Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.11.2014, Page 13
Bærinn Ölkelda í Staðarsveit á
sunnanverðu Snæfellsnesi lætur
ekki mikið yfir sér en þar er þó að
finna merkilegt fyrirbæri, eins og á
nokkrum öðrum stöðum, sem vert er
að skoða: Lind þar sem upp sprettur
kolsýrt vatn.
Rör stendur upp úr jörðinni, hægt
er að skrúfa frá og ná sér í kaldan
svaladrykk sem sannarlega bragð-
ast öðruvísi en hefðbundið vatn.
Eggert Ólafsson skoðaði kelduna
1754 og í ferðabók þeirra Bjarna
Pálssonar frá 1772 er ölkeldunum á
Snæfellsnesi lýst sem uppsprettum
„sem eru auðugar af málmsöltum og
með bragðmiklu vatni“. Nokkrar
slíkar eru á nesinu en líka á Ölkeldu-
hálsi í Henglinum og við Leirá í
Borgarfirði
Nefna má að kalk er margfalt í öl-
kelduvatni samanborið við venjulegt
vatn sem og kalíum, natríum og
járn, einnig flúor, klór og súlfat.
Árið 1972 efnagreindu þýskir vís-
indamenn allar þekktar ölkeldur á
Íslandi og fullyrtu m.a. að krans-
æðasjúklingar geti nýtt sér kalkríkt
ölkelduvatn til lækninga, einnig
nýrnasjúklingar.
Á skilti við Ölkeldu segir að vatnið
hafi verið nýtt til drykkjar um aldir
á bænum.
STAÐARSVEIT
„Sódavatn“ beint upp úr jörðinni
Einstaka túristar
koma við hjá Ölkeldu
og fá sér að smakka
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
hönd á jólaundirbúning, pakkar inn
gjöfum og þess háttar. „Við opnum
heimili okkar og vinnustofu. Hing-
að koma margir þessar helgar á
aðventunni, sumir til að kaupa en
aðrir bara til að kíkja inn og
spjalla. Það eru allir velkomnir,“
segir Aðalheiður. „Fólki finnst
voða notalegt að fara aðeins út í
sveit úr jólastressinu. Það er ekki
nema fimmtán mínútur verið að
keyra hingað úr miðbænum á Ak-
ureyri og tíu mínútur frá bæjar-
mörkunum.“
Aðalheiður og Jón eru bæði
þekktir listamenn, hún ekki síst
fyrir stóru tréverkin en hann ein-
beitir sér aftur á móti að hinu smá-
gerða.
Brák dóttir þeirra fetar nú
fyrstu sporin eftir listabrautinni en
Arnar Ómarsson, sonur Aðalheiðar,
er útskrifaður frá listaháskóla í
London. Öll verða þau heima til að
taka á móti gestum.
Á Þorláksmessu verða tíu ár síð-
an fjölskyldan flutti endanlega inn
í Freyjulund. Hálft ár hafði tekið
að gera húsið íbúðarhæft með mik-
illi vinnu. Fyrir nokkrum misserum
keypti Aðalheiður annað félags-
heimili; Alþýðuhúsið á Siglufirði,
sínum gamla heimabæ, og er þar
líka með vinnustofu því Freyju-
lundur var í raun orðinn of lítill.
„Fjölskyldan veit af reynslu að það
tekur hálft ár að gera upp gamalt
félagsheimili!“ segir Alla og hlær.
Marga vinalega timburmenn, og dýr, má finna í vinnustofu Aðalheiðar.
Fyrsti jólakötturinn, anno 2000, til vinstri, og sá sem varð til fyrir þessi jól.
30.11. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13
Daníel Jakobsson, fv. bæjarstjóri á Ísafirði, lagði til að
skoðaðir yrðu kostir þess og gallar að hækka há-
markshraða í Pollgötu og Krók í allt að 50 km á klst.
Skipulags- og mannvirkjanefnd mælir ekki með því.
Hraðinn verði ekki aukinn
Byggðaráð Rangárþings eystra hefur samþykkt tillögu
starfshóps um styrk til uppsetningar og uppfærslu há-
hraða-internets í dreifbýli. Til þess mun sveitarsjóður
verja allt að þremur milljónum króna á næsta ári.
Hraðinn verður aukinn
Ágæti nágranni í
Teigahverfi og Sigtúni
Íslandshótel minna á áðursent bréf
dagsett 10. nóvember vegna kynningar
á framkvæmdum í Sigtúni 38 og 40.
Við vonum að þú þiggir boðið á morgun
mánudaginn 1. desember á Grand Hótel
Reykjavík, Sigtúni 38, kl. 17:00.
Starfsmenn veitingastaðarins Frið-
riks V við Laugaveg í Reykjavík
eiga sér mismunandi bakgrunn;
þar starfar að sjálfsögðu mat-
reiðslumeistari – Friðrik V. Karls-
son sjálfur, einn er nemi í grafískri
hönnun, annar að læra hús-
gagnasmíði og sá þriðji forn-
leifafræði, svo dæmi séu nefnd.
Konan, Arnrún Magnúsdóttir, er
leikskólakennari. Nú fá allir að
njóta sín utan eldhúss og veit-
ingasalar því sett verður upp sýn-
ing á listaverkum starfsmanna, og
ágóðinn af sölu gefinn til góðs mál-
efnis.
„Við höldum fimm sýningar á
hverju ári, tengdar árstíðunum;
vori, sumri, hausti og vetri, auk
einnar um jólin. Byrjuðum á þessu
þegar við vorum með staðinn við
Strandgötu á Akureyri en hættum
reyndar þegar við fórum í Listagil-
ið; fannst þá ekki passa að við
værum að stíga á fætur vina okkar
þar með því að sýna listaverk en
byrjuðum á þessu aftur þegar við
opnuðum í Reykjavík,“ segir Frið-
rik við Morgunblaðið.
„Hugmyndin að því að starfs-
fólkið héldi sjálft sýningu kviknaði
á árshátíðinni hjá okkur í vor og
við ákváðum að halda jólasýn-
inguna. Ákveðið var að þemað yrði
jólatré og að verkin mættu ekki
vera stærri en 30 sinnum 40 cm.“
Sýningin verður opnuð á sunnu-
daginn, þegar starfsfólkið hengir
verkin sín upp saman. „Ég hef
ekki séð öll verkin þannig að ég
bíð spenntur. Verkið sem ég gerði
er vínkassi sem ég skar til og mál-
aði, Adda er með útsaumsverk,
einn er að vinna koparverk og ann-
ar í tré.“
Sýningin stendur yfir þar til í
janúar og eru öll verkin til sölu.
Staðurinn er alltaf lokaður frá því
rétt fyrir áramót og fram í miðjan
janúar. „Við opnum aftur 15. jan-
úar að þessu sinni. Á bóndadaginn
munum við svo afhenda peninga
sem safnast – ef eitthvað selst! –
til einhvers góðs málefnis og við
Adda erum búin að ákveða að fyr-
irtækið leggur til sömu upphæð og
safnast,“ segir Friðrik V. Karlsson.
REYKJAVÍK
Lystaukandi listaverk
STARFSMENN FRIÐRIKS
FIMMTA ERU EKKI BARA
HANDLAGNIR Í ELDHÚSINU
OG VEITINGASALNUM.
Tvö verkanna sem verða til sýnis og sölu á veitingastaðnum Friðriki V.
Axel Friðriksson, Friðrik V, Arndís Ásta Kolbeins og Arnrún Magnúsdóttir.
Morgunblaðið/Árni Sæberg