Frúin - 01.10.1963, Blaðsíða 58

Frúin - 01.10.1963, Blaðsíða 58
Ég hef sterkan grun um að maður- inn minn sé farinn að hugsa um ann- an kvenmann. Ég er alveg í rusli. Helst dettur mér í hug að það sé stúlka sem vinnur hjá honum. Á ég að fara til hennar og vita vissu mína? Ein í vanda. Maðurinn minn hrýtur svo mikið. Það er ég búin að þola í 14 ár, og hef ekki getað vanist því. Nú langar mig til að heyra álit þitt. Hann er 90 kg. og því ekki svo auðvelt að Lækitir 7 ára rannsóknir á lungnakrabba, leiddu í ljós, að 80% sjúklinganna höfðu reykt að meðaltali ca 2 pakka af sígarettum á dag í 12% ár. Það kom einnig í ljós, að sígarettur eru töluvert hættulegri fyrir unglinga en fullorðið fólk. Harvard háskólinn í Bandaríkjunum, stóð fyrir rannsókn- um þessum. Þótt reykingar séu ekki bein sönnun, að sígarettureykingar valdi lungnakrabba, þá segir í skýrslu há- skólans, að það sé mjög sennilegt. Af 500 lungnakrabbasjúklingum, voru aðeins 8, sem reyktu ekki; 19 reyktu aðeins pípu og vindla; allir hinir, eða 473 reyktu sígarettur. Vísindamennirnir sögðust vera sannfærðir um, að samanlagður fjöldi sígarettu-pakka reyktum yfir alla ævina, væru aðalatriðið. Það hefði ekkert að segja, þótt samanlögð áhrif allra sígarettanna, hefðu verk- að í lengri eða skemmri tíma. Einnig sýndu þessar rannsóknir, að % hluti sjúklinganna, var ýmist með króniskt eða títt lungnakvef, og að % stundaðu útivinnu, og svo að % hluti þeirra, voru alkoholistar af fyrstu skúffu! Til hindrunar æðakölkun, vill dr. dr. H. Page í Cleveland ráðleggja S VAR velta honum fram og til baka. Hálf nóttin fer í að halda fyrir nefið á honum, fyrir utan allt annað, sem ég hef verið að bauka við, en viti menn hann hrýtur eftir sem áður. Sonur okkar er í Ameríku við nám, svo að herbergið hans er autt. Mað- urinn minn má ekki heyra nefnt að ég sofi þar, enda þótt hann sjái mig með augnalokin hangandi hvern morgun er ég gef honum morgun- kaffið. Þetta er farið að gera mig taugaveiklaða, sem annars hef haft sterkar taugar. Er þetta sanngjarnt? Jóna. Þetta eilífa vandamál. Gerðu ekki þig né manninn þinn að fífli. Eins og ég hef áður sagt hér í blaðinu, fer ekkert hjónaband út um þúfur sé nægur kærleikur fyrir hendi. Taktu þessu skynsamlea. Eins og er virðist þetta vera aðeins grunur, láttu sem ekkert sé. Láttu hann um fram allt ekki finna neitt vantraust. Karlmenn verða aldrei annað en drengir. Sé hjónaband ykkar gott, þá gættu þín vel, enga fljótfærni. Farir þú til stúlkunnar, hefir þú stígið spor sem þú átt eftir að iðrast. Svo sannarlega er þetta ósann- gjarnt. í þínum sporum held ég að ég laumaðist nú inn í herbergið og fengi mér væran blund, að minnsta kosti við og við. Hvaða ávinning hef- ur hann af að hafa þig svefnlausa þegar að hann steinsefur? Þvílík fjarstæða! §kriiar: eftirfarandi: Reynið að skilja hjartasjúkdóma, en óttist þá ekki. Megrið yður ef þér eruð of feitir, borðið minna í þeirri von að þér munið lifa lengur til þess að geta borðað meira; ef hjarta- sjúkdómar eru i ættinni, og blóð yð- ar inniheldur of mikið chalesterol, (efni sem er álitið orsaka æðakölkun o. fl.) talið þá við læknir yðar, og reynið að minnka það með réttu mat- aræði. Lækkið blóðþrýsting ef nauð- syn krefur. Neytið sem allra minnst af mettaðri dýrafitu svo og annarri fitu. Rétt hlutföll í mataræði eru af- ar nauðsynleg, og óhóf í hverju sem er skyldi forðast. Iðkið hæfilegar líkamsæfingar. Gætið þess að ekki skorti neitt af nauðsynlegum efnum í hið minnkaða mataræði. Bregðist drengilega við erfiðleikum lífsins, takið hinu óumflýjanlega, og lifið eins og þér munduð lifa að eilifu, og það gerið þér vissulega í anda. f Ameríku eru þeir farnir að taka hjartalínurit af börnum áður en þau fæðast. Tilgangurinn með þessu er sá, að hindra fæðingu barna með svonefndan vatnsheila. Þegar hefur heppnazt að bjarga nokkrum börn- um. í einu tilfelli uppgötvaðist með hjartalínuriti, að einhverjir þrengsl- isörðuleikar steðjuðu að fóstrinu, en ekkert hafði fundizt með venjuleg- um hlustunaraðferðum; að svo komnu var undir eins gerður keis- araskurður á konunni, og kom þá í ljós, að naflastrengurinn var þétt- vafinn um hálsinn á fóstrinu! Lækn- ar eru mjög bjartsýnir vegna þess- ara aðgerða, og segja að þær lækki mikið tölu vanskapaðra barna. Kring- um 30% vanskapaðra barna, er álit- ið að stafi af orsökum fyrir fæðing- una, og 60% vanskapist í fæðing- unni. Auk þessa er mjög sennilegt. að andlegur sljóleiki og flogaveiki, eigi rætur sínar að rekja, til súrefn- isskorts á fósturstigi barnsins! Ameríkanska læknafélagið, hvetur meðlimi sína og lyfsala, að draga eitthvað úr leyndardómi receptanna. Félagið vill, að nafn meðalsins og eðli sé ritað greinilega á miða utan á glasinu, svo að sjúklingurinn geti séð hvað hann sé að taka inn. Það er álitið að gagnkvæmt traust milli læknis og sjúklings verði meira, ef þetta verður gert. Á flestum miðum er aðeins nafn og heimilisfang lyfsalans, recepta skrár númer nafn læknis og sjúk- lings, og hvernig eigi að nota meðal- ið. En það eru oft knýjandi ástæður 58 FRÚIN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Frúin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frúin
https://timarit.is/publication/1084

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.