Frúin - 01.10.1963, Page 3
Til áskrifenda
Kœra frú!
Eins og yður er kunnugt, hefur verð á þessu blaði verið mjög lágt
í áskrift eða aðeins kr. 15.00 hvert hefti. Er verðið var ákveðið í upphafi
var reiknað með meiri lausasölu en orðið hefur, þar sem konur hafa auð-
vitað fremur kosið að gerast áskrifendur. Einnig var reiknað með mikilli
útbreiðslu, og hefur sú von ræzt mjög vel, þótt enn skorti á að blaðið sé
nœgilega útbreitt til að standa undir kostnaði. Áskrifendur eru nú hátt
á 6. þúsund, og mun það vera met um íslenzkt blað á svo stuttum tíma.
Kynning og wtbreiðsla blaðsins hefur kostað mikið fé. Frá því að „Frúin“
byrjaði að koma út, hefur setning hækkað um 42% og prentun um 47%.
Vinnulaun, póstgjöld og ýmis annar kostnaður hefur hœkkað mikið, enda
hafa öll blöð hœkkað mjög í verði á þessum tíma og sum tvisvar.
Útgefendur „Frúarinnar“ verða að viðurkenna, að ekki er unnt að
halda áfram útgáfu blaðsins á óbreyttu verði. „Frúin“ veit, að dýrtíðin
kemur einkum þungt við konur og myndi hún sízt vilja stuðla að aukn-
ingu hennar. En verðhœkkanirnar sneiða ekki hjá garði blaðsins, og er
því nauðugur einn kostur að hækka verð þess um fimm krónur hvert
hefti. Það er þó bót í máli, að þrátt fyrir þessa hækkun er ,,Frúin“ eitt
ódýrasta blaðið, og er auðvelt fyrir lesendur að bera saman lesmál, myndir,
stærð og verð blaðsins við önnur sambœrileg blöð.
Frá og með þessu blaði munu koma út 6 blöð til áramóta. Reynt verð-
ur að koma útgáfutíma blaðsins í fast form. Jólablaðið er þegar í undir-
búningi og mun verða 100 síður, sem er nokkurs konar uppbót á hækkun-
inni. Ýmis áform eru á döfinni um framtíðarskipulag blaðsins, svo sem lit-
prentun, mánaðarlega innheimtu o. fl.
Eins og áður hefur verið tekið fram, er þetta tilraun <til útgáfu á
g ó ð u kvennablaði, en til þess að hún takist, verður að vera fjárhags-
grundvöllur fyrir útgáfunni. Útgefendur geta ekki lagt fram meira fé úr
eigin vasa og verður því að treysta á að konur vilji fá sitt eigið blað og
styðji það með því að kaupa blaðið á því lágmarksverði, sem lœgst er unnt
að hafa það á.
Kœra frú! Vér vonum, að þér, fyrir yðar leyti, viljið styðja þessa útgáfu
með áframhaldandi áskrift yðar, og vér munum kappkosta að gera „Frúna“
svo vel úr garði sem kostur er á.
Með fyrirfram þökk.
ÚTGEFENDUR.
\
Ævi þinnar yfir dag,
eins og dýrðlegt friðarlag,
við þig lífsins harpa hljómi,
hlúð’ að hverju veiku blómi,
sem þú sérð að þarfnast þín,
þrek og kraftur ung að dvín.
Sveinbjörn Björnsson.
FRÚIN
KVENNABLAD
2. ÁRG. - 1963 - 7. TBL.
Efnisyfirlit:
Bls.
Til áskrifenda 3
Jenny Lind, „sænski nætur-
galinn“ 4
Kvennaskólinn í Reykjavík,
viðtal við skólastj. frú Guð-
rúnu P. Helgadóttur 8
Stgr. Thorsteinson: Ljóð, Páll
Melsted og Thora Melsted 12
Litið inn til gömlu skáldanna 13
Hans heillandi kona, frægar
konur 14
Heimsókn til skáldkonu, viðtal
við Kristínu Sigfúsdóttur
frá Syðri-Völlum 18
Kristín Sigfúsdóttir: í leit að
lækni 20
Stærsta kona í heimi 21
Barni gefið nafn í Chana 22
Að brauka saman, smásaga 24
Faðirinn, sem sat fastur við
sinn keip 28
Michel Angele og Vittoria
Colonna 30
Svarta jómfrúin og kristals-
hauskúpan 31
24 fallegustu hárgreiðslur
Jacqouelini Kennedy 34
Bréf Bens frænda 38
Skyggna konan í Noregi 42
Tízka 44
Handavinna 48
Líkamsrækt 50
Ást og tónlist 52
André Mouris: Einbeiting
hæfileikanna er farsælust 56
Það eiga að vera rósir á leið-
inu mínu 57
? og svar 58
Læknisþáttur 58
Jafnvel álftin er ekki öll þar
sem hún er séð 59
Matur er mannsins megin 62
Frá frúnni til frúarinnar 64
Vegir hins vitra 64
Krossgáta 66
---------------------------------------------------------------------------1
FRÚIN
3