Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.11.2014, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.11.2014, Blaðsíða 44
Með eindæmum einbeittur Baltasar Kormákur er einn þeirra manna og þeir eru ekki margir – Bubbi Morthens kemur upp í hugann – sem flokka má sem náttúrukraft. Svo mikil er orkan. Í tilviki Baltasar er náttúrukrafturinn stormur og nánar tiltekið hvirfilbylur. Þegar Balti fer á kreik þá fjúka húsin, þ.e.a.s. hann nær að framkvæma ótrúlegustu hluti og standa þar sem við hinir venjulegu menn getum einungis látið okkur dreyma um. Þar fyrir utan er hann með eindæmum einbeittur, þ.e.a.s. þegar ákveðið verkefni er á annað borð komið í gang. Þá útilokar hann allt og alla og vinn- ur eins og jarðborð sem keyrir í gegnum hvert jarðlagið af öðru, allt þar til uppsprettan opnar skálar sínar. Þegar hann er í þessum ham þá er hann grimmur og óvæginn. Já, það býr einbeitt grimmd í Baltasar, nokkuð sem hann hefur nýtt til þess að lyfta grettistaki í íslenskri kvikmyndagerð. Skarpur hugmyndasmiður Baltasar er með afbrigðum skarpur í kollinum. Hann er stríðsmaður andans. Jafnframt því er hann lipur í hugsun, þ.e.a.s. hann getur talað alla til og sannfært menn um að svart sé hvítt og rautt sé blátt. Hann hefur gaman af því að rökræða hlutina. Ósjálfráð viðbrögð hans við flestöllum uppákomum lífsins er að hugsa og rökræða. Veröld Baltasar er heimur ímyndunarafls og hugmynda. Baltasar er hugmyndasmiður. Hann er ofvirk- ur í höfðinu. Þar liggur snilligáfa hans. Um leið er hann kröfuharður á samstarfsmenn. Til að fá að sitja til borðs með honum þurfa menn að hafa eitthvað til málanna að leggja. Samferða- fólkið þarf að hafa bein í nefinu. Með öllu þessu er ég ekki að segja að hinn fágaði og töff Balti sé skrímsli, ég er að segja að hann vilji vinna með þeim bestu. Þegar þeir bestu eru nálægir þá hlustar hann. Ef ekki, þá valtar hann yfir sviðið. Kaldur víkingur norðursins Baltasar var mikill sjarmör og kvennaljómi á sínum yngri árum. Enn þann dag í dag er hann flottur og myndarlegur maður. Djúp, heit og sterk augu, svart hár og grásprengt skegg. Töff skyrta eða úlpa frá 66°. Víkingaskáld norðurs- ins. Það kemur því kannski einhverjum á óvart, þegar kort- ið er skoðað, að í ljós kemur að tilfinningar hans eru kaldar eða a.m.k. sval- ar eða a.m.k. þess eðlis að hugsun og skynsemi á að stjórna þessu sviði lífsins. Við nánari umhugsun er þetta ekki skrítið. Baltasar er leikstjóri með meiru. Hann er maður sem greinir sögupersónur, ræðir um blæbrigði við leikara og pælir í mannlegu eðli. Sem sagt hugur og greining er ofar hjarta, svona að öllu jöfnu að minnsta kosti. Mætti láta hjartað yfirtaka höfuðið Baltasar. Það er enginn eldur í stjörnukortinu þínu, engin pláneta í hrúti, ljóni eða bogmanni. Það sem ég ætla nú að segja er ekki endilega áberandi, en þetta er málið: Gleði. Ef þú sætir fyrir framan mig, þá myndi ég spyrja (í anda Jóns Ársæls): Ertu glaður maður, Baltasar? Hversu oft hlærð þú innilega og af sakleysi barnsins? Hversu oft fær hjartað að yfir- taka höfuðið? Þetta er a.m.k. eitthvað sem ég tel að þú ættir að hugleiða. Þú býrð yfir það miklum sprengikrafti að framangreint er ekki augljóst, en eins og ég sagði í upphafi, þá er sprengikrafturinn af ætt stormsveips- ins, vatnið og loftið blandast í rigningu sem verður að hvirfilbyl. Fyrir þig sjálfan og þá sem standa næst þér þá má bæta smá-hita og léttleika í rokið og rigninguna. Set þetta fram svona til umhugsunar. Baltasar, þú