Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.11.2014, Blaðsíða 42
R
eykvíkingurinn Edda
Hamar flutti fyrst frá Ís-
landi fimm ára gömul og
ferðaðist í þrjú ár ásamt
móður sinni á snekkju umhverfis
hnöttinn og enduðu þær mæðgur í
Ástralíu.
Árið 2000 fluttu þær síðan al-
farið til Ástralíu en þá var Edda
ellefu ára gömul. Edda segist vera
Ástrali en þykir þó gott að koma
reglulega í heimsókn til íslands og
tengir vel við íslenskan húmor og
menningu.
Edda er útskrifuð með meistara-
gráðu í viðskipta- og markaðsfræði
við háskólann í Brisbane en hún
stundaði líka nám í skapandi iðnaði
í tengslum við framleiðslu sjón-
varpsefnis.
Hún rekur nú fyrirtækið Und-
ress Runways sem snýr að því að
vekja athygli og fræða almenning
um hugtakið sjálfbær tíska. Edda
segir fyrirtækið stuðla að því koma
jákvæðum skilaboðum í fataiðn-
aðinum á framfæri, frekar en að
kynna nýjustu tískustraumana.
Leggur áherslu á jákvæðar
sögur úr fataiðnaðinum
„Á síðasta árinu mínu í BA nám-
inu, árið 2010, langaði mig að halda
einhverskonar viðburð eða tísku-
sýningu. Ég hafði aldrei áður farið
á tískusýningu eða gert neitt því
um líkt. Þetta var svolítið skrýtið
en að sjálfsögðu gaman. Ég sá
tækifæri í tískusýningum og lang-
aði að gera meira heldur en bara
að sýna föt sem væru sæt og fín.
Mig langaði að sýna föt sem segðu
jákvæða sögu með því að upplýsa
hvaðan varan kom, hvernig hún
væri gerð og úr hverju.
Föt sem unnin eru við mann-
úðlegar aðstæður og að þá sé einn-
ig tekið tillit til umhverfisins,“ seg-
ir Edda og bætir við að öll fötin á
sýningunni hafi verið ýmist úr líf-
rænum eða endurunnum efnum.
Undress Runways samanstendur
af tæplega 40 sjálfboðaliðum sem
hjálpa til við að undirbúa sýn-
inguna. Allt frá því að finna hönn-
uði, ráða fyrirsætur, vinna að
sviðsmynd, hári og förðun, mark-
aðssetningu og fleiru.
Undress Runways er einnar
kvöldstundar viðburður þar sem
haldnar eru fjórar sýningar í fjór-
um flokkum. Hönnuðirnir hafa ver-
ið um 30 talsins og eru ýmist frá
Ástralíu, Nýja Sjálandi eða Banda-
ríkjunum. Undress byrjaði í Bris-
bane en hefur fært út kvíarnar frá
því að það var stofnað árið 2011 og
var í ár haldið í tveimur öðrum
borgum, Melbourne og Gold Coast.
„Undress Runways vinnur að því
að tengja sig við hönnuði um víða
veröld sem eru gera réttu hlutina í
tískuheiminum. Hönnuði sem
hanna línur sem eru sjálfbærar og
framleiða fatnaðinn á siðrænan
máta,“ útskýrir Edda.
Internetið breytti umræðunni
Edda segir gífurlega vitundarvakn-
ingu hafa orðið á stuttum tíma
varðandi sjálfbæra tísku.
„Þegar við byrjuðum var upplýs-
ingaflæði sjálfbærrar hönnunar
gríðarlega takmarkað, meira að
segja á internetinu. Þá voru fimm
hönnuðir í Brisbane að vinna að
sjálfbærri hönnun en þeim hefur
fjölgað núna svo um munar.
Það hefur einnig áhrif hve marg-
ar stórstjörnur hafa talað um sjálf-
bæra tísku og sérstaklega núna,
einnig í sambandi við loftslags-
breytingar, er fólk farið að hugsa
um meira en að slökkva á ljósunum
og skrúfa fyrir vatnið.“ Edda bætir
við að með internetinu gefist fólki í
EFTIRSPURNIN EYKUR FRAMLEIÐSLUNA
Sá tækifæri í tískusýningum
EDDA HAMAR HEFUR BÚIÐ MEIRI HLUTA ÆVINNAR Í ÁSTRALÍU. ÁRIÐ 2011 STOFNAÐI HÚN FYRIRTÆKIÐ UNDRESS RUNWAYS SEM SNÝR
AÐ ÞVÍ AÐ FRÆÐA ALMENNING UM SJÁLFBÆRA TÍSKU OG MIKILVÆGI SIÐRÆNNAR FRAMLEIÐSLU Á FATNAÐI.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
Gríðarlegur fjöldi mætti á sýninguna eða um 800 manns.
42 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30.11. 2014
Tíska
Edda stofnaði Un-
dress Runway árið
2011 en það hefur
vaxið hratt síðan.
Edda Hamar segir fyrir-
tæki sitt Undress Runways
stuðla að því koma já-
kvæðum skilaboðum í
fataiðnaðinum á framfæri.