Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.11.2014, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.11.2014, Blaðsíða 41
30.11. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 41 Á þessum árstíma, þar sem yfirsnúningurinn á það til að fara yfir hættumörk, er ágætt að gefa sér tíu mínútur eða korter og spyrja sig nokkurra spurninga. Ágætt er að vera með blað og penna við höndina, svo maður gleymi ekki aðalatriðunum í mesta glund- roðanum, og skrifa svarið samviskusamlega niður á blað. Spurningin er eitthvað á þá leið hvað desember og jólaundirbúningurinn geri raun- verulega fyrir okkur og svo má spyrja sig hvort jólastússið geri okkur hamingjusamari. Hjá mestu jólabörnunum eru hæg heimatökin en hjá þeim sem hafa „engan tíma“ getur desember breyst í lifandi helvíti. Og afsakanir eins og fólk þurfi að forgangsraða og gefa sér tíma eiga sér bara því miður enga stoð í raunveruleikanum. Ég veit ekki um neinn sem getur labbað út úr vinnunni á miðjum degi til að fara heim til sín að baka smákökur og föndra með börnunum eða fara í Smáralind að kaupa jólagjafir. Desember er svolítið skrautlegur mánuður því innst inni viljum við held ég allar hafa allt ógurlega fínt og lekkert í kringum okkur, að börn- in upplifi eitthvað stórkostlegt og jólaskapið hreinlega drjúpi af okkur. Og innri friður, ekki gleyma honum, hann þarf að vera í hámarki. Þegar lífið er þannig í grunninn að það leyfir engin meiriháttar frávik getur þessi blessaði jólaundirbúningur farið með okkur kvenpeninginn. Ég segi kvenpeninginn því ég veit ekki um marga karla sem taka jóla- undirbúninginn með eins miklu trompi og við konurnar. Það eru mömmurnar sem jóla og búa til stemningu. Þetta er að hluta til okkur að kenna því við ölum börnin okkar þannig upp að hitt og þetta sé ómissandi og heilaþvoum þau um að mamma geri allt best. Úttaugaðar mætum við svo í jólaföndrið eða á danssýningar eftir vinnu því ekki getum við skrópað – þá yrðum við stimplaðar vanhæfar. Svo þarf að sýna foreldrum afrakstur lífeyrissjóðsins á hinum ýmsu sviðum og ekki gleyma vinnustaðagleðinni, jólahlaðborðunum, vinkonu- kvöldunum og svo skaltu hafa það bak við eyrað að þú kemst á dauða- listann ef þú skrópar í fjölskylduboðum. Í yfirkeyrslunni sem tilheyrir jólaundirbúningnum þyrftu mömm- urnar yfirleitt miklu meira á því að halda að fá að sofa út eða vera heima hjá sér á sloppnum og slaka á í stað þess að taka jólaundirbúninginn með trompi. Nú eru mögulega einhverjir farnir að blóta þessari djö … sjálfselsku í mér. En álag á konur á vinnumarkaði er dauðans alvara. Þar sem heil- brigðiskerfið er líklega ekki að fara að grípa okkur þegar við klárum batteríin þurfum við að vera meðvitaðar sjálfar og setja sjálfar mörk. Það gerir það enginn fyrir okkur – nema náttúrlega við séum í þeim mun betri ástarsamböndum. Svona rétt í lokin má líka velta fyrir sér hvers vegna áfengisdrykkja eykst í desember. Er það vegna þess að okkur finnst vín svona ógurlega gott eða er það kannski vegna þess að álagið er svo mikið að við kom- umst hreinlega ekki edrú í gegnum þetta? Þá má aftur spyrja sig hvort það sé ekki eitthvað pínulítið að í samfélaginu ef það telst eðlilegt að við þurfum deyfingu í vökvaformi til að geta dregið andann án þess að snappa … martamaria@mbl.is Þarf alltaf að vera vín? Hér er verið að keyra upp jólastemninguna. Úttaugaðar í jólastressinu – með morgunkaffinu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.