Frúin - 01.10.1963, Side 43

Frúin - 01.10.1963, Side 43
Inge Tamnes, kæmi of seint. Þarna var henni feng- ið kort, og hún merkti staðinn óðara á það. Þegar Inge fær bréf með fyrir- spurn um hvar einhver hlutur eða manneskja sé, þá hefur hún þann hátt á, að hún tekur bréfið fram 5—6 sinnum. Ef hún fær sama hugboðið í hvert skipti, telur hún víst að hún sjái rétt. En hún fær ekki alltaf svona gott svigrúm til að átta sig. Þegar leitað var að drengnum í ánni Nið, varð hún að gefa svar á stund- inni. Inge hefur í mörgu að snúast sem bóndakona og húsmóðir, og hún get- ur ekki séð í fjarska, þegar hún er þreytt. Stundum verður hún að senda fólk frá sér, án þess að geta gert nokkuð fyrir það. Það reyndist henni stundum erfitt að sjá svona, en í önn- ur skipti sér hún hluti í fjarska, án þess að reyna nokkuð til þess. Oft- ast er það eftir að hún er komin upp í rúm á kvöldin, þar sem hún hefur aldrei verið. „Það kemur fyrir að mig langar til að segja við fólk: ef þú gerir það aftur, sem þú gerðir í gærkvöld, þá tilkynni ég lögregl- unni það,“ segir Inge. En hún gerir það samt ekki. „Þetta eru hlutir, sem ég verð að halda fyrir sjálfa mig,“ segir hún. „Þessi gáfa féll mér skyndi- lega í skaut, og kannske verð ég jafn- skyndilega svipt henni. Mér yrði það nokkur léttir,“ segir hún. „En ég myndi einnig sakna þess arna, stund- um er reglulega gaman að þessu.“ Hver skyldi vera skýringin á þess- um hæfileika Inge Tames? Hún hef- ur tvímælalaust óvenjugóða athygl- isgáfu. Líklega hefur hún á löngum tíma vanizt því að gefa atferli manna og dýra nákvæmlega gaum — kann- ske hefur hún gert það ómeðvitandi. Hún hefur líka næma tilfinningu fyr- ir umhverfi sínu, óvenjuþroskað sjón- minni og er mjög fljót að tengja hug- dettur sínar rökrétt saman. Auk þess er hún hjálpfús og velviljuð, og þannig tekst henni að koma mörg- um að gagni. En hvort sem reynt er að skýra hæfileika hennar á sálfræði- legan hátt eða telja hann yfirnátt- úrulegan, þá breytir það engu um þá staðreynd, að hún hefur hjálpað mörgum meðbræðrum sínum. in í Lesjaskog. „Þau liggja einhvers staðar á opnu svæði,“ sagði hún fyrst í símann. Þá var henni sagt að væn- legast væri að leita í á. „Nú, þá veit ég ekkert hvar þau eru,“ sagði hún. En á meðan leitinni var haldið áfram, sá hún allt ljóslifandi fyrir sér. Hún sá að leitin fór villur vegar, og tókst á hendur ferð til Lesjaskog, enda þótt hún fyndi á sér, að öll hjálp FRÚIN 43

x

Frúin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frúin
https://timarit.is/publication/1084

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.