000 krónur. Bæði kaupandi og seljandi samþykkja að nota Netgíró sem greiðslu- máta og ganga frá kaupunum þann 1. desember. Kaupandi á að greiða 50.000 krónur, sem er upp- sett verð, + 195 kr. tilkynning- argjald, en seljandi fær 47.525 krónur þar sem hann greiðir þóknun Netgíró upp á 4,95%. Kaupandi fær sófann sinn 1. desember en seljandi fær enga greiðslu fyrr en 16. desember, þá þarf hann að fara inn á sitt yfirlit á netgiro.is og millifæra sjálfur á eigin reikning. Engu skiptir hve- nær kaupandi greiðir. Hann get- ur greitt 1. desember, en seljandi fær samt ekki peninginn fyrr en þann 16. desember, þannig virka skilmálar Netgíró. Kaupandinn getur því greitt hve- nær sem er á þessum tímabili, þ.e. beðið með það þar til á fyrsta virka degi 14 dögum eftir kaupin. Greiði hann á tímabilinu 1.-16. des- ember þá á hann að greiða 50.195 krónur fyrir sófann, engin þóknun fellur á hann önnur er tilkynning- argjaldið (sem er greitt til bankans vegna stofnunar kröfu). Geti kaupandinn hins vegar ekki greitt innan þessara tímamarka getur hann valið að dreifa greiðslum á allt að 3 mánuði. Þá greiðir hann á endanum 54.901 krónu fyrir notaða sófann sem átti að kosta 50.000 krónur. Kostnaðurinn sem til fellur er 3,95% lántökugjald, alls 1.975 kr. + 1.156 kr. í vexti (12,85% árs- vextir) + 1.185 kr. færslugjald (samtals fyrir 3 færslur) + 585 kr. í tilkynningargjald (samtals fyrir 3 færslur). Sé þessi fjárhæð, þ.e. 4.901 króna umfram kaupverðið, lögð við þær 2.475 krónur sem seljandinn var þegar búinn að greiða Netgíró fyrir söluna má sjá að Netgíró fær alls í sinn hlut 7.376 krónur vegna viðskipta sem annars væru milli- liðalaus að andvirði 50.000 króna. Stærstur hluti viðskipta á bland.is er með notaðar vörur. Á degi hverjum eru um 2.000 auglýs- ingar skráðar þar og skráðir not- endur eru yfir 200.000. Yfir 30.000 eru skráðir fyrir þjónustu Netgíró en raðgreiðslur fyrir- tækisins eru svipaðar rað- greiðslum kortafyrirtækjanna. Morgunblaðið/Kristinn Á MARKAÐSTORGINU BLAND.IS ER NÚ HÆGT AÐ FÁ LÁNAÐ FYRIR KAUPUM Á NOTUÐUM VÖRUM Í GEGNUM FYRIRTÆKIÐ NETGÍRÓ SEM ER Í EIGU SÖMU AÐILA OG BLAND.IS. NETGÍRÓ VIRKAR ÞANNIG AÐ JAFNVEL ÞÓTT KAUPANDI VÖRU GREIÐI STRAX ÞÁ FÆR SELJANDI EKKI GREITT FYRR EN EFT- IR 14 DAGA. Í MILLITÍÐINNI ERU PENINGARNIR GEYMDIR Á REIKNINGI HJÁ NETGÍRÓ. SÉ GREITT MEÐ RAÐGREIÐSLUM ÞARF KAUPANDI AÐ 50 ÞÚSUND KRÓNA SÓFA AÐ INNA AF HENDI 55 ÞÚSUND KRÓNUR EN SELJANDINN FÆR 47 ÞÚSUND Í SINN HLUT. MISMUNURINN RENNUR TIL NETGÍRÓ. Vara sem seld er á Bland.is 1. des fæst greidd 16. des. Þótt kaupandi greiði fyrr fær seljandi greiðsluna aldrei fyrr en 16. des ef greitt er gegnum Netgíró. Sá sem selur vöru á þó að geta verið viss um að fá greitt, þótt hann fái minna og sjái peningana seinna en ef viðskiptin væru milliliðalaus. *Notendur bland.is ættu að reikna dæmið til enda. Ef ekkier til aur í buddunni þegar varan er keypt gæti einfald-lega verið ráðlegt að bíða með kaupin. ÞjóðmálEYRÚN MAGNÚSDÓTTIR eyrun@mbl.is Vefsíðan Barnaland.is var sett á laggirnar árið 2000 og var í upp- hafi upplýsingavefur fyrir for- eldra um hvaðeina er varðar börn og barnauppeldi. Vefurinn þróaðist síðan út í það að bjóða sérstakar heimasíður barna, þar sem foreldrar gátu keypt að- gang að tilteknu lokuðu vef- svæði og sett inn myndir, mynd- bönd og annað tengt börnum sínum. Síðar þróaðist vefurinn yfir í að vera bæði sölutorg og umræðuvefur. Árið 2011 urðu eigendaskipti og ákveðið var að breyta nafninu í Bland og vefur- inn bland.is varð aðalvefurinn með heimasíður barnanna sem undirvefinn barnaland.is. Núverandi eigendur eru fyrir- tækið Móberg sem er einnig eigandi fyrirtækisins Netgíró. Móberg er í eigu Skorra Rafns Rafnssonar og bróður hans Fjölvars Darra Rafnssonar. Sam- an stofnuðu þeir bræður smá- lánafyrirtækið Hraðpeninga ár- ið 2009 og hafa báðir setið í stjórn þess fyrirtækis. Skorri Rafn er nú stjórnarformaður hjá Bland og meðstjórnandi í stjórn Netgíró auk þess að vera forstjóri Móbergs. Fjölvar Darri er fjármálstjóri Móbergs. Fram- kvæmdastjóri Bland er Katrín Jónsdóttir en alls munu vera um 9-10 starfsmenn hjá Bland. NETGÍRÓ OG BLAND UNDIR EINUM HATTI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.