Stígandi - 01.07.1945, Side 51
STÍGANDI
BÚENDATAL SANDS í AÐALDAL
225
Hóli á Tjörnesi og víðar; átti margt barna. Þar á nieðal Þórð í
Skógargerði og Gnðmund í Helgugerði, móðurföður Sigríðar,
konu Steingríms, bónda í Nesi, Baldvinssonar.
Friðfinnur Finnbogason taldist búandi á parti af Sandi eitt
ár. Mun þó faðir hans hafa verið hinn eiginlegi ábúandi, en það
var Finnbogi Sveinsson frá Garðsvík, aldurhniginn maður. Frið-
finnur var þá ókvæntur, en giftist skömmu síðar Guðrúnu Hrólfs-
dóttur frá Núpum. Synir þeirra voru Sigurgeir á Núpum og Mýra-
seli, flutti vestur um haf, og Jóhannes, drukknaði á Veturliða.
Jónas Einarsson „heillagóði“ bjó hér 5 ár á parti jarðar. Hann
var manna óeirnastur og dvaldi afarvíða. Taldi hann það til með-
mæla tíðum búferlaflutniiigum, að þá myndi maður, hvernig bú-
slóðin væri lögð í klyfjar ár frá ári. Jónas bjó einna lengst á Mý-
laugsstöðum. Var spáð heimsendi ákveðinn dag, eitt árið, sem
hann bjó þar. Daginn áður en undrin áttu að ske, draslaði Jónas
byttu sinni neðan af vatni og heim á hlað, svo að hún væri til
taks, en bærinn stendur allliátt uppi í brekku. Jónas heillagóði
var afar kyndugur náungi, og' eru ýmsar frásagnir til rnerkis um
það, þótt ekki verði drepið á fleira ltér að þessu sinni. Dóttir Jón-
asar var Sigríður kona Jónasar snikkara Péturssonar, er var vel
þekktur maður í Aðaldal um miðja næstliðna öld. Dóttir jieirra
var Þorbjörg, lengi liúsfreyja í Blikalóni, þrígift. Dáin fyrir nokkr-
um árum í Krossanesi vestan Eyjafjarðar, áttræð að aldri. Margrét
var önnur dóttir Jónasar heillagóða, átti Ólaf Indriðason frá
Garði. Þau fluttust frá Húsavík vestur um haf á efri árum, með
börn sín öll.
Flalldór Jónsson var frá Ljótsstöðum í Fnjóskadal. Átti fyrr
Jarþrúði Jónsdóttur frá Hólmavaði, bjuggu í Rauðuskriðu; hún
dó ung af barnsförum. Þeirra son var Sigurður, er kvongaðist og
átti margt barna. Meðal barna Sigurðar voru fjórir synir, Sveinn,
Sigurjón, Björn og Karl, er fluttu allir austur í Vopnafjörð og
ílentust þar; merkir dugnaðar- og atorkumenn. (Björn er einn
þeirra bræðra á lífi og dvelur nú á Völlum á Kjalarnesi, hjá
tengdasyni sínum þar, Magnúsi bónda Jónassyni.) Dætur Sigurðar
voru Guðrún, kona Jóns á Tjörn í Aðaldal, og Halldóra á Ferju-
ltakka í Öxarfirði, sem báðar eru á lífi, Jregar Jretta er ritað, á ní-
ræðisaldri. Seinni kona Halldórs var Guðrún Reinaldsdóttir frá
Ingjaldsstöðum. Halldór hafði bújarðaskipti við Magnús á Hóli
á Tjörnesi. Eftir það fór hann í Máná og dó þar 45 ára garnall.
Halldór var verkmaður í betra lagi, smiður góður og orðlagður
15