Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.11.2014, Side 64

Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.11.2014, Side 64
SUNNUDAGUR 30. NÓVEMBER 2014 Vagna Sólveig Vagnsdóttir, alþýðulistakona á Þingeyri, hefur fengið mikil viðbrögð við viðtali við hana sem birtist á síðum þessa blaðs fyrir viku, þar sem hún gerði meðal annars grein fyrir núningi sínum við aðra heima. Vagna Sólveig segir fjölda fólks hafa hringt í sig og beðið sig um aðstoð af ýmsu tagi. Hún hafi meðal annars verið beðin um að stíga inn í forræðisdeilu. „Þetta er á misskilningi byggt,“ segir Vagna Sólveig í samtali við Sunnudagsblað Morgunblaðsins. „Ég er ekki miðill enda þótt ég skynji ákveðna hluti og gef mig ekki út fyrir að geta hjálpað fólki að komast í samband við aðra heima. Eins og ég gerði grein fyrir í viðtalinu þá dreg ég mig yfirleitt í hlé þegar ég skynja þessa hluti. Finn að ég er ekki velkomin. Ég er alveg tilbúin að ræða um aðra heima, líf eftir dauðann og allt það en ítreka að ég er þess ekki umkomin að hjálpa fólki.“ Vagna Sólveig Vagnsdóttir. Ljósmynd/Halldór Sveinbjörnsson VAGNA SÓLVEIG ALÞÝÐULISTAKONA Hjálpar ekki fólki að komast í samband við aðra heima Þeir voru hressir jötnarnir sem stilltu sér upp fyrir ljósmyndara Morgunblaðsins í Laugardalslaug- inni í nóvemberlok 1994. Tilefnið var keppnin „Sterkasti maður jarðarinnar“ sem stóð fyrir dyrum í Laugardalshöllinni. Myndin hafði ákveðið forspárgildi því kappinn sem hinir bera hér á herðum sér fór með sigur af hólmi í keppninni. Manfred Höberl heitir hann og er frá Austurríki. Mun Höberl hafa verið með stærstu upphandleggi í heimi, 65 sentimetra að ummáli. Hart var glímt í Höllinni. „Ég hef aldrei tekið svona hroðalega á, enda missti ég máttinn í lokagrein- inni,“ sagði Andrés Guðmundsson sem fékk silfrið. Í samtali við Morgunblaðið kvaðst Höberl hafa nóg að gera við að hnykla vöðvana og keppa á aflraunamótum um heim allan. Ekki síst í Bandaríkj- unum. „Þar halda menn ekki vatni yfir vöðvum og mér hafa boðist mörg verk þar í landi. Sjáðu líka velgengni Schwarzeneggers, allt út á vöðvana, þó að gott við- skiptavit spili þar reyndar inn í líka. Ég held að honum sé um og ó að mér eru að berast tilboð. Hann er mun minni en ég, líður sjálfsagt eins og dverg við hliðina á mér.“ GAMLA FRÉTTIN Með jötnum Jötnarnir bregða á leik: Ted van der Perre, Illka Kinnunen, Andrés Guð- mundsson, Forbes Cowan og Wayne Price halda á Manfred Höberl, 140 kg. Ekki fylgdi sögunni á hvers vegum hnáta þessi var þarna í lauginni. Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson ÞRÍFARAR VIKUNNAR Ron Perlman kvikmyndaleikari Birgir Jakobsson verðandi landlæknir Tom Waits tónlistarmaður SAMKVÆMT BÓKSÖLU Í PENNANUM EYMUNDSSON UM LAND ALLT METSÖLULISTI EYMUNDSSON VIKAN 19.11.14 - 25.11.14 1 2 5 6 7 8 109 43 Frozen hárbókin Theodóra Mjöll / Disney Skálmöld Einar Kárason Þín eigin þjóðsaga Ævar Þór Benediktsson Öræfi Ófeigur Sigurðsson Kamp Knox Arnaldur Indriðason DNA Yrsa Sigurðardóttir Orðbragð Brynja Þorgeirsdóttir Bragi Valdimar Skúlason Saga þeirra, sagan mín Katrín Stella Briem Vísindabók Villa 2 Vilhelm Anton Jónsson Gæðakonur Steinunn Sigurðardóttir

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.