Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.11.2014, Page 14

Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.11.2014, Page 14
14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30.11. 2014 G uðbergur Bergsson sendir frá sér skáldsöguna Þrír sneru aftur. Á ein- angruðum stað suður með sjó, þar sem aldrei gerist neitt, berast fregnir af átökum seinni heimsstyrjaldar- innar. Fyrir en varir hefur at- burðarásin teygt anga sína þang- að og nútíminn heldur innreið sína. Titill bókarinnar vísar í sögu sem ein persóna bókarinnar les fyrir dreng á bænum afskekkta. „Þessi hugmynd er búin að veltast í huganum alveg frá því fyrir stríð þegar ég var barn. Ég er einn af þeim fáu sem eru eftir og muna hvernig Ísland var fyrir stríð,“ segir Guðbergur. „Í minn- ingabók sem Hannes Pétursson skrifaði segir hann frá því þegar hann er í vegavinnu og fer á Sauðárkrók og kaupir bók, sem hann man ekki titilinn á, en hún fjallar um menn sem verða fyrir því að skip þeirra er skotið niður og þeir eru á reki um sjóinn í bát. Þetta er bókin Þrír sneru aftur en ég umbreyti sögunni. Í upphafi sögu minnar koma tveir ungir Bretar til Íslands, síðan koma þeir þangað í stríðinu sem hermenn og loks sem gamlir menn. Á þessum stað er líka Þjóðverji sem dvelur þar um tíma. Í lok bókarinnar snúa þess- ir þrír menn aftur til Íslands.“ Ameríska byltingin Bókin þín fjallar að stórum hluta um erlend áhrif hér á landi og þar er Kaninn nefndur hvað eftir annað. „Tíminn á Íslandi varð ekki til fyrr en með Ameríkananum. Þá þurftum við að fara að mæta á réttum tíma í vinnu og stimpla okkur inn en áður var tíminn ekki til. Það var ekki heldur til almennilegt þjóðfélagsskipulag. Menn fóru á sjóinn þegar gaf á sjó og fóru að raka þegar veður var gott. Menn voru á valdi veðr- anna en ekki á valdi tímans. Síð- an kom Ameríkaninn og þá kom tíminn. Ameríkaninn gerði þá mestu byltingu sem orðið hefur á Íslandi og reyndar hefur engin bylting orðið hér á landi nema ameríska byltingin. Ameríkanar gerðu gífurlega mikið gagn en það hefur ekki verið athugað að ráði vegna þess að ofstækið hefur verið svo mikið bæði til hægri og vinstri. Ég var alltaf hlutlaus og ekki haldinn ofstæki gegn Am- eríku eða Rússum.“ Hvernig finnst þér andrúms- loftið vera í heiminum? „Andrúmsloftið í heiminum er ruglingslegt. Þjóðirnar átta sig ekki vel á því sem er að gerast. Nú hagar öðruvísi til en þegar ég var ungur, þá héldu menn að þeir væru að átta sig á því sem var að gerast því heiminum var skipt í tvennt, í kapítalisma, og komm- únisma. Þegar kommúnisminn hvarf þá taldi auðvaldið sig hafa sigrað og réðst fram. En af því að auðvaldið var orðið frjálst þá varð það ráðlaust og kollkeyrði sig. Frelsið sem auðvaldið skapaði endaði í upplausn og leiddi af sér þann vanda sem við lifum við núna. Þannig að fall kommúnist- ans er jafnvel meiri harmleikur fyrir auðvaldið en kommúnismann sjálfan. Lærdómurinn af þessu er sá að maður verður að vara sig á því að fella ekki óvininn.“ Hef aldrei trúað á neitt Amman í bókinni þinni heldur fram kristnum gildum og sálma- söng. Hvaða viðhorf hefur þú til trúarinnar? „Fyrst kom kirkjutrúin en henni hnignaði og hvarf síðan að miklu leyti sem vald enda kom hún ekki með neinar lífrænar hugmyndir. Svo var farið að benda á konuna sem allsherj- arlausn og konurnar urðu prestar en þær hafa ekkert annað að segja annað en: Komið og syngið við kertaljós! En maðurinn lifir ekki á því að syngja við kerta- ljós.“ Hefur þú einhvern tímann trú- að á eitthvað? „Nei, ég hef aldrei trúað á neitt. Ég hef helst treyst sjálfum mér og öðrum stöku sinnum. Maður getur ekki treyst öðrum algjörlega. Hið algjöra er mjög fjarlægt mér og ég treysti sjálf- um mér heldur ekki algjörlega. Að skrifa skáldsögu er hið eina frjálsa framtak sem til er. Þar verður maður að treysta sjálfum sér. Maður er bara einn í sínum bókum. Sumir eru reyndar svo hamingjusamir, eins og Tolstoj, að hafa konuna sína sem leið- réttir og skrifar upp og Dostój- evskí hafði meira að segja tvær. Ég vann alltaf fyrir mér og bjóst aldrei við að fá neitt fyrir þær bækur sem ég skrifaði. Það að skrifa var bara í mér.“ Skrifarðu reglulega? „Já, ég skrifa á hverjum degi. Það er í mínu eðli.