Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.11.2014, Blaðsíða 34
MEÐ BAILEYS
150 ml rjómi
25 ml Baileys
225 g 56 % Siríus konsúm-
súkkulaði
25 g ósaltað smjör
kakóduft, súkkulaðispænir eða
annað skemmtilegt skraut
Brytjið súkkulaðið og blandið því
saman við Bailyes og smjör og setjið í
hitaþolna skál. Hitið rjóma í potti að
suðumarki eða þar til loftbólur byrja
að myndast með jaðrinum. Hellið þá
rjómanum yfir súkkulaðiblönduna og
hrærið vel saman. Setjið í kæli í 2-4
klst. Ef deigið verður mjög stíft er
gott að taka það úr ísskápnum um 30
mín áður en vinna á með deigið. Mót-
ið kúlur með ísskeið eða deigskeið nr.
70. Skreytið eftir smekk.
HVÍTAR TRUFFLUR MEÐ KÓ-
KÓS OG SÍTRÓNU
60 ml rjómi
200 g hvítt súkkulaði
1 msk. smjör
½ tsk. vanilludropar
30 g kókosmjöl í deigið
börkur af 1 sítrónu
kókosmjöl til skreytingar
Bræðið súkkulaði og rjóma yfir
vatnsbaði. Bætið smjöri, vanilludropum
og rifnum sítrónuberki saman við.
Blandið kókosmjölinu út í, hellið öllu í
hreina skál og geymið í kæli í 2-3 klst.
Mótið kúlur eins og í fyrstu uppskrift.
Veltið upp úr kókosmjöli og setjið í kæli.
Tvenns konar trufflur
HEFÐBUNDNAR TRUFFLUR
MEÐ SJÁVARSALTI – Í ÝMSUM
KLÆÐUM
230 g 56% dökkt súkkulaði
230 hefðbundið suðusúkkulaði
1 dós niðursoðin sæt mjólk
(Sweetened Condensed Milk)
1 msk. vanilludropar
230 rjómasúkkulaði til að þekja
trufflurnar en eins og hér er gert
má skreyta og húða trufflurnar á
ýmsa vegu, svo sem með kakó-
dufti, súkkulaðispæni, flórsyrki,
bráðnu súkkulaði, dökku eða
hvítu
flögusalti til að skreyta
Setjið suðusúkkulaðið og það 56%
dökka í skál og bræðið yfir vatnsbaði.
Bætið niðursoðnu mjólkinni saman
við og hrærið saman þegar hún er öll
komin út í. Eva Rún segir að oft sé
erfitt að fá sætu mjólkina en hún hef-
ur þó fengið hana í Víetnamska mark-
aðinum á Suðurlandsbrautinni. Bland-
ið saman. Athugið að blandan gæti
litið sérkennilega út en þegar van-
illudropunum er blandað saman við,
þegar allt er að fullu bráið, kemur fal-
leg glansandi áferð. Takið blönduna af
hitanum, setjið álpappír yfir og geym-
ið í ísskáp í 3-4 klst. eða yfir nótt. Ef
deigið er geymt yfir nóttina gæti það
þurft að standa í stofuhita í 2 klst áð-
ur en hægt er að vinna með það.
Mótið kúlur eins og í fyrstu uppskrift.
Bræðið súkkulaði að eigin vali, til
dæmis rjómasúkkulaði, og þekið kúl-
urnar, skreytið en setjið að síðustu
sjávarsaltið yfir ef þess er óskað, salt-
ið áður en súkkulaðið stífnar.
HVÍTAR TRUFFLUR MEÐ SÍ-
TRÓNU OG FLÓRSYKRI
175 g hvítt súkkulaði
5 msk. ósaltað smjör
2 msk. rjómi
salt á hnífsoddi
1 tsk. sítrónudropar
flórsykur til skrauts
Bræðið súkkulaði, rjóma og smjör
saman í skál yfir vatnsbaði þar til allt er
vel bráðið. Bætið bragðefnum og salti
saman við. Leyfið að standa á borði og
svo í kæli í 2-3 klst. Mótið kúlur eins og
í fyrstu truffluuppskrift. Veltið upp úr
flórsykri. Geymist best í kæli eða frysti.
