Frúin - 01.10.1963, Blaðsíða 16

Frúin - 01.10.1963, Blaðsíða 16
Mrs. Kavanagh var talin mjög falleg. Hún átti heilan barnahóp með manni sínum, írskum stjórn- málamanni, sem var bæði handleggja- og fótleggja- laus. Gladstone-hjónin voru gift í 60 ár og þóttu vera allri þjóð- inni til fyrirmyndar — enda þótt Gladstone hafi áreiðanlega verið leiðinlegasti maður sem hægt er að hugsa sér. sviði, saumað útsaum, setið hest og spilað vist — allt með sömu leikn- inni. Hún kunni frönsku, ítölsku grísku, latínu og hebresku og var fá- dæma vel lesin. Þegar hún fluttist til Wales stofnaði hún þar skóla og sjúkrahús, söngkór og kirkjur fyrir þá 20.000 Wales-búa sem unnu við jámverksmiðjurnar. Hún þýddi mið- aidatexta úr velsku af mikilli þekk- mgu, fæddi 10 börn og ól þau óað- finnanlega upp, var einkaritari og bókhaldari manns síns, skrifaði bæk- ur um verksmiðjurnar og varð fram- kvæmdastjóri járnverksmiðjanna eft- ir lát manns síns. Maður hennar komst að vísu aldrei mjög langt á stjórnmálaferli sínum, en það var ekki henni að kenna. Eft- ir lát hans fór hún að sinna postu- línsöfnuninni miklu meir, og varð fyrsti Englendingurinn sem getur tal- izt hafa safnað postulíni, smeltigrip- um og blævængjum. f þessum til- gangi ferðaðist hún um alla Evrópu og Tyrkland og skoðaði allar forn- gripaverzl. og söfn niður í kjölinn. Rit hennar um postulín eru ennþá öllum postulínsunnendum til ánægju. Hún hélt dagbók, alt frá 10 ára aldri til 79 ára aldurs, sannferðuga dag- bók, sem hún ætlaðist aldrei til að yrði gefin út. En samt fellur enginn skuggi á hina vammlausu Charlottu við lestur þeirrar bókar. Ári eftir dauða manns síns giftist hún aftur kennara elzta sonar síns, Charles Schreiber, sem var aðeins 27 ára. Hún var orðin 41 árs og átján ára dóttir hennar varð alveg skelf- ingu lostin. En Charlotte lifði í mörg ár atburðaríku lífi við hlið manns síns í stjórnmálabaráttunni. Schrei- ber var íhaldsmaður, en Guest hafði verið Whig. Þrír synir hennar með Guest urðu einnig stjórnmálamenn, allir fyrir mismunandi flokka. En Charlotte sagði aðeins: „Það verða að vera fulltrúar í báðum deildum þingsins, og ég veit að betri fulltrúa en mína menn, er hvergi hægt að finna — enda þótt þeir hafi ólíkar skoðanir.“ Það var sagt, að aðeins eitt mætti að Charlotte finna. Hana skorti alla eðlilega glaðværð. Þann eiginleika átti aftur á móti vinkona hennar Mary Ann Disraeli í ríkum mæli. Líf þessara tveggja kvenna var að sumu leyti ekki ólíkt. Charlotte virtist í fljótu bragði vera sú, sem hefði ver- ið bezt til þess fallin að vera forsæt- isráðherrafrú, enda var sú tíðin, að Disraeli leit hana hýru auga. En það varð nú samt Mary litla Ann, dóttir fátæks sjóliðsforingja, sem hlotnað- ist sá heiður, enda þótt hún byrjaði feril sinn sem forstöðukona tízku- verzlunar. Mary Ann var ekki a 1 göf- ugum ættum, hún var hvorki fógur, rík eða menntuð, en hún kunni að njóta lífsins í öllum myndurr. þess og þótti vænt um alls konar fólk. Dýrmætasti eiginleiki hennar var að geta látið fólki líða vel í návist sinni. Hún giftist óðalseigandanum Wynd- ham Lewis, sem þótti hálfleiðinleg- ur, enda þótt hún héldi því statt og stöðugt fram í löngu hjónabandi, að hann væri dásamlegasti maður ver- aldar. Hann dó árið 1838, og yar ein- mitt að skrifa tékka handa Mcry Ann. Lucille Iremonger segir að þið hljóti að hafa verið ánægjulegur cauðdagi 16 FRÚIN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Frúin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frúin
https://timarit.is/publication/1084

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.