“ Þú sagðist fyrr í þessu viðtali ekki trúa á neitt, en mig langar samt til að spyrja hvort þú trúir á innblástur. „Innblástur er þannig að eitt- hvað er að veltast um í huganum og brýst svo fram svipað og draumar. Þegar ég var ungur dreymdi mig eitthvað og ætlaði að skrifa það niður og nýta mér en sá svo að það sem mig hafði dreymt var bara vitleysa. Það hefur mikið verið gert af því að gylla innblástur hjá listamönnum, eins og engir aðrir fái innblástur en þeir. Á tímabili skiptu lista- menn svipuðu máli og prestar áð- ur fyrr, ef rithöfundur sagði eitt- hvað fannst fólki að það hlyti að vera satt. En auðvitað fá allir menn hugmyndir og hugsa stund- um meira en venjulega og dettur þá eitthvað snjallt í hug.“ IKEA-andinn Lestu bækur kollega þinna? „Ég reyni að fylgjast með því sem þeir eru að gera. Fljótt á lit- ið finnst mér þetta vera eins kon- ar IKEA. Það er enginn sem sker sig verulega úr, nema með aðstoð auglýsinga. Ég hafði þann gífurlega kost að hafa ekkert á bak við mig, enga fjölskyldu, eng- an flokk. Ég varð bara að lifa eða deyja með sjálfum mér. IKEA-andinn er mjög ríkjandi í þjóðfélaginu. Borgarstjórinn er til dæmis IKEA-maður sem tók við af Jóni Gnarr sem sagði íslenska fyndni af sömu tegund og iðn- aðarmenn höfðu. Íslenskir iðn- aðarmenn höfðu íslenskt kjaftavit en þeim var haldið niðri en kjaftavit Jóns Gnarr var magnað upp með auglýsingum og hann lifði á því. Síðan kemur IKEA- maðurinn, Dagur, og stærir sig af Hverfisgötunni sem er orðin IKEA-gata þar sem allt er snyrtilega dautt.“ Dvelurðu mikið í útlöndum? „Ég fer til reglulega til útlanda til að fylgjst með ljóðlistinni vegna þess að ég vil ekki missa tökin á því sem ég reyndi að ná sem ungur maður. Ég fer ekki til Skandinavíu. Ég hef aldrei farið til Skandinavíu vegna þess að þegar ég var ungur var of dýrt að vera þar. Ég fékk ekki náms- lán vegna þess að ég var ekki stúdent svo ég varð að bjarga mér sjálfur. Það gat ég ekki gert í Skandinavíu nema með því að koma mér á sósíalinn og fara svo til Kristjaníu og reykja hass og koma svo heim og fá dýrðarljóma yfir mig vegna þess að ég hefði verið í hassi. Ég vildi ekki fara svo aumingjalega leið. Það eru menn hér á landi sem lifa á því að hafa verið rónar eða eitur- lyfjassjúklingar. Í blöðum er lát- laus upphafning aumingjans, sem kemur í staðinn fyrir upphafningu á dugnaðarforkinum, konum og körlum, sem var svo rík hér áður fyrr. Þá var karlinn á sjónum og konan var heima og réð öllu. Kvennavaldið hér hefur alltaf ver- ið algjört.“ Hvað finnst þér um fem- ínismann? „Femínisminn er viss trúar- brögð en femínistarnir vita ekki alveg hvað þær eiga að gera því þær eru ekki nægilega andlega frjóar. Hér á landi höfum við hvorki trúarleiðtoga né stjórn- málaleiðtoga og enga stjórnmála- hugsun og enginn þorir að segja neitt vegna þess að fólk er hrætt. Við hvað er fólk hrætt? Það er hrætt við bóndann. Í germönskum samfélögum borðuðu þrælarnir með bóndanum en bóndinn borð- aði góða matinn og þrælarnir vonda matinn. Þannig gat bóndinn mótað allt hugarfar þeirra sem sátu með honum til borðs. Ennþá býr í okkur hræðsla við bóndann, en bóndasamfélagið hefur ekkert fram að færa.“ Finnurðu fyrir aldrinum? „Ég finn ekki fyrir aldrinum vegna þess að ég er ómeðvitaður. Það besta sem getur komið fyrir listamann er að vera ómeðvitaður um að hann sé listamaður. Engu að síður leggur hann sig allan fram við það að kynnast eins miklu og mögulegt er alls staðar og nýta allt í sjálfum sér og öðr- um ef hann hefur tök á því. Mað- ur sem er of meðvitaður um það að hann sé listamaður lendir í miklum vanda. Það er nefnilega allt afskaplega óöruggt í þessari skapandi lygi sem listamaðurinn lifir í.“ „Ég finn ekki fyrir aldr- inum vegna þess að ég er ómeðvitaður,“ segir Guðbergur Bergsson. Hið algjöra er mjög fjarlægt mér GUÐBERGUR BERGSSON SENDIR FRÁ SÉR NÝJA SKÁLDSÖGU. Í VIÐTALI RÆÐIR HANN UM AMERÍSKU BYLTINGUNA, IKEA-ANDANN SEM HONUM FINNST OF RÍKJANDI OG MIKILVÆGI ÞESS AÐ LISTAMAÐUR SÉ ÓMEÐVITAÐUR. TRÚ OG INNBLÁSTUR BERAST EINNIG Í TAL. Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@mbl.is * Ég hef helst treyst sjálfum mér ogöðrum stöku sinnum. Maður geturekki treyst öðrum algjörlega. Hið algjörlega er mjög fjarlægt mér og ég treysti sjálfum mér heldur ekki algjörlega. Að skrifa skáld- sögu er hið eina frjálsa framtak sem til er. Þar verður maður að treysta sjálfum sér. Maður er bara einn í sínum bókum. Svipmynd

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.