Alls konar trufflur
2 og ½ uppskrift að eftir-
lætistertu ykkar, eða um
650-700 g af af hráefni alls.
(Hér var notast við djöfla-
tertu.)
2 og ½ uppskrift að einföldu
smjörkremi, um 250 g
1100-1300 g hvítt súkku-
laði, hér var notað hvítt Si-
ríus konsúm-súkkulaði
150 stk. sleikjóprik
nóg frauðplast til að stinga
sleikjóprikunum í meðan
súkkulaðið storknar
olíumatarlitir ef smjör-
kremið er litað
nóg af tannstönglum
frauðkeila, fæst til dæmis í
Föndurlist og ýmsum fönd-
urbúðum
Bakið eftirlætiskökuna ykkar
á hefðbundinn máta. Raspið
kökuna niður og blandið
smjörkreminu saman við. Hægt
er að nota bæði hvítt smjör-
krem og súkkulaðismjörkrem.
EINFÖLD UPPSKRIFT
AÐ SMJÖRKREMI
100 g mjúk smjörlíki,
3 dl flórsykur,
bragðefni eftir smekk.
Bætið við eggjarauðu og 2
msk. kakó ef þið viljið
súkkulaðibragð.
Tryggið að allt sé vel blandað
saman og búið til kúlur úr
blöndunni með ísskeið eða
deigskeið nr. 70 til að fá jafnar
kúlur. Setjið kúlurnar í kæli,
helst yfir nótt.
Bræðið hvíta súkkulaðið, um
það bil 300-400 g í einu en ekki
allt í einu. Stingið sleikjóprik-
unum lítillega í súkkulaðið og
svo inn í kökukúlurnar. Dýfið
þá herlegheitunum á kaf í
súkkulaðið, alls ekki snúa pinn-
unum í dýfunni, bara beint ofan
í og upp úr og stingið pinn-
unum loks í frauðplast til að
láta súkkulaðið storkna.
Skreytið kúlurnar ef þið viljið.
Undirbúið þá turninn. Brjótið
tannstöngla í tvennt og stingið
upp á við í frauðkeiluna. Takið
kúlurnar af pinnunum og látið
tannstönglana fara inn í gatið
þar sem sleikjóprikin voru best
og fikrið ykkur upp eftir turn-
inum. Reynið að hafa bilin sem
minnst á milli.
Kökukúluturn
34 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30.11. 2014
Matur og drykkir
Uppskrift fyrir 35 karamellur
1,5 bolli sykur
1/4 bolli vatn
1/4 bolli Golden síróp
250 ml rjómi
5 msk. ósaltað smjör
1 tsk. flögusalt, hér var
Norðursalt notað
1/2 tsk. vanilludropar
Smyrjið 20x20 cm ferkantað
form með smjöri og leggið
smjörpappír ofan á. Leyfið papp-
írnum að flæða yfir á tveimur
endum. Setjið vatn, sykur og sír-
óp í stóran og djúpan pott, hitið
að suðu, lækkið hitann aðeins
og hitið þar til blandan verður
fallega gyllt. Hrærið alls ekki í á
meðan. Hitið rjóma, smjör og
salt samtímis í öðrum potti, að
suðu. Blandið sykurblöndunni
og rjómanum saman þegar
sykurblandan er til og hrærið í
með sleif. Bætið vanilludropum
saman við og kveikið aftur á
hellunni. Hitið þar til blandan
nær 120°C en þá er karamellan
mjúk. Ef þið viljið seigari kara-
mellu má hitastigið fara í 150°C.
Best er að nota sykurhitamæli.
Slökkvið undir þegar hitastiginu
er náð, hellið í formið og kælið í
2-3 klst. Takið þá formið út, lyft-
ið karamellunni í smjörpapp-
írnum á skurðarbretti, stráið vel
af flögusalti yfir og skerið í litla
ferninga, tígla eða annað form.
Karamellur með flögusalti
Tvö borð þurfti undir veitingarnar og sátu gestirnir við annað þeirra.
Húsfreyjan sátt með verkið.Gestirnir fengu merktar servíettur. Allt í veislunni var sérlega jólalegt.