Frúin - 01.10.1963, Side 33

Frúin - 01.10.1963, Side 33
AÐ ÞRAUkA SAMAN Framh. af bls. 27. sagði Svendsen. — Heyrið þér bara, þau eru farin að syngja tvísöng! En það varð ekkert úr því, að þeir gengju út, því að söngurinn nálgað- ist. Bjöllutær sópran Elsu-Maríu átti vel við styrkan barýton Erlings. Þau komu gangandi eftir grasblett- inum í áttina til hússins. — Þau mundu líklega geta komizt nokkuð langt í sönglistinni, eða hald- ið þér það ekki, Tárup? En Stígur lét ósagt um, hvað hon- um fannst um þetta. Þaðfór ekki fram hjá Elsu-Maríu, að Stígur var í versta skapi. — Kaffið er orðið kalt, sagði hann ólundarlega. — Það er mér að kenna — ég hefði ekki átt að halda svona lengi í kon- una yðar! — Ég held, að það sé bezt að við þökkum fyrir okkur og förum, sagði Stígur stuttur í spuna. Elsa-María fór hjá sér, þegar hann sagði þetta — þetta var megn dóna- skapur hjá Stíg. Það var ekki einu sinni búið að drekka kaffið. — Ég þakka kærlega fyrir okkar hönd, sagði Stígur. — Þetta hefur verið mjög skemmtilegt. — Eigum við ekki að drekka kaffi- sopa, áður en við förum, Stígur? — Nei, það er orðið of framorðið. Elsa-María svaraði ekki, taldi það hyggilegast, eins og á stóð. En nú vissi hún, hvar hún hafði Stíg. Hann gekk svo hratt, að hún gat ekki fylgzt með honum. Þegar þau komu að hliðinu, velti hún því fyrir sér, hvort hann mundi halda því opnu fyrir henni. Jú, svo sannarlega .... Það var niðamyrkur í garðinum. Hún hafði gleymt að kveikja á stóra ljóskerinu á húshorninu, þegar þau fóru að heiman. Það eina, sem hún sá, voru hvítar georgínukrónurnar, sem blikuðu í myrkrinu, eins og þær væru sjálflýsandi. Elsa-María staðnæmdist hugfangin. Dagurinn hafði byrjað svo drunga- lega og leiðinlega, en birtan hafði fundið leiðina til hennar. Hún hafði löngunina til að syngja aftur. Elsa-María háttaði við hliðina á Stígi. Hún gat ekki gleymt Erlingi Svendsen. Hann var svo lífsglaður og skemmtilegur, og svo söng hann svo vel. Hún var því fegin, að Stíg- ur var afbrýðisamur, því að það haföi hún séð á svip hans, þegar þau Er- lingur komu aftur inn úr garðinum. Hann hefði bara átt að vita, að Er- iingur Svendsen var einmitt nýbúinn að opinbera trúlofun sína. Þau iágu þegjandi og hreyfingar- laus nokkra stund, en þá sagði Stíg- ur: — Ertu sofandi, Elsa-María? —Nei. Allt í einu fann hún, að hann tók um hönd hennar. — Elsa-María.... — Já, Stígur. Hann þrýsti hönd hennar. — Heyrðu — Elsa-María, ef satt skal segja, þá hafa Svendsen-bræð- urnir opnað á mér augun — ég hef víst verið óskaplega eigingjarn — en við — við tvö — eigum saman og ætlum að þrauka saman — er það ekki? — Elsa-María fékk ákafan hjarta- slátt. — Þú svarar ekki.... — Ó, Stígur. ... — Elsku Elsa-María, þú ert að gráta, vina mín. — Já, en það er af gleði. Kysstu mig nú, vondi karlinn minn! Það var orðið mjög framorðið, þegar þau höfðu loks talað um allt, sem þeim var á hjarta, en það voru hamingjusöm hjón, sem sofnuðu og þau héldust í hendur í svefninum. ^< Það er skilningsleysi okkar og hugsunartregða, — heimskan blátt áfram, sem bannar okkur betra •stjórnarfyrirkomulag og fegurra sið- ferði. Það er til lítils fyrir þig að segja unglingum þann sannleika, sem þú þekkir. Þeirra sannleikur verður frá- breyttur þínum, og 'hann fá þeir gegn- um aðra lifsreynslu en þú. Allir segja eitthvað gott um aðra. En það einkennilegasta er, að allir eiga það skilið, ef skoðað er djúpt ofan í kjölinn. Það er gaman að vera ungur — þegar maður er orðinn gamall. JENNY LIND Framhald af bls. 7. Jenný Lind andaðist 2. nóv. 1887 á bústað sínum „Winds Point“ í Mal- vern í greifadæminu Worcester á Englandi, og var jarðsett í kirkju- garði skammt frá heimili sínu. Enska þjóðin reisti henni minnisvarða í Westminster-Abbey, í hinu svonefnda „Poets Corner“ og á hann var letrað: „Jenný Lind Goldschmidt, fædd 6. okt. 1820, dáin 2. nóv. 1887. „Ég veit, að minn lausnari lifir.“ Hún gaf föðurlandi sínu stórfé í ýmsu skyni. Hún gaf t. d. nálega hálfa milljón til líknarstofnana, barnaheimila, sjúkrahúsa o. s. frv. Og ekki gleymdi hún að ætla háskól- anum í Lundi og Uppsölum ríkulegar gjafir; áttu það að vera styrktarsjóð- ir handa fátækum stúdentum. Hin persónulega framganga Jenný Lind, virðist hafa verið jafnaðlaðandi og söngurinn hennar. Enskur ævi- sagnahöfundur segir meðal annars um hana: „Mesta listin hennar var lifnaður hennar sjálfrar." Prestur einn í Boston sagði meðal annars: „Eftir þessa söngkonu hugsar mað- ur meira um Jenný Lind sjálfa en sönginn hennar.“ Það gat eigi dulizt, að hún söng af allri sál. List hennar var eðlileg; hún var hennar líf, gjöf Guðs. Hún var tvímælalaust mesta söngkona aldarinnar. Lunderni henn- ar og líf skín hvorttveggja af hinum hreinustu og fegurstu litum. Óskar konungur II. sagði um hana: „Hún er áþekk loftsýn, svífandi yfir dásamandi samtíð.“ Þúsundir manna geyma minningu hennar í elskandi hjörtum. Áhrifin af lífi hennar lifa eftir hana sjálfa. Hin sjálfsafneitun- arfullu líknarstörf hennar eru sann- lega eftirbreytniverð. Jóhanna María Jenný Lind var ein af göfugustu, mestu og beztu dætr- um Svíþjóðar. "K Ung og glæsileg hefðarkona sat inni á veitingastað. Hún gerir boð eftir yfirþjóninum og spyr hann: — Er það ekki Clark Gable, sem situr þarna við barinn? Þjónninn fullviss- aði hana um að svo væri. Ég þoli hann ekki hér í návist minni, sagði 'hún. Hefur hann ónáðað yður? Nei, það er það, sem ég þoli ekki. FRÚIN 33

x

Frúin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frúin
https://timarit.is/publication/1084

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.