Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.11.2014, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.11.2014, Blaðsíða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30.11. 2014 I ðulega er uppi sú krafa á hendur trúuðum mönnum að þeir færi rök fyrir trú sinni og er þá átt við rök sem líta má á sem hefðbundinn lið í sönnunarfærslu. Þess háttar kröfur koma frá þeim sem telja að heilbrigð skyn- semi, vísindalegar aðferðir og jarðbundin þekking í hæfilegu blandi við sannfæringu þeirra sjálfra kippi stoðunum undan trú manna. Af ein- hverjum ástæðum virðast kristnir menn verða fremur fyrir slíku áreiti en þeir sem halla sér til að mynda að þeirri trú sem Múhameð spámaður fór fyrir. Það hef- ur verið fellt undir blindan stjórnmálalegan rétt- trúnað að sýna beri þeirri trúargrein sérstakt um- burðarlyndi, þótt birtingarmynd hennar víða falli illa að gildismati vestrænna manna, svo ekki sé minnst á hugmyndir um jafnrétti. Ruglað saman vínberjum og vélmennum Kristnir menn eru sér hver og einn vitandi um sitt trúarlega haldreipi og það er hvorki leitt út úr fræði- legri formúlu né staðreynanlegri sönnunarfærslu. Þeir skulda engar skýringar. Frásagnir þær sem byggt er á í grundvallarþætti trúarinnar eiga sér margar gildar sagnfræðilegar heimildir. Fáir sem kunna til verka í þeim fræðum reyna að gera þær tor- tryggilegar. En slíkir tilburðir breyta þó engu. Trúin hvorki stendur né fellur með þeim. En kosturinn við beitingu fræðilegra formúlna og sönnunarfærslu sem stenst vísindalegar kröfur víða í tilverunni er ekki síst sá, að trú kemur því ekki við. Trúin fær á hinn bóginn þrifist án slíks, eins og felst í orðinu. Þeir, sem þykir hún ómerkilegri fyrir vikið, mættu hugsa til þess að margt annað beygir sig alls ekki undir formúlurnar eða sönnunarfærsluna. Til dæmis býr ástin við áþekk skilyrði. Ætlar einhver að gera kröfur um að hún sé sönnuð? Vitnisburðirnir um hana eru óteljandi og drýgsti hluti mannkyns hefur reynt að ástin gerir ótrúleg kraftaverk. Kraftaverk koma líka við sögu í heimi trúarinnar. Svo er það sálin. Velmenntaðir vís- indamenn eru kenndir við hana. Hún fylgir mann- inum. Að minnsta kosti trúum við því flest, en ekki hefur tekist að staðsetja hana í skrokknum og hún er lítið fyrir myndatökur. Forðast jafnvel sneiðmynda- vélina, sem greinir þó margt. Svo er það hin ramma taug sem rekka dregur föðurtúna til. Vitnisburðir um þá taug mælast í milljónum. Snorri Sturluson ber tauginni vitni: Út vil ek. Aðrar taugar hafa náðst á mynd, sumar með rafeindasmásjá, en ekki þessi. Á að fordæma hana fyrir þær sakir? Svo eru það forfeður okkar og mæður. Þegar horft er langt fram er ekki ein einasta sönnun til um það að það fólk hafi verið til. Aldrei hefur verið skrifað um það stafur eða dregin upp af því mynd. En svo kom óvænt sú tíð að það nægir Kára Stefánssyni að gera munnstrok eða ná blóðdropa til að fræðast lifandis býsn um þetta fólk. Og að auki ættum við, hvert og eitt, að vera nægjanleg sönnun þess, að þetta fólk hafi örugglega verið til, þótt ekkert annað bendi svo sem til þess. Og jafnvel meint vísindaleg fyrirbæri verða að láta sér umbúnað trúarinnar duga þar til hin ótví- ræða sönnun liggur fyrir. Ótal dæmi eru til um að menn hafi verið sannfærðir um þau, trúað á þau og einmitt það hafi haft mest að segja um að sönnun fékkst, þótt það tæki ár eða aldir að finna hana. Hefðu menn sagt þessa „trú“ eða „sannfæringu“ fráleita af þeirri ástæðu einni að ekki væri búið að sanna hana hefði hún vísast aldrei verið sönnuð. Hinum stór- merku kenningum Darwins er gjarnan stillt upp sem andstæðu trúar. En þar sem þessar kenningar eru enn, eftir allan þennan tíma, aðeins kenningar, hafa margir áskilið sér rétt til að taka á þær trú allt þar til afgerandi sönnun kann að fást. Enginn getur amast við því og ekkert dregur það úr gildi kenninganna. Darwin sjálfur lét sínar miklu rannsóknir og kenning- Morgunblaðið/RAX Hún er sjaldséð pestin þar sem menn verða veikir fyrir staðreyndum Eldgos í Holuhrauni Reykjavíkurbréf 28.11.14
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.