Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.11.2014, Blaðsíða 58

Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.11.2014, Blaðsíða 58
58 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30.11. 2014 BÓK VIKUNNAR Skagfirskar skemmtisögur – miklu meira fjör – er fjórða bókin í þessari vinsælu seríu. Björn Jóhann Björnsson tók saman líkt og áður. Bækur KOLBRÚN BERGÞÓRSDÓTTIR kolbrun@mbl.is Náttblinda er ný glæpasaga eftirRagnar Jónasson þar sem Ari, lög-reglumaður á Siglufirði, er í aðal- hlutverki. Lögreglumaður á Siglufirði er skot- inn með haglabyssu um miðja nótt. Ung kona flýr til Siglufjarðar undan ofbeldisfullum sam- býlismanni og sjúklingur er lagður inn á geð- deild í Reykjavík. Allir þessir þræðir fléttast síðan saman. Ragnar segir að þetta muni verða síðasta bók sín um Ara í bili. „Siglufjörður er mið- punktur Náttblindu en sagan hefði þó getað gerst hvar sem er,“ segir hann. „Í þessari bók langaði mig til að skoða tvær mýtur um Ís- land. Sú fyrri snýr að byssueign en útlend- ingar halda að hér séu nær engar byssur, en þegar kemur að alþjóðlegri byssueign erum við Íslendingar ofarlega á lista miðað við höfðatölu. Sagan hefst á því að lögreglumaður er skotinn með haglabyssu sem reynist vera veiðibyssa úr bænum. Hin mýtan sem mig langaði til að skoða er trúin á að á Íslandi sé nær ekkert ofbeldi. Landið er í efsta sæti yfir friðsælustu lönd í heimi og hér er nær ekkert ofbeldi á götum úti en þegar kafað er undir yfirborðið þá eru glæpir inni á heimilum og ég er meðal annars að fjalla um það í bókinni.“ Þú segir að þetta verði síðasta sagan um Ara í bili, ertu orðinn þreyttur á að hafa hann alltaf yfir þér? „Að einhverju leyti, en ég kann samt alltaf mjög vel við Ara. Hann verður ekki fyrir neinum skaða í bókinni og á því alveg að geta átt afturkvæmt. Mér finnst ég vera búinn að skrifa of mikið um Siglufjörð í bili og mig langar til að skipta um sögusvið og skrifa um annan karakter, jafnvel allt öðruvísi. Það er ákveðið frelsi að gera smá hlé á persónu sem hefur verið svona yfirþyrmandi í bókum mín- um. Það er líklegt að næsta bók verði lög- reglusaga en hvort þar verði komið upphaf að nýrri seríu kemur bara í ljós. Það er ekki úti- lokað.“ Ragnar var í forsvari fyrir glæpasagnahátíð- ina Iceland Noir sem haldin var um síðustu helgi og tókst mjög vel. „Þessi hátíð er drifin áfram af áhugasömum höfundum á Íslandi og ekki síður af áhugasömum útlendingum sem koma á eigin vegum til að hitta aðra höfunda og segja frá bókum sínum,“ segir Ragnar. „Ís- land hefur mikið aðdráttarafl, höfundar vilja koma hingað og hrífast mjög af landinu.“ Ragnar mætti á Iceland Noir nýkominn frá Bandaríkjunum þar sem hann sótti glæpasag- nahátíðina Bouchercon. „Þetta er stærsta glæpasagnahátíð í heimi og á sér mjög langa sögu. Hún er haldin í Bandaríkjunum á hverju ári, á mismunandi stöðum, og að þessu sinni var hún á Long Beach í Kaliforníu. Þarna voru nokkur stór nöfn úr glæpasagnaheim- inum, á göngunum rakst ég á Lee Child í orðsins fyllstu merkingu og þarna var líka Michael Connelly og Peter James og James Oswald, sem komu á Iceland Noir, voru líka meðal þátttakenda. Þetta var mjög skemmti- leg hátíð og stór í sniðum og það var ekki hægt að komast yfir allt því þarna voru kannski fimm atburðir í gangi í einu. Ég fylgdist með pallborðsumræðum hjá höfundi sem skrifar bækur upp úr sjónvarps- þáttunum um Jessicu Fletcher, Murder she Wrote, og stakk upp á því við hann að hann sendi hana til Íslands í einhverri bókinni. Sjálfur tók ég þátt í tveimur pallborðs- umræðum þar sem talað var um alþjóðlegar glæpasögur og meðal þátttakenda voru höf- undar eins og Sara Blædel og Mark Bill- ingham. Ég var eini íslenski þátttakandinn og tók eftir því að þegar ég sagði frá glæpasög- um sem gerast á Íslandi þá kveikti það áhuga hjá fólki.“ STAKK UPP Á ÞVÍ AÐ JESSICA FLETCHER YRÐI SEND TIL ÍSLANDS Skoðar mýtur um Ísland RAGNAR JÓNASSON SENDIR FRÁ SÉR SÍÐUSTU BÓK SÍNA Í BILI UM ARA LÖGREGLUMANN. HANN HYGGST HALDA Á NÝJ- AR SLÓÐIR Í NÆSTU BÓK. Uppáhaldsbækur eru ekki endilega þær bækur sem eru bestar heldur þær sem maður hefur lesið hvað oftast – og eðli málsins samkvæmt eru það oft barnabækur því uppáhaldsbarnabækurnar voru lesnar þar til þær duttu í sundur. Þannig var því alla vega farið með Á Saltkráku eftir Astrid Lindgren sem er sennilega sú bók sem ég hef oftast lesið (eða var oft- ast lesin fyrir mig). Mér er sagt að pabbi hafi byrjað að lesa hana þegar ég tveggja ára og hvort sem ég náði nokkru af innihaldinu eða fannst bara röddin í pabba notaleg varð þetta bók bókanna. Þegar ég blaða í henni rekst ég ennþá á kafla sem hljóma kunnuglega eins og kvæði sem maður kunni utan að fyrir löngu. Ég veit eiginlega ekki hvað það er við akkúrat þessa bók Lindgren sem heillaði mig svona mikið, þetta er ekki mest spennandi, fyndnasta eða ævintýralegasta bók hennar – heldur kannski þvert á móti sú hversdagslegasta – hún er notaleg, ég fyllist enn öryggistilfinningu þegar ég les hana. Hún er full af huggun – og huggun er alltaf gott að geta fundið í bókum. Fast á hæla Á Salt- kráku fylgja svo Ronja ræningjadóttir eftir sama höfund, Fjós- kötturinn Jáum segir frá eftir hinn sænska Gustav Sandgren og svo nokkrum árum síðar komu Löbbu bækurnar eftir Merri Vik – sem er – enn og aftur – sænsk. Á fullorðinsárum eru það eiginlega bara Jane Austen og Auður Haralds sem hafa náð einhverjum hæðum í endurlesningu – eins ólíkir höfundar og þær eru. Mér finnst ég alltaf finna einhver ný blæ- brigði þegar ég les Austen og ég hlæ alltaf jafn mikið að texta Auðar. Í UPPÁHALDI MARÍANNA CLARA LÚTHERSDÓTTIR LEIKKONA Maríanna Clara las uppáhaldsbarnabækur sínar þangað til þær duttu í sundur. Á Saltkráku eftir Astrid Lindgren var í sérstöku uppáhaldi. Morgunblaðið/Eggert Astrid Lindgren „Mér finnst ég vera búinn að skrifa of mikið um Siglufjörð í bili og mig langar til að skipta um sögu- svið og skrifa um annan karakter, jafnvel allt öðruvísi,“ segir Ragnar. Morgunblaðið/Kristinn BÓKSALA 17.-23. NÓVEMBER Allar bækur Listinn er tekinn saman af Félagi íslenskra bókaútgefenda 1 Kamp KnoxArnaldur Indriðason 2 Gula spjaldið í GautaborgGunnar Helgason 3 Vísindabók Villa 2Vilhelm Anton Jónsson 4 DNAYrsa Sigurðardóttir 5 Saga þeirra, sagan mínHelga Guðrún Johnson 6 Frozen hárbókinTheodóra Mjöll / Walt Disney 7 Útkall : ÖrlagaskotiðÓttar Sveinsson 8 Þín eigin þjóðsagaÆvar Þór Benediktsson 9 ÖræfiÓfeigur Sigurðsson 10 Íslenskt prjón - 25 tilbrigðiHélène Magnússon Íslensk skáldverk 1 Kamp KnoxArnaldur Indriðason 2 DNAYrsa Sigurðardóttir 3 ÖræfiÓfeigur Sigurðsson 4 VonarlandiðKristín Steinsdóttir 5 KataSteinar Bragi 6 SkálmöldEinar Kárason 7 TáningabókSigurður Pálsson 8 EnglarykGuðrún Eva Mínervudóttir 9 AfdalabarnGuðrún frá Lundi 10 Litlu dauðarnirStefán Máni
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.