Frúin - 01.10.1963, Blaðsíða 34
Hin glæsilega forsetafrú Banda-
ríkjanna er óumdeilanlega ein
þeirra kvenna, sem hefur mest áhrif
á tízkuna. í Bandaríkjunum sitja all-
ir og standa eins og hún, allt er haft
eftir henni, — hvernig blómum er
raðað í glugga, hvernig kvenfólkið
klæðir sig. — Meðfædd, óskeikul
smekkvísi Jacqueline setur svip sinn
á allt daglegt líf Bandaríkjamanna.
Hún notar fjölmargar hárgreiðslur,
sem kvenfólk um allan heim tekur
upp eftir henni. Hér sjáið þið 24 fal-
iegustu hárgreiðslur hennar.
Fyrst eftir 1950 var hún fréttaljós-
myndari við dagblað eitt í Washingh-
ton, og þá hafði hún sjálfliðað hár
sitt alveg stuttklippt, (1). Eftir op-
inberun trúlofuninnar með John F.
Kennedy, þáverandi senator, kom
hún fram með þessa hárgreiðslu (2).
Á brúðkaupsdaginn hafði hún mikið
krullað hár undir slörinu (3). Á með-
an hún var kornung, önnum kafin
húsfreyja, fannst henni þægilegt að
hafa hárið stutt og nota einfalda
greiðslu, sem þarfnaðist lítillar fyr-
irhafnar (4). í kosningabaráttu
34
FRÚIN