ert með afbrigðum fjölhæfur. Það er frábært, en þýðir um leið að þú þarft að gæta þess vandlega að forgangsraða verkefnum þínum. Ég myndi segja að þér hafi tekist þetta vel hingað til og svona heilt yfir en þetta er nokkuð sem þú þarft að vera á stöðugu varðbergi gagnvart. Þú ert hugmyndaríkur, hittir marga og milljón hugmyndir liggja á skrifborðum þínum. Halda þarf vel utan um þetta allt, forgangsraða til að koma í veg fyrir upplausn. Til þjóðarinnar vil ég segja þetta. Við erum heppin að hafa Baltasar á meðal okkar. Við þurfum svo sannarlega á mönnum sem lyfta grettistaki að halda. Baltasar er einn af þeim. Maður sem flokka má sem náttúrukraft BALTASAR KORMÁKUR BALTASARSSON ER FÆDDUR 27. FEBRÚAR 1966 KL. 21 Á SELFOSSI. HANN ER HESTUR Í KÍNVERSKRI STJÖRNUSPEKI, SEM ÚTSKÝRIR AF HVERJU LILJA PÁLMADÓTTIR GIFTIST HONUM. Á FÆÐINGAR- STUND BALTASARS VORU SÓL (LÍFSORKA OG GRUNNEÐLI), MERKÚR (HUGSUN) OG MARS (BARÁTTUORKA) Í HINU FJÖLHÆFA OG SKAPANDI FISKAMERKI, TUNGLIÐ (TILFINNINGAR OG VANAHEGÐUN) VAR Í HINUM MÁL- GLAÐA TVÍBURA, VENUS (SAMSKIPTI) Í HINUM YFIRVEGAÐA OG SVALA VATNSBERA, RÍSANDI (FRAMKOMA) Í HINNI KURTEISU OG FÁGUÐU VOG OG MIÐHIMINN (MARKMIÐ) Í HINUM NÁTTÚRUELSKANDI KRABBA. ÕGrunneðli ] Vitsmundir Y Tilfinningar — Ráðleggingar Morgunblaðið/Golli Stjörnukortið GUNNLAUGUR GUÐMUNDSSON www.islenskstjornuspeki.is Fiskurinn 19. febrúar 20. mars Árstími Fisksins er í lok vetrar, þegar veður er umhleypingasamt. Þetta endurspeglast í eðli Fisksins, í margbrotinni og misjafnri skapgerð. Hann er síðasta merkið í dýrahringnum og er oft sagt að hann hafi öll önnur merki fólgin í skapgerð sinni. Fyrir vikið er hann víðsýnn og margbrotinn, fær um að skilja ólíkt fólk og setja sig í spor annarra. Hann er fjölhæfur, skapandi og stórhuga, en getur átt erfitt með að tak- marka sig. Hann hefur sterkt ímyndunarafl og myndræna hugsun. x  Baltasar fæddist í Reykjavík 27. febrúar 1966 en foreldrar hans eru Kristjana Guðnadóttir Samper og Baltasar Samper.  Hann er kvæntur Lilju Pálmadóttur hesta- og athafnakonu. Þau búa ásamt börnum sínum á Hofi á Höfðaströnd í Skagafirði.  Hann útskrifaðist frá Leiklistarskóla Íslands árið 1990. Hann hefur leikið í fjölmörgum kvikmyndum og notið mikillar velgengni sem leik- stjóri. Má nefna myndirnar 101 Reykjavík, A Little Trip to Heaven, Mýr- ina, Djúpið og Contraband og 2 Guns. Tvær síðastnefndu myndirnar eru gerðar á ensku með Hollywood-stjörnum í aðalhlutverki.  Kvikmyndaverið Universal Studios hefur keypt réttinn á kvik- myndinni Vikingr sem Baltasar vinnur að. Hann kemur að framleiðslu myndarinnar en handritið segir frá árdögum víkinga og er það að hluta til byggt á Íslendingasögunum.  Næsta væntanlega mynd frá leikstjóranum er kvikmyndin Ever- est, sem verður frumsýnd næsta haust. Hún er með Jake Gyllenhaal og Josh Brolin í aðalhlutverkum og fjallar um mannskæðasta slys sem orðið hefur á þessu hæsta fjalli jarðar.  Baltasar og fyrirtæki hans RVK Studios framleiða nýja sjónvarps- þáttaröð með Stöð 2 sem ber heitið Katla. Önnur verkefni í vinnslu eru sjónvarpsþáttaröðin Trapped og fangelsismyndin On the Job, sem byggist á atburðum sem gerðust í Mexíkó, þegar föngum var hleypt út til að myrða fólk í skjóli nætur. Hann hefur líka lýst yfir áhuga á því að færa Sjálfstætt fólk og Grafarþögn á hvíta tjaldið. BALTASAR KORMÁKUR LEIKSTJÓRI 44 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30.11. 2014
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.