Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.11.2014, Blaðsíða 35
30.11. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 35
BOTN
75 g smjör, brætt
150 g digestive-kex
2 msk. kakó
Brytjið kex í matvinnsluvél, bætið
smjöri og kakó saman við og hrærið
saman. Þrýstið deiginu í eitt fallegt
mót, um 25 cm, helst með lausum
botni og riffluðum jaðri. Kælið í um 20
mínútur.
KARAMELLUBRÁÐ
1 og ¼ dl rjómi
½ tsk. vanilludropar
2 dl sykur
75 g smjör, kalt í bitum
1 tsk. flögusalt
Hitið rjóma og vanilludropa við væg-
an hiti, látið alls ekki sjóða. Bræðið
sykur í potti. Hrærið þegar hann fer
að bráðna og bíðið þar til hann nær
gylltum lit eða um 170°C gráðu hita
með sykurhitamæli. Setjið brytjað
smjörið út í bráðina og hrærið þar til
allt er bráðnað saman. Bætið saltinu
saman við og loks rjómanum. Látið
karamelluna kólna og ná borð-
stofuhita. Setjið karamelluna ofan á
tertubotninn í formið í kæli í 20-30
mínútur.
FYLLING
2-3 bananar
2,5 dl rjómi
smávegis kakó og súkkulaði til
skreytinga
Skerið banana í hæfilega þykkar sneið-
ar eftir smekk. Raðið þeim ofan á
karamelluna. Þeytið rjómann og
sprautið á tertuna með hringlaga stút,
Skreytið með rifnu, rúlluðu eða brytj-
uðu súkkulaði og sáldrið kakódufti yfir.
Óbökuð banana- og karamelluterta
3 stk. eggjahvítur
150 g sykur
bragðefni eftir smekk, t.d.
vanilludropar eða pipar-
myntudropar
matarlitir eftir smekk
Hitið ofninn í 110°C á blæstri.
Stífþeytið eggjahvítur. Blandið sykri
saman við, litlu í einu og haldið
áfram að þeyta eða þar til stífir
toppar myndast. Ef topparnir eiga
að hafa sérstakt bragð eða vera al-
litaðir skal gera það núna með því
að blanda út í blönduna lit og
bragði eftir smekk. Ef útbúa á
mynstur á þá skal geyma það þar til
síðar.
Setjið blönduna í poka með við-
eigandi sprautustút, til dæmis
stjörnu eða opnu hringlaga. Spraut-
ið munnstórum bitum á plötu og
bakið í 30-40 mínútur á plötu í
miðjum ofni. Til að fá svokallaða
jólabrjóstsykursáferð og bragð á
bitana skal hræra ½ tsk. af pipar-
myntudropum saman við. Setja
hringlaga stút á sprautupoka. Drag-
ið þá þrjár rendur af rauðum mat-
arlit eftir pokanum að innan áður
en marengsblöndunni er smellt inn
í pokann og setjið þá blöndu var-
lega í pokann. Sprautið á plötuna
og reynið að snúa til að fá útlit
„candy cane“.
Skoðið aðferðina í uppskriftinni
að „kökukúluturninum“ til að sjá
hvernig skal svo raða upp í turn ef
vill.
Marglitaðir
marengstoppar