Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.11.2014, Blaðsíða 57

Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.11.2014, Blaðsíða 57
30.11. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 57 Myndlistarmaðurinn Arn- finnur Amazeen opnar sýningu í Kunstschlager á Rauðarárstíg 1 klukkan 20 í kvöld, laugardagskvöld. Sýninguna kallar hann Gríman er andlitið. Arn- finnur er búsettur í Danmörku og hefur ekki sýnt hér á landi um skeið. 2 Hallveig Rúnarsdóttir sópransöngkona kemur fram á ljóðatónleikum klukkan 16 á sunnudag í Hannesarholti, ásamt Gerrit Schuil píanóleikara. Á efnisskránni eru söngljóð eftir Hugo Wolf við texta eftir Eduard Mörike. Tónleikarnir standa í klukkutíma. 4 Óhætt er að mæla með nýrri og afar áhugaverðri heimildarkvikmynd hins margreynda kvikmyndagerð- armanns Þorfinns Guðnasonar, Vik- ingo, um Jón Inga Gíslason og barda- gahana hans í Dóminíska lýðveldinu. 5 Jólahátíð Skoppu og Skrítlu snýr aftur í Borgar- leikhúsið á laugardag og er fyrsta sýning klukkan 13. Verkið var frumsýnt fyrir rúmu ári og þá sýnt fyrir fullu húsi 39 sinnum. 25 dansandi, syngjandi og leikandi börn á aldrinum 5-12 ára taka mikinn og stóran þátt, ásamt öllum aðalvinum Skoppu og Skrítlu. 3 Ingibjörg Guðjónsdóttir sópransöngkona kemur fram á hádegistónleikum í Gerðu- bergi klukkan 13.15 á sunnu- dag. Flytur hún þar úrval sinna eftir- lætis aría, meðal annars eftir Puccini, Händel og Mozart. MÆLT MEÐ 1 djúpt í þetta. Sumir lesa kannski aðeins byrj- unina en aðrir lesa meira. Mér finnst al- gjörlega nauðsynlegt að þeir sem áhuga hafa á þessum hlutum eigi kost á uppflettiriti þar sem upplýsingar af þessum toga liggja fyrir. Ég vildi halda þessu til haga og auðvelda mönnum síðan leitina með þessum hætti. Það er líka þannig að það eru sveiflur í áhuga manna. Í nútímanum hefur dregið aðeins úr bóklestri og margt togar í unga fólkið. Ég hef þá trú að þetta geti allt saman breyst og þá finnst mér betra en ekki að til sé einhvers konar rit sem auðveldi mönnum leitina að slíku efni.“ Inntur eftir því hvort bókin sé tæmandi svarar Jón því neitandi „Ég geri ekki ráð fyrir að ég hafi náð öllu, þótt ég voni auðvit- að að mér hafi tekist að draga upp trúverð- uga og alltæmandi mynd. Ég verð að við- urkenna að ég tók ekki í bókina efni af netinu, en í bloggheimum úir og grúir af alls kyns frösum sem komnir eru beint úr erlend- um málum. Það mætti æra óstöðugan að elt- ast við það. Auðvitað hef ég veitt þessu at- hygli, en í þetta verk tók ég aðeins efni sem hefur náð fótfestu, fest rætur.“ Jón ítrekar að bókin Orð að sönnu sé hugsuð fyrir nútímann. „Eftir að hafa unnið sem kennari í áratugi er reynsla mín sú að það þarf mjög lítið til að vekja áhuga ungs fólks og málnotenda almennt á máli, orðskýr- ingum og málsögu. Svona rit með skýringum getur eflt áhugann. Ég lifi ekki í þeirri sjálfs- blekkingu að ég sé að bjarga einhverju. Ég held að þess þurfi ekki. Málshættir hafa lifað með þjóðinni í mörg hundruð ár. Ég held að þetta sé vel lifandi og jafnvel betur lifandi en margir halda. Ég vona hins vegar að bókin ýti undir áhugann sem ég er viss um að lifir enn góðu lífi.“ Spurður hvað sé fram undan segist Jón ætla að hvíla sig á málsháttum í bili og snúa sér að öðru, þó hann hætti líklega aldrei að safna dæmum. „Nú þegar ég er kominn á eftirlaun hef ég góðan tíma og næði til að vinna úr því efni sem ég hef safnað að mér áratugum saman. Núna er ég öllum stundum að skoða notkun forsetninga, hvað svo sem kemur út úr því. Ég hef því nóg að gera og hef gaman af þessu. Það venst vel að vera kominn á eftirlaun.“ Morgunblaðið/Kristinn „Þessi samfella í tungumálinu er eitt það dýrmætasta sem við Íslendingar eigum,“ segir Jón G. Friðjónsson. Í nýrri bók sinni leitar hann víða fanga en í heimildaskrá hans eru ríflega 600 rit sem hann á öll sjálfur. Ber er hver að baki nema sér bróður eigi ‘auðvelt er að sækja aftan að þeim sem á sér engan varnaðarmann.’  Fornt mál (Brennu-Njáls saga): Ber er hver að baki, nema sér bróður eigi (ÍF XII, 436), einnig s19 (LestrÞB 16) og f20 (Una 7). Myndin að baki (at baki) er eldri og upphaflegri en sú mynd sem kemur fyrir í Grettis sögu (á bak- inu). Sbr. hér á eftir. […] Mh. virðist vera samnorrænn, sbr. svipaðan mh. í safni Ped- ers Låles: Bar ær brodherløss mann (PL 395) (Orð að sönnu bls. 35) Mjór er mikils vísir ‘hið smáa er undanfari hins mikla; upphaf er ávallt smátt.’  Fornt mál (í lausavísu eftir Óttar svarta) (Skjald I, 299 (1023)), sbr. einnig: og mjór muni vera mikils vísir (Æv 264 (1350)). Merkingarleg samsvörun er einnig kunn í fornu máli: Lítið upphaf gerir stundum ágætt niðurlag (Pamph 113-114). – Mh. er algengur í síðari alda máli, t.d.: vísir oft að mikils er mjór (Rs II, 531), sbr. einnig s18 (GPSt 45) [...], sbr. enn fremur: Mjór er jafna mikils vísir (s17/ f18 (HPNLjóð 22)) og Oft er mjór mikils vísir (Rvp 47 (1847). (Orð að sönnu bls. 642) Það lafir meðan ég lifi ‘það hangir meðan ég hjari.’  s19. öld (Þjólf 8.9.1893, 1), einnig (Ing 29.5.1944, 2), enn fremur: Það lafir á meðan ég lifi (Al- þbl 7.3.1951, 5). Mh. vísar til há- marks skammsýni og eigingirni. Hann mun vera umorðun fleygra ummæla úr frönsku: aprés nous le déluge. Sbr. Eftir mig kemur syndaflóðið. Sjá syndaflóð. (Orð að sönnu bls. 335) Hægist mein þá um er rætt ‘böl rénar ef um það er rætt; angur linast ef frá því er sagt.’  Mh. felur í sér gömul sannindi. Í Ívars þætti Ingimundarsonar greinir frá því að Ívar fékk ekki þeirrar konu (Oddnýjar Jóansdóttur) er hann unni heldur bróðir hans. Af þessum sökum tók Ívar ógleði mikla. Er Eysteinn konungur frétti hvers kyns var bauð hann Ívari marga góða kosti til að létta honum lundina en ekkert dugði. Þrautalendingin var þá sú að Ívari skyldi heimilt að ræða um konuna við konung þegar hann væri ekki vant við látinn því að: það kann verða stundum að mönnum verður harms léttara ef um er rætt (Fris 290 (Eirsp 140)), sbr. einn- ig: það verður stundum að mönn- um verður harms sín að léttara er um er rætt (Ísl 2182). Nútíma- myndin er frá 19. öld (GJ 168), einnig s19 (LestrÞB 18), f20 (FGEnd I, 280) og f20 (GB 12), sbr. enn fremur: Hægjast mein þeim frá greinir (Lögb 1934, 7). Sbr. Samtal er sorga læknir. Sjá samtal. Sbr. Segðu það steinunum heldur en eng- um. Sjá steinn. Sbr. Það er þyngst að bera raunirnar einn. Sjá raun. (Orð að sönnu bls. 391) Nokkur dæmi um málshætti úr bókinni Orð að sönnu Sumir málshættir hafa fylgt þjóðinni frá örófi alda